Viðskipti innlent

Stjórnvöld hafa tvær vikur til að bjarga ÍLS

Sigurður Erlingsson er forstjóri Íbúðalánasjóðs.
Sigurður Erlingsson er forstjóri Íbúðalánasjóðs.
Hætta er á að Íbúðalánasjóður (ÍLS) geti ekki staðið við afborganir af skuldabréfum sínum  nema stjórnvöld veiti sjóðnum aukið fé á næstu tveimur vikum. Útistandandi skuldabréf sjóðsins nema 529 milljörðum kr. að nafnverði.

Þetta kemur fram í frétt á Bloomberg fréttaveitunni. Þar er haft eftir Oscar Heeskerk sérfræðingi hjá matsfyrirtækinu Moody´s að hætta sé á því að Íbúðalánasjóður lendi í greiðslufalli ef íslensk stjórnvöld grípi ekki til ráðstafana til að koma í veg fyrir slíkt. Heeskerk segir að hann búist við að stjórnvöld standi við ríkisábyrgð sína á sjóðnum og að fjárfestar fái borgað. Fjárfestar þeir sem hér um ræðir eru að stærstum hluta lífeyrissjóðir landsins.

Bloomberg ræðir einnig við Sigurð Erlingsson forstjóra Íbúðalánasjóðs. Hann segir að stjórnvöld verði að ganga frá þessu máli innan tveggja vikna. Sigurður er vongóður um að nægilegt fjármagn fáist til sjóðsins í gegnum fjáraukalög á Alþingi.

Staða Íbúðalánasjóðs hefur hríðversnað á þessu ári. Eiginfjárhlutfall sjóðsins er komið niður í 1,4% en það ætti að vera 5% að lágmarki.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×