Bensínverð á Íslandi fylgir ekki heimsmarkaðsverði Magnús Halldórsson skrifar 22. júní 2012 19:45
Olíuverð hefur lækkað mikið á alþjóðamörkuðum undanfarin misseri, en útsöluverð á bensíni til almennings hér á landi hefur ekki fylgt þeirri þróun. Líklegt er að bensínverð muni lækka enn frekar á næstunni. Hrávara hefur verið svo gott sem í frjálsu falli á alþjóðamörkuðum undanfarnar vikur, og er það ekki síst rakið til almennrar minnkandi eftirspurnar vegna erfiðs efnahagsástands. Þetta hefur sínar góðu hliðar fyrir almenning hér á landi, en útsöluverð á olíu og bensíni hefur farið lækkandi undanfarin misseri. En lækkunin hjá olíufélögunum til neytenda hefur þó ekki verið í samræmi við lækkunina á mörkuðum. Sé lækkunin skoðuð, og tímabilið frá 1. mars á þessu ári til dagsins í dag sérstaklega, sést að verðið á alþjóðamörkuðum hefur lækkað um tæplega 30 prósent í krónum talið. Bensínverðið til neytenda hefur hins vegar ekki fylgt þróuninni, en það var að meðaltali 254,5 krónur á lítrann 1. mars en í dag er það 241,65 krónur á lítrann. Lækkunin nemur því um 5 prósentum. Ef verðið hefði alveg stýrst af verðþróun á alþjóðamörkuðum þá ætti bensínverðið að vera tæplega 180 krónur á lítrann, eða sem nemur tæplega 60 krónum minna á hvern lítra. Eitt af því sem skýrir hvers vegna verðið hefur ekki lækkað meira til neytenda, er að gjöldin sem leggjast ofan bensínið, sveiflast ekki með verðinu á alþjóðamörkuðum. Þannig er vörugjaldið er 24,76 kr., bensíngjald 39,51kr., flutningsjöfnun 0,4 krónur og kolefnisgjald er 5 krónur, auk þess sem virðisaukaskattur leggst ofan á innkaupaverðið.
Mest lesið Ekkert blabla: „Veikindi eru ekki alltaf orsök veikindaleyfa“ Atvinnulíf Setja gjald á hraðtískuvörur Viðskipti erlent Skipta Citroën og Opel alfarið út fyrir Peugeot Viðskipti innlent „Það eru engin svik“ Viðskipti innlent Daði nýr framkvæmdastjóri hjá Coripharma Viðskipti innlent Gunnur Helgadóttir ráðin forstjóri Hrafnistu Viðskipti innlent Ráðinn framkvæmdastjóri BHM Viðskipti innlent Kerfisbilun skömmu fyrir hækkun en enginn ofgreiddi Neytendur Apple fær nýjan forstjóra Viðskipti erlent Bensínlítrinn hefur hækkað á ný Neytendur Fleiri fréttir „Það eru engin svik“ Skipta Citroën og Opel alfarið út fyrir Peugeot Tinna leiðir stefnumótun og viðskiptaþróun hjá Sjóvá Daði nýr framkvæmdastjóri hjá Coripharma Ráðinn framkvæmdastjóri BHM Gunnur Helgadóttir ráðin forstjóri Hrafnistu Eykur hlut sinn í Rafnari fyrir hálfan milljarð Arion hækkar vexti á ný Bensínverð hækkar aftur á morgun Gosdrykkjaframleiðsla Gosfélagsins hafin í Hafnarfirði Hagkerfið kólnar en er ekki í kreppu Ekki eftir neinu að slægjast í þrotabúi Slægingar Sjávarútvegurinn lækkar í kjölfar nei-sins Sýn leggur niður sjónvarpsfréttir Stefnir í fjöldagjaldþrot: Bílaleigur fengu hundruð milljóna rukkun frá Skattinum Íslandsbanki hækkar vexti Segir styttast í niðurstöður samráðs vegna kjarasamninga Elín Hirst stofnar fyrirtæki Hefur daglegt flug milli Keflavíkur og Fíladelfíu næsta sumar Hafnar því að hafa snuprað tækni- og hugverkaiðnaðinn „Hafa pakkað niður sleggjunni og eru tilbúnir að senda hana til Brussel“ Gagnrýna Viðskiptaráð fyrir að sleppa fjórðu útflutningsstoðinni Verðbólga eykst: Forsendur kjarasamninga brostnar Brynjar Már fer yfir til Corus frá Isavia Auknar tekjur og minni kostnaður Guðmundur Fertram verður sérlegur erindreki Atvinnuleysi jókst í júlí Hreiðar vill hægja á og selja Stracta-hótel Nýr og umdeildur Gotti tekinn úr loftinu Eggert skipaður forstjóri Hafrannsóknastofnunar Sjá meira