Ríkissjóður rekinn með 88,5 milljarða halla í fyrra 10. september 2012 09:13
Tekjuafkoma hins opinbera var neikvæð um 88,5 milljarða króna í fyrra eða 5,4% af landsframleiðslu, en án áfallinna ríkisábyrgða var hún neikvæð um 69 milljarða króna. Til samanburðar var tekjuafkoman neikvæð um 155 milljarða króna árið 2010 eða 10% af landsframleiðslu, en án áfallinna ríkisábyrgða 99 milljarða króna eða 6,5% af landsframleiðslu. Þetta kemur fram á vefsíðu Hagstofunnar. Þar segir að tekjur hins opinbera námu 681 milljarði króna og hækkuðu um 43,6 milljarða króna milli ára eða 6,8%. Sem hlutfall af landsframleiðslu mældust þær 41,9% samanborið við 41,5% 2010 og 41,0% 2009. Útgjöld hins opinbera voru 769 milljarðar króna og lækkuðu um 22,5 milljarð króna milli ára eða 2,8%, úr 51,5% af landsframleiðslu 2010 í 47,3% 2011. Án áfallinna ríkisábyrgða árin 2010 og 2011 vegna banka og lánasjóða jukust útgjöld hins opinbera hins vegar um tæpa 14 milljarða króna. Til þriggja stærstu málaflokka hins opinbera, þ.e. heilbrigðis-, fræðslu- og velferðarmála, runnu 443 milljarðar króna árið 2011 eða 57,6% útgjalda hins opinbera, en það svarar til 27,3% af landsframleiðslu. Af heildarútgjöldunum runnu 16,1% til heilbrigðismála, 16,7% til fræðslumála og 24,8% til velferðarmála. Útgjöld til heilbrigðismála voru 147,4 milljarðar króna árið 2011, eða 9,1% af landsframleiðslu. Þar af var fjármögnun hins opinbera 118,5 milljarðar króna og hlutur heimila um 29 milljarðar eða 19,6%. Á mann námu heilbrigðisútgjöld hins opinbera 372 þúsund krónum. Til fræðslumála var ráðstafað 128 milljörðum króna árið 2011, eða 7,9% af landsframleiðslu. Þar af var fjármögnun hins opinbera rúmlega 116 milljarðar króna og hlutur heimila 12 milljarðar króna, eða 9,4%. Á mann námu fræðsluútgjöld hins opinbera 365 þúsund krónum. Til almannatrygginga og velferðarmála ráðstafaði hið opinbera 191 milljarði króna 2011, eða 11,7% af landsframleiðslu en það svarar til 599 þúsund krónur á mann. Hrein peningaleg eign hins opinbera, þ.e. peningaleg eign umfram skuldir, var neikvæð um 899 milljarða króna í árslok 2011, eða sem svarar 55,3% af landsframleiðslu. Hún versnaði um 159 milljarð króna milli ára eða 7,1% af landsframleiðslu. Peningalegar eignir hins opinbera námu 1.283 milljörðum króna í árslok 2011 (78,9% af landsframleiðslu) og heildarskuldir 2.182 milljörðum króna (134,2% af landsframleiðslu).
Mest lesið Innleiðing stefnu: Það er starfsfólkið sem skorar mörkin en ekki stjórnendur Atvinnulíf Setja stefnuna á seinni hluta árs Viðskipti innlent Niceair aflýsir jómfrúarfluginu Viðskipti innlent Stækka aðrennslisgöng Sultartangastöðvar Viðskipti innlent Ósanngjarnt að skattgreiðendur borgi framkvæmdaruslið Neytendur Heiðar kjörinn stjórnarformaður Íslandsbanka Viðskipti innlent Dæmi um kolranga áætlun Skattsins Neytendur Andrew Thomas, stofnandi BetterYou talar á Læknadögum Samstarf Opinber útboð á árinu fyrir 221 milljarð króna Viðskipti innlent Veitti Vélfagi leyfi til að greiða laun Viðskipti innlent Fleiri fréttir Setja stefnuna á seinni hluta árs Niceair aflýsir jómfrúarfluginu Opinber útboð á árinu fyrir 221 milljarð króna Gagnrýna að ræða eigi pitsaostsmálið við Bændasamtökin Heiðar kjörinn stjórnarformaður Íslandsbanka Stækka aðrennslisgöng Sultartangastöðvar Kolefnisgjöld gætu bætt sex þúsund kalli við flugkostnað heimila „Biðröðin er löng“ Ákvörðunin á ábyrgð stjórnenda Icelandair en ekki flugmanna Hætta flugi til Istanbúl eftir að flugmenn drógu undanþágu til baka Grillhúsinu á Sprengisandi lokað Spá blússandi verðbólgu næstu mánuði Bein útsending: Skattadagurinn 2026 „Þennan vítahring þarf að rjúfa“ Of mikið A-vítamín í barnavítamíninu Veitti Vélfagi leyfi til að greiða laun Leggja til að Heiðar verði stjórnarformaður Íslandsbanka Skrá Styrkás í Kauphöllina á næsta ári Eigandinn greiddi sér hundruð milljóna í arð Leita að nafni á farþegamiðstöð fyrir skemmtiferðaskip Kappahl og Newbie opna á Íslandi Verðbólguaukning vegna vörugjalda: „Þetta er nú nokkuð meira en við gerðum ráð fyrir“ Vélfagsmálið beint í Hæstarétt Hulda til Basalt arkitekta Hvernig bæti ég fjárhagslegt öryggi þegar ég verð eldri? Úr útvarpinu í orkumálin Spá verulega aukinni verðbólgu vegna breytinga Skipta um forstjóra hjá Origo Segir komið í veg fyrir að starfsmenn Vélfags fái greitt Úthluta rúmlega þrjátíu þúsund tonna loðnukvóta Sjá meira