Viðskipti innlent

Hvað finnst þér um bónusgreiðslur bankamanna? Gavin Bingham svarar

Magnús Halldórsson skrifar
Gavin Bingham, fyrrverandi framkvæmdastjóri Alþjóðagreiðslubankans í Basel í Sviss, segir að huga þurfi sérstaklega að hvötunum sem bónusgreiðslur í bankageiranum á alþjóðavísu skapa. Þæri þurfi að vera í takt við ábyrga stjórnun, og vera langtímamiðaðar á góðan árangur. Sjá verði til þess að stjórnendur verði þeir fyrstu sem tapi sínu, ef illa fer í rekstrinum.

Bingham er einn þriggja sérfræðinga sem fengnir voru til þess að koma með tillögur að betri umgjörð um íslenska fjármálakerfið. Með Bingham í hópnum voru Kaarlo Jännäri, fyrrverandi framkvæmdastjóri fjármálaeftirlits Finnlands, og Jón Sigurðsson, fyrrverandi stjórnarformaður Fjármálaeftirlitsins, bankastjóri Norræna fjárfestingabankans og ráðherra.

Þeir gerðu grein fyrir helstu niðurstöðum vinnu sinnar á blaðamannafundi í ráðherrabústaðnum við Tjarnargötu í morgun.

Fréttastofa spurði Bingham eftir blaðamannafund í morgun, hvaða skoðun hann hefði á bónusgreiðslum til bankamanna, sem er umdeilt mál á alþjóðavettvangi, ekki síst vegna óbeinnar opinberrar ábyrgðar á fjármálastarfsemi, sem seðlabankar bera.

Sjá má hann svara spurningum um bónusgreiðslur, hér.

Athugið að spurningar og svör í myndbandinu eru ekki með íslenskum texta hér á vefnum.

Nánar verður rætt við Bingham í fréttum Stöðvar 2 í kvöld.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×