Viðskipti innlent

Íbúðaverð í borginni hækkar áfram

Íbúðaverð á höfuðborgarsvæðinu heldur áfram að hækka. Vísitala íbúðaverðs á höfuðborgarsvæðinu var 341,3 stig í júní og hækkaði um 1,5% frá fyrri mánuði.

Síðastliðna 3 mánuði hækkaði vísitalan um 1,5%, síðastliðna 6 mánuði hækkaði hún um 2,6% og síðastliðna 12 mánuði hækkaði hún um 6,3%.

Þetta kemur fram á vefsíðu Þjóðskrár Íslands. Þar segir einnig að leiguverð á höfuðborgarsvæðinu hafi hækkað um 2,3% í júní miðað við fyrri mánuð eða töluvert umfram íbúðaverðið.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×