Viðskipti innlent

Borghildur skipuð forstjóri Einkaleyfastofu

Borghildur Erlingsdóttir hefur verið skipuð forstjóri Einkaleyfastofu til fimm ára. Þetta kemur fram á vefsíðu stjórnarráðsins.

Borghildur er með meistaragráðu frá Stanford Law School á sviði hugverkaréttar og embættispróf í lögfræði frá Háskóla Íslands. Hún hefur starfað á Einkaleyfastofu frá árinu 1997, m.a. sem deildarstjóri vörumerkja- og hönnunardeildar, sviðsstjóri lögfræðisviðs, yfirlögfræðingur stofnunarinnar og nú síðast sem settur forstjóri.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×