Nú er enn þá lengra í tóman tank hjá Chevrolet Aveo 19. september 2012 16:07
Chevrolet Aveo er nú fáanlegur með dísilvél sem eyðir ekki nema 3,6 lítrum á hundraðið í blönduðum akstri. Hann er öruggasti bíllinn í sínum flokki og einkar glæsilega hannaður, hlaðinn aukabúnaði og á góðu verði. Enginn bíll hefur fengið jafn háa einkunn í árekstrarprófunum líkt og Chevrolet Aveo. "Hann fékk fimm stjörnur í öllum flokkum árekstrarprófa, bæði í Evrópu og Ameríku. Þetta á við bæði hvað varðar öryggi farþega og ökumanns," segir Benedikt Eyjólfsson, framkvæmdastjóri Bílabúðar Benna. Vélin í Chevrolet Aveo er 1,3 lítra dísilvél sem gerir það að verkum að aflið er mikið, eða 95 hestöfl, sem er töluvert fyrir bíl sem vegur ekki meira en 1.200 kíló. Eldsneytiseyðsla þessarar öflugu nettu vélar er lítil, eða ekki nema 3,6 lítrar á hverja hundrað ekna kílómetra í blönduðum akstri. Í langkeyrslu eyðir hann enn minna. Stýringin er einkar stefnuföst og hún, ásamt fínstilltu fjöðrunarkerfi, skilar þér ánægjulegri akstursupplifun og nákvæmni í akstri. Í borgarakstri er fullkomið samræmi milli sparneytni og snerpu sem tryggir þægindi, afkastagetu og litla eldsneytisnotkun. Bíllinn er fimm dyra með sportlega yfirbyggingu og svipmótið er í senn glæsilegt og kraftalegt. "Það er ofsalega þéttur og flottur frágangur á öllu, þannig að tilfinningin er að maður sitji í margra milljóna króna lúxusbíl." Þótt Aveo sé á góðu verði, bjóði besta öryggi sem völ er á og sé sparneytinn, lætur Chevrolet ekki þar við sitja heldur hleður aukahlutum á bílinn. "Aveo er með cruise control, útvarpsstillingar í stýrinu og sérstakt hólf með tengi fyrir ipod eða mp3-spilara sem svo er hægt að stjórna frá stýri. Auðvitað er hann svo með rafmagn í rúðum og speglum, fjarstýrðum samlæsingum, hita í sætum, hitamæli og armpúða á ökumannssæti auk fleiri þæginda." Aveo er búinn svokallaðri startstopp-tækni sem virkar þannig að þegar stigið er á kúplinguna og bíllinn er í kyrrstöðu drepur vélin á sér, til dæmis á rauðu ljósi. Þegar kúplingunni er svo sleppt fer vélin aftur í gang. Tæknin dregur þannig úr mengun og eyðslu eldsneytis.
Mest lesið Lausnarmiðuð ferilskrá og að þora Atvinnulíf Ferjuleiðir taka við rekstri ferjunnar Baldurs Viðskipti innlent Algeng mistök sem fólk gerir þegar það sækir um starf og góð ráð Atvinnulíf Þau keyptu fyrir tuttugu milljónir í útboðinu Viðskipti innlent Íslensk fyrirtæki geti endurheimt verulegar fjárhæðir Viðskipti innlent Gervigreindin og vaxandi vítahringur nýútskrifaðra Atvinnulíf „Það fyrsta sem ég segi er „Góða morgun““ Atvinnulíf Enn fleiri rafhlöður innkallaðar Viðskipti erlent Sameining við Kviku banka mun taka langan tíma Viðskipti innlent Birta lista yfir kaupendur: Á annað þúsund keypti fyrir tuttugu milljónir Viðskipti innlent Fleiri fréttir Hálf öld af ástríðu og kappsemi – Bílabúð Benna fagnar 50 ára afmæli Hver verður Iðnaðarmaður ársins 2025 - kosning Þjónustudagur Toyota Greiðsluáskorun Myglulaust, einangrandi og hagkvæmt byggingarefni Sjá meira