Stjórnendur eignast hluti á mun lægra gengi en fjárfestar Magnús Halldórsson skrifar 23. október 2012 00:20
Framkvæmdastjórar Eimskipafélagsins hafa samið um að fá að kaupa hlutabréf í félaginu á genginu 0,839 evrur á hlut, eða sem nemur 135 krónum á hvern hlut. Samtals hafa stjórnendurnir fengið kauprétt á 8,75 milljónum hlutum í félaginu, sem jafngildir ríflega fjögurra prósenta hlut. Stjórnendurnir sex sem hafa fengið kauprétt á bréfum í félaginu eru forstjórinn Gylfi Sigfússon, Hilmar Pétur Valgarðsson, framkvæmastjóri fjármála, Bragi Þór Marinósson, alþjóðasviði, Guðmunur Nikulásson, innanlandssviði, Ásbjörn Skúlason, rekstrarsviði, og Matthías Matthíasson, á sölu og þjónustusviði. Þetta kemur fram í skráningarlýsingu Eimskipafélagsins, sem birt var á vef Nasdaq OMX kauphallar Íslands í dag. Virði bréfanna miðað við fyrrnefnd gengi er ríflega 1,1 milljarður króna, en virði bréfanna, miðað við það gengi sem fjárfestum mun bjóðast í lokuðu útboði sem fer fram dagana 23. til 25. október, er tæplega 2 milljarðar króna. Þá verður miðað við 205 til 225 krónur á hlut, en búast má við því að það verði svipað, eða lítið eitt hærra, í opna útboðinu, þar sem almenningur getur skráð sig fyrir hlutum, 30. október til 2. nóvember. Þannig fá helstu stjórnendur félagsins að eignast hlut í félaginu á umtalsvert lægra gengi en völdum fjárfestum býðst í lokuðu útboði. Við upphaf skráningar félagsins á markað er eignarhlutur stjórnenda þá þegar búinn að ávaxtast um tæplega einn milljarð, miðað við fyrrnefndar forsendur. Til stendur að selja um 50 milljónir hluta í félaginu, og taka bréf félagsins til viðskipta í kauphöllinni í nóvember. Það verður gert í fyrsta lagi 16. nóvember, að því er segir í skráningarlýsingu. Stjórn félagsins fékk heimild hluthafa Eimskipafélagsins, á hluthafafundi 27. maí 2010, til þess að gera kaupréttarsamninga við lykilstjórnendur þar sem gert er ráð fyrir, að þeir gætu eignast allt að 10 milljónir hluta, eða sem nemur fimm prósenta hlut. Eimskip hagnaðist um átta milljónir evra, tæplega 1,3 milljarða króna á gengi dagsins í dag, á fyrstu sex mánuðum ársins 2012. Heildarvelta félagsins á tímabilinu var 198 milljónir evra, um 32 milljarðar króna. Hún jókst um tíu prósent á milli ára þegar búið var að taka tillit til einskiptisliðar upp á 6,4 milljónir evra, rúman milljarð króna. Sjá má skráningarlýsinguna hér.
Mest lesið Sviptingar í stjórn Amaroq Viðskipti innlent Áhrifavaldur losar sig við steinefni Viðskipti innlent Félag Höllu fær fimmtíu milljónir í arð Viðskipti innlent Ekki króna í þrotabúi Lucky records Viðskipti innlent Ímyndaðu þér ef yfirmaðurinn væri eins og Trump Atvinnulíf ESB framlengir sérlausn Íslands vegna losunarheimilda Viðskipti innlent Greiðsluáskorun Samstarf „Þessi framlenging var ekki sjálfgefin“ Viðskipti innlent Atvinnuleysi fimm prósent í júní Viðskipti innlent Innkalla tengiltvinnbíla vegna eldhættu Neytendur Fleiri fréttir Vill tvöfalda umsvif Samkeppniseftirlitsins Atvinnuleysi fimm prósent í júní Sviptingar í stjórn Amaroq Félag Höllu fær fimmtíu milljónir í arð Icelandair tapaði fjórum milljörðum en samt með mettekjur Crowberry fjárfestir í Jónsbók Fengið 375 milljónir endurgreiddar vegna Trump-tolla Áfram lækkar íbúðaverð að raunvirði Fleiri færðu lögheimili í ár Fjögurra milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Fannar stofnar ráðgjafafyrirtæki Greenfish og samtök evrópskra útgerða kortleggja hrossamakríl Áhrifavaldur losar sig við steinefni „Nauðsynlegt að fá varanlega lausn“ Ekki króna í þrotabúi Lucky records „Þessi framlenging var ekki sjálfgefin“ ESB framlengir sérlausn Íslands vegna losunarheimilda Daníel Þór frá Kviku til Reita Húsnæðislán séu síðasta vígið en það muni falla Valgeir Örn af skjánum til Landsnets Þrjú ný í eigendahópinn á BBA//Fjeldco Ætla að opna verslunarkjarna á Korputúni Eru greiðsludreifingar virkilega jafn hentugar og allir segja? Höfðar til ábyrgðar olíufélaga og segir verðið nú þegar óeðlilegt Atvinnulausum verkamönnum fjölgar um fjörutíu prósent Tækifæri fylgi flugi frá Kína en einnig hættur Upptaka evru myndi ekki einungis hafa áhrif á vexti Opna fjórðu SPAR-verslunina á morgun Rammagerðin leitar nauðasamninga Sameinaður sjóður ætti rúma þúsund milljarða Sjá meira