Ætla að kæra verkfallsboðun til Félagsdóms 21. mars 2012 23:13
Boðun Flugreyjufélags Íslands á verkfalli flugliða hjá Iceland Express eftir viku er ólögleg að mati Iceland Express og verður kærð til Félagsdóms samkvæmt tilkynningu frá fyrirtækinu. Þar segir ennfremur: Til verkfallsins er boðað vegna ágreinings fyrirtækisins og Flugfreyjufélagsins sem staðið hefur yfir frá því skömmu eftir að samstarf hófst milli Iceland Express og Holidays Czech Airlines (HCA) í nóvember á síðasta ári. Í lögbundinni rekstrarhandbók HCA er ákvæði um að fyrsta freyja í flugvélum félagsins skuli vera frá HOLIDAYS, þar til aðrir flugliðar hafi hlotið tilætlaða reynslu og þjálfun í störfum í flugvélum þess. Í dag eru þrír af fjórum flugliðum um borð í flugvélum á vegum Iceland Express félagsmenn í Flugfreyjufélagi Íslands en fyrsta freyja kemur frá HOLIDAYS Czech Airlines. Samkvæmt samningi félaganna verður starfsþjálfun og reynsla hluta íslensku flugliðanna orðin nægjanleg til að gegna starfi fyrstu freyju á miðju þessu ári. Þrátt fyrir ítrekaðar samningaumleitanir var stjórn Flugfreyjufélagsins algerlega ósveigjanleg hvað þetta varðar og kaus að túlka forgangsréttarákvæði kjarasamnings félagsins við Iceland Express eins þröngt og mögulegt er og kærði málið til Félagsdóms. Dómurinn komst nýlega að þeirri niðurstöðu að forgangsréttarákvæðið væri algert og án undantekninga. Ágreiningur er um nánari túlkun dómsins. Iceland Express hefur leitast við að finna lausn á þessu máli án undirtekta hjá Flugfreyjufélagi Íslands. Um áttatíu flugliðar í Flugfreyjufélagi Íslands eru ráðnir til starfa hjá Iceland Express í sumar. Nú hafa 33 af þeim 47 sem sem greiddu atkvæði um tillögu stjórnar Flugfreyjufélagsins um boðun verkfalls, samþykkt verkfallsboðunina. Iceland Express telur þessa verkfallsboðun með öllu ólöglega og mun kæra hana til Félagsdóms og hefur enga trú á að til verkfalls muni koma. Boðun verkfallsins er undarleg í ljósi þess að fjórir af fimm stjórnarmönnum í Flugfreyjufélaginu eru starfsmenn samkeppnisaðila Iceland Express, Icelandair, og fimmti stjórnarmaðurinn er að hefja störf hjá Wow Air. Þess má geta að þegar Icelandair leigir flugvélar sínar í verkefni erlendis, fylgir fyrsta freyja frá Icelandair með í verkefnunum líkt og gildir hjá tékkneska flugfélaginu.
Mest lesið Húsleit hjá Ölgerðinni Viðskipti innlent Adidas í mál vegna fjögurra randa hönnunar Viðskipti erlent Hlaðvarparar segja fjölmiðlanefnd stunda glassúrgerð Viðskipti innlent Ný streymisveita verði heimili íslenskrar framleiðslu Neytendur Öll tilboð yfir kostnaðaráætlun Viðskipti innlent Skims opnar í Kringlunni Viðskipti innlent EX60: Sumarást eða samband til frambúðar Samstarf Fjárhagsáhyggjur starfsfólks tvöfaldar: Vinnan og heima Atvinnulíf Íslandsbanki varar við svikasímtölum Viðskipti innlent Hafi ekki sérhagsmuni að leiðarljósi um skráningarskyldu fjölmiðla Viðskipti innlent Fleiri fréttir Hlaðvarparar segja fjölmiðlanefnd stunda glassúrgerð Íslandsbanki varar við svikasímtölum Öll tilboð yfir kostnaðaráætlun Húsleit hjá Ölgerðinni Ráðinn framkvæmdastjóri rekstrar hjá Keahótelum Hafi ekki sérhagsmuni að leiðarljósi um skráningarskyldu fjölmiðla Skims opnar í Kringlunni Aukin skattheimta og aukin samkeppni í boði ríkisins Nýir veitingastaðir opnaðir á Hilton Reykjavík og Hótel Reykjavík Öskju Uggandi yfir afstöðu VR Bein útsending: Rökstyðja stýrivaxtaákvörðun sína Stýrivextir áfram átta prósent Sonur Kristjáns í hans stað á hvalveiðiráðstefnu Vill að þak verði sett á álagningu olíufélaga Eru ríkisskuldabréfasjóðir öruggir? Tæplega þrjátíu sagt upp Ákveða í kvöld hvort kjarasamningum verði sagt upp Ráðinn sviðsstjóri og staðgengill forstjóra Fastus Ganga til sáttaviðræðna við Samkeppniseftirlitið Langþráður draumur að verða að veruleika í Kísildal Breytingar á vetraropnun miðstöðvarinnar í Kerlingarfjöllum kynntar Klíníkin sótti 300 milljónir króna 181 starfsmanni sagt upp í sex hópuppsögnum Enn eitt gjaldþrot Helga: Ekkert í boði í Veislunni Kaupir Malbiksstöðina á fimm milljarða Tuttugu sagt upp í fiskvinnslu í Reykjanesbæ Borga hálfan milljarð í viðbót fyrir indverskt félag „Hlutir sem við vorum ekki sammála um“ Hörður hættir sem forstjóri Landsvirkjunar Bein útsending: Ársfundur Samtaka atvinnulífsins Sjá meira