Viðskipti innlent

Framkvæmdastjórn AGS lokið umræðum um íslensk efnahagsmál

Hinn 6. apríl fór fram reglubundin umræða um stöðu og horfur í íslensku efnahagslífi (e. 2012 Article IV Consultation) í framkvæmdastjórn Alþjóðagjaldeyrissjóðsins. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Seðlabanka Íslands.

Þar segir að jafnframt hafi farið fram umræða um eftirfylgniskýrslu sjóðsins í kjölfar þess að efnahagsáætlun íslenskra stjórnvalda og Alþjóðagjaldeyrissjóðsins lauk í ágúst 2011. Sjóðurinn birti í dag fréttatilkynningu á heimasíðu sinni þar sem greint er frá þessu.

Sendinefnd sjóðsins var hér á landi til viðræðna við íslensk stjórnvöld og aðra hagsmunaaðila í febrúar síðastliðnum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×