Akureyrarlögreglan ræður ekki við álagið 12. apríl 2012 08:00 Lögreglan á Akureyri hefur vart undan við að sinna málum sem koma upp í bænum sökum aukins álags og alvarlegri glæpa undanfarin ár.
Fjögur vopnuð rán hafa verið framin á Akureyri á þessu ári. Fíkniefnaneysla hefur aukist mikið. Lögreglan á erfitt með að mæta álaginu sökum manneklu. Bæjarstjóri vill kalla eftir samanburðartölum um þróun glæpa á landinu öllu. Fjögur vopnuð rán hafa verið framin á Akureyri það sem af er ári. Ekkert vopnað rán var framið í bænum í fyrra. Tvö af ránunum í ár voru framin af fíkniefnaneytendum til að fjármagna skuldir og tvö voru framin af sama einstaklingnum; ungri konu sem á við andlega vanheilsu að stríða. „Vonandi er þetta bylgja sem mun ekki festa sig í sessi," segir Gunnar Jóhannsson, yfirmaður rannsóknardeildar lögreglunnar á Akureyri. Lögreglan í bænum hefur verið að fást við mun grófari og alvarlegri glæpi á undanförnum árum. Gunnar segir merkjanlegan mun á eðli glæpanna hafa komið í ljós á árunum 2005 og 2006. Fíkniefnaneysla hafi færst í aukana og langflest afbrot séu tengd fíkniefnum. Aðallega er lagt hald á kannabis og amfetamín. Þá er ræktun kannabisplantna einnig orðin mun algengari. Gunnar segir mannafla lögreglunnar ekki í samræmi við það aukna álag sem stéttin sé að fást við. „Við erum komnir niður fyrir þolmörk í þeim efnum," segir hann. Nokkur mjög alvarleg líkamsárásarmál hafa komið upp á Akureyri á undanförnum árum. Má þar nefna atvik sem þar sem fingur var klipptur af manni með greinaklippu við handrukkun árið 2007, hnífsstunguárás árið 2009 og frelsissvipting og alvarleg líkamsárás í Vaðlaheiði árið 2006. Lögreglan fylgist vel með mögulegri þróun skipulagðra glæpasamtaka í bænum í samstarfi við lögregluna á höfuðborgarsvæðinu. Gunnar segir þó lítið benda til þess að þau séu að festa sig í sessi. „Þó eru vissir einstaklingar að reyna að tengja sig við þessa hópa. til að sýnast stærri en aðrir," segir hann. Eiríkur Björn Björgvinsson, bæjarstjóri Akureyrar, hefur áhyggjur af þróuninni í bænum sem og á landinu öllu. Hann vill láta kalla eftir tölulegum upplýsingum frá ríkinu til að sjá hvort Akureyri standi verr að vígi en sambærileg sveitarfélög í landinu hvað þessa þróun varðar. Þá sé það áhyggjuefni ef lögreglan hafi ekki þann fjárstuðning sem þarf til að takast á við þessa þróun. Almannaheillanefnd hefur verið starfandi í bænum frá árinu 2008 og er hennar hlutverk meðal annars að vinna að fræðslu og forvörnum er varða afbrot. sunna@frettabladid.is
Mest lesið Yfirgefa húsið fyrir fullt og allt á fimmtudag Innlent „Skemmtilegra ef við hefðum lent á hinu árinu“ Innlent Sakar framkvæmdastjóra Landspítala um ósannindi Innlent „Við verðum að fá fólk heim aftur“ Innlent Inga kemur Ingó til varnar Innlent Ákærður fyrir banatilræði við Trump Erlent Fyrstu íslensku GPS-heiðlóurnar komnar heim Innlent Maðurinn fannst látinn í gilinu Innlent Furðar sig á þögn yfir „einu helsta áhyggjuefni Íslands“ Innlent „Komið þá með allt það sem gerðist síðast“ Innlent Fleiri fréttir „Skemmtilegra ef við hefðum lent á hinu árinu“ Sakar framkvæmdastjóra Landspítala um ósannindi Yfirgefa húsið fyrir fullt og allt á fimmtudag „Við verðum að fá fólk heim aftur“ „Komið þá með allt það sem gerðist síðast“ Fyrstu íslensku GPS-heiðlóurnar komnar heim Harmleikurinn á Edition og umdeild bifreiðarstöð Óvenjulegu tímabili að ljúka Jón Pétur segir enga feðraveldisrembu í „árþúsunda náttúruvali“ Heimilt að nota rafrænt eftirlit í nálgunarbannsmálum „Það þarf að taka í handbremsuna strax“ „Var þetta einhver skets?“ Inga kemur Ingó til varnar Íbúar funda aftur um stöðu Kaffistofunnar Konan ákærð fyrir manndráp á Edition Eden Mining vill ekki sjá málið fyrir dómstólum Ísland kunni að kreista veski ríkra ferðamanna Íslendingurinn var nemandi í lýðháskóla „Mér finnst þetta ákaflega dapurleg framganga“ Sjö þúsund störf gætu verið unnin af gervigreind Vill hætta veiðum en græna ljós Bjarna gildi Hitafundur í utanríkismálanefnd og ráðherra boðar breytingar á hvalveiðilögum Inga vill ekki setja „tugi milljarða í loftslagsmál“ Beitir sér ekki sérstaklega fyrir því að spurningunni verði breytt Stjórnarþingmaður segir Hafró í bullandi pólitík Handteknu hafa komið áður við sögu hjá lögreglu Bein útsending: Kristrún svarar spurningum um þjóðaratkvæðagreiðslu Tveir handteknir í tengslum við stórfellda líkamsárás Furðar sig á þögn yfir „einu helsta áhyggjuefni Íslands“ Krónu kastað fyrir aurinn í fjármögnun skóla Sjá meira