Titringur hjá Reykjavíkurborg vegna skýrslu um OR Magnús Halldórsson skrifar 3. október 2012 00:00 Höfuðstöðvar Orkuveitu Reykjavíkur.
Úttektarnefnd sem skipuð var til þess að þess að rannsaka starfsemi Orkuveitu Reykjavíkur hefur lokið vinnu sinni, og verður skýrsla nefndarinnar formlega kynnt öllum eigendum fyrirtækisins á næstu dögum. Titringur er innan stjórnkerfis Reykjavíkurborgar vegna útkomu skýrslunnar. Úttektarnefndin hefur verið að störfum frá því 23. júní í fyrra, en í henni sitja Margrét Pétursdóttir endurskoðandi, Ása Ólafsdóttir hæstaréttarlögmaður og Ómar Kristmundsson stjórnsýslufræðingur. Samkvæmt heimildum fréttastofu gætir nokkurs titrings stjórnkerfis Reykjavíkurborgar vegna vegna skýrslunnar, og þá ekki síst á meðal borgarfulltrúa í öllum flokkum nema Besta flokknum, sem stýrðu Orkuveitunni sem stjórnarmenn. Markmið nefndarinnar var að skýra aðdraganda og orsakir fyrir þeirri stöðu sem rekstu Orkuveitu Reykjavíkur var eftir hrun fjármálakerfisins, en þá rambaði fyrirtækið á barmi gjaldþrots og þurfti að ráðast í umfangsmiklar skipulagsbreytingar á rekstrinum. Árið 2011 lagði ný stjórn með Bjarna Bjarnason sem forstjóra fram áætlun þar sem markmiðið var að ná fram 50 milljarða viðsnúningi í rekstrinum á fimm árum. Eftir þeirri áætlun er nú unnið. Gripið hefur verið til uppsagna, og til marks um það hversu mikil breytingin hefur verið þá voru 607 stöðugildi hjá Orkuveitunni 2008 en þau eru nú 423. Samtals eru það 184 stöðugildi sem hafa því verið aflögð. Sú breyting sem er einna sýnilegust fyrir almenningi snýr þó að gjaldskránni. Frá árinu 2010 hefur gjaldskrá fyrirtækisins sextán sinnum verið hækkuð, í smáum og stórum skömmtum. Um nokkurra ára skeið fylgdin gjaldskráin ekki verðbólgu og hafa hækkanirnar byggt á því að fylgja verðbólgu eftir, með það að markmiði að styrkja grunnreksturinn. Skýrsla úttektarnefndarinnar verður fyrst kynnt eigendum Orkuveitunnar, þ.e. Reykjavíkurborg, sem á 95 prósent hlut, og síðan Akraneskaupstað og Borgarbyggð. Eftir það verður skýrslan kynnt almenningi. Fréttastofa hefur heimildir fyrir því að Jón Gnarr, borgarstjóri, hafi fengið kynningu á skýrslunni á fundi í hádeginu í dag, en þegar fréttastofa spurði hann fregna af fundinum sagði hann þetta: „Ég get ekkert tjáð mig um þetta mál að svo stöddu."
Mest lesið Stjórnendur þurfa líka stuðning og FOBO á vinnustöðum eykst Atvinnulíf Minnsta hlutabréfavelta frá faraldursárinu 2020 Viðskipti innlent Afgreiðsla launakrafna Play fyrirhuguð 16 mánuðum eftir fallið Viðskipti innlent Magnús leiðir Stofnun atvinnuveganna Viðskipti innlent Samherji selur Margréti til Færeyja Viðskipti innlent Þrotabú Play krefur Einar um skaðabætur Viðskipti innlent Spá óbreyttum vöxtum Viðskipti innlent Olíuflæðið nálgast fyrra horf en verð lækkar ekki Viðskipti erlent Telja gagnaver skila litlum ávinningi í Noregi Viðskipti innlent Högnuðust um milljarð Viðskipti innlent Fleiri fréttir Spá óbreyttum vöxtum Minnsta hlutabréfavelta frá faraldursárinu 2020 Magnús leiðir Stofnun atvinnuveganna Samherji selur Margréti til Færeyja Afgreiðsla launakrafna Play fyrirhuguð 16 mánuðum eftir fallið Vaxtahækkunarferli lokið en langt í lækkun Ekki sjái fyrir endann á uppsögnum Þrotabú Play krefur Einar um skaðabætur Verðbólga í tveggja ára hámarki eftir að skattalækkun rann út Telja gagnaver skila litlum ávinningi í Noregi Á áttunda tug starfsmanna Netapp sagt upp Verðbólga ekki meiri í tvö ár Högnuðust um milljarð Rúmlega tuttugu sagt upp hjá ÍAV Hannes Þór, Hannes Þór og Allan greiða sér 100 milljónir í arð Uppsagnir í Arion banka Loka Krambúðinni á Húsavík Atvinnulausum Íslendingum fjölgaði um 700 á einu ári Verulegur samdráttur hjá Isavia 50skills tryggir 729 milljónir í fjármögnun Mikill munur á afkomu almannatengla Vill að ríkissáttasemjari fái auknar valdheimildir í kjaradeilu Selja fyrir 400 milljónir í Síldarvinnslunni Setja upp fjörutíu smáhýsi í Þjórsárdal Sextán starfsmönnum sagt upp á Siglufirði Vilja að 23 lóðir verði seldar undan Vatnsendaerfingja Launahækkanir gætu orðið upptaktur að harðri lendingu Tíu milljarðarnir sem ráðherra segir hafa farið til bílaleiga Sonja ráðin viðskiptastjóri hjá OK Atvinnuleysi jókst á ný í ágúst Sjá meira