Hávær krafa um notkun jarðstrengja í stað loftlína 12. apríl 2012 08:30 Mörgum þykja háspennumöstur og línur lýti á landslagi, meðan aðrir kunna að sjá einhverja fegurð í mannvirkjunum, svo sem í samspili gufunnar frá Hellisheiðarvirkjun og raflínunum á Hellisheiði. Fréttablaðið/GVA
Jarðstrengir fyrir háa spennu eru margfalt dýrari en loftlínur. Leggja á fyrir Alþingi næsta haust tillögu að stefnumörkun um jarðstrengi í raforkukerfinu. Nýjar raflínulagnir næstu ár tengjast iðnaði, ekki heimilum. Drög að stefnu um lagningu raflína í jörð eiga að liggja fyrir næsta haust. Á yfirstandandi þingi var samþykkt þingsályktunartillaga þar sem iðnaðarráðherra, í samráði við umhverfisráðherra, var falið að skipa nefnd sem fari yfir málið og skal iðnaðarráðherra flytja Alþingi skýrslu um störf nefndarinnar fyrir fyrsta október næstkomandi. „Á undanförnum árum hefur orkuframleiðsla á Íslandi aukist mjög og jafnframt gagnrýni á neikvæð umhverfisáhrif hennar,“ segir í greinargerð með tillögunni, sem umhverfis- og samgöngunefnd lagði fram. Hún er samhljóða tillögu sem Helgi Hjörvar, þingmaður Samfylkingarinnar, ásamt meðflutningsmönnum úr öllum flokkum, lagði fram á Alþingi í desember 2007. „Einn þáttur þeirra áhrifa er sjónmengun af völdum háspennulína og hefur sú krafa orðið háværari að jarðstrengir séu nýttir í stað loftlína. Mikilvægt er að fyrir liggi pólitísk stefnumörkun um með hvaða hætti og á hvaða forsendum skuli stefnt að lagningu raflína í jörð og til hvaða þátta skuli sérstaklega taka tillit í þeim efnum,“ segir í ályktuninni. Fram kemur að mismunandi sé eftir svæðum hvort fremur henti loftlínur eða lagnir í jörð. Til dæmis fylgi mikið rask lagningu jarðlína og það kunni síður að henta þar sem gróðurfar er viðkvæmt eða gæta þarf að öðrum umhverfisþáttum. Þá kemur líka fram að við lága spennu séu jarðstrengir hagkvæmari kostur en loftlínur, en eftir því sem spennan aukist hækki kostnaður mikið við jarðstrengi. „Í fimm ára kerfisáætlun Landsnets 2009–2013 kemur fram að stofnkostnaður við 132 kV streng sé 1,5–3 sinnum hærri en fyrir loftlínu með sömu flutningsgetu, stofnkostnaður 220 kV strengs sé 3–6 sinnum hærri og 440 kV sé 7–10 sinnum hærri.“ Um leið er bent á að nýjar raflagnir muni á næstu árum og áratugum fyrst og fremst tengjast iðnaðar- og atvinnustarfsemi, en ekki þörfum heimilanna. Vísað er til fyrri þingsályktunartillögu um að iðnaðar- og atvinnustarfsemi verði að vera nægilega ábatasöm til að standa undir umhverfislausnum. Í mörgum ríkjum heims sé litið til umhverfiskostnaðar við mat og undirbúning verkefna og verðgildi náttúru sem tapast við nýtingu fellt inn í ákvarðanatöku. „Vinna af þessu tagi hefur ekki verið framkvæmd hérlendis og umhverfiskostnaður því óþekkt stærð við ákvarðanatöku.“ olikr@frettabladid.is
Mest lesið Grunur um fjárkúgun í manndrápsmáli Innlent Neitar að hafa mætt með fóstur í krukku Innlent Aðalmeðferð í máli Írisar Helgu að hefjast Innlent Gekk á milli bíla og braut rúður Innlent Feðgarnir handteknir í heimahúsi með alvarlega áverka Innlent Fjölmenni í héraðsdómi Innlent Mega ekki teygja starfsemi tjaldsvæðisins yfir götuna Innlent „Svívirðileg svik“ Erlent Þekkt fyrirtæki nýtt í skipulagðri glæpastarfsemi Innlent Níu manns um borð þegar flugvél hrapaði á umferðargötu Erlent Fleiri fréttir Flestir neita sök og umfangsmikil réttarhöld í vændum Feðgarnir handteknir í heimahúsi með alvarlega áverka Manndrápsmál, eltihrellir og söguleg kaup Neitar að hafa mætt með fóstur í krukku Gekk á milli bíla og braut rúður Fjölmenni í héraðsdómi Þriðjungur til Þórs og KA en rúmt prósent í menninguna Hreyfingar mælast og aukin vöktun Aðalmeðferð í máli Írisar Helgu að hefjast Skattlagning á erlenda tæknirisa enn til skoðunar Grunur um fjárkúgun í manndrápsmáli Skikkaður í varðhald í tengslum við manndráp í Breiðholti Mega ekki teygja starfsemi tjaldsvæðisins yfir götuna Leiddur fyrir dómara vegna mannsláts Göngustígar greiða leið um falda perlu við Stykkishólm Hafna nær öllum sem vilja troða upp á Airwaves Þekkt fyrirtæki nýtt í skipulagðri glæpastarfsemi Kryddsíldin fagnar fjörutíu ára afmæli Skoða tengsl milli gerenda og fórnarlambsins í Breiðholti Feðgar verið handteknir í tengslum við rannsókn á manndrápi Nálar í hrekkjavökunammi reyndust vera hrekkur „Það var engu bætt inn í samninginn sem sneri að tölulegum þáttum“ Tveir handteknir með vopn í unglingapartíi Andlát í Breiðholti til rannsóknar Maður látinn eftir líkamsárás í Breiðholti Einar og Sanna mæta á Sprengisand og ræða uppsagnir Spörkuðu, hræktu og létu öllum illum látum Reykur barst um sameign og vatn lak niður í næstu íbúðir Koma langt að til að sjá hvar Agnes var hálshöggvin Hundi bjargað af svölum og einn fluttur á slysadeild Sjá meira