Afkoma ríkissjóðs batnar milli ára 11. júní 2012 09:14
Á fyrsta ársfjórðungi ársins var tekjuafkoma hins opinbera neikvæð um 8,1 milljarð króna sem er nokkru hagstæðari niðurstaða en á sama tíma í fyrra þegar hún var neikvæð um 11,8 milljarða króna. Þetta kemur fram á vefsíðu Hagstofunnar. Þar segir að tekjuhallinn nam 1,9% af landsframleiðslu ársfjórðungsins eða 4,6% af tekjum hins opinbera og hefur tekjuafkoman ekki verið hagstæðari síðan á öðrum ársfjórðungi 2008 á þennan mælikvarða. Heildartekjur hins opinbera hækkuðu um rúm 11% milli 1. ársfjórðungs 2011 og 2012 eða úr 160,8 milljörðum króna í 178,7 milljarða króna. Tekjuhækkunin skýrist fyrst og fremst af átta milljarða króna aukningu í tekjusköttum, fjögurra milljarða aukningu í vöru- og þjónustusköttum og tveggja milljarða króna aukningu í rekstrartekjum. Heildarútgjöld hins opinbera hækkuðu hins vegar um 8,2% á sama tíma eða úr 172,6 milljörðum króna 2011 í 186,7 milljarða króna 2012. Sú útgjaldahækkun skýrist aðallega af rúmlega fimm milljarða króna hækkun í launakostnaði, 3,3 milljarða króna hækkun í kaupum á vöru og þjónustu, þriggja milljarða hækkun á vaxtakostnaði og 2,2 milljarða króna hækkun í félagslegum tilfærslum til heimila. Heildarskuldir ríkissjóðs námu 1.897 milljörðum króna í lok 1. ársfjórðungs 2012 eða sem svarar 105,4% af áætlaðri landsframleiðslu ársins. Að teknu tilliti til peningalegra eigna var hrein peningaleg eign ríkissjóðs, þ.e. peningalegar eignir umfram skuldir, neikvæð um 750 milljarða króna í lok ársfjórðungsins eða sem svarar 41,7% af áætlaðri landsframleiðslu ársins. Til samanburðar var hrein peningaleg eign ríkissjóðs neikvæð um 39,6% af landsframleiðslu á sama ársfjórðungi 2011 og 33,6% á sama ársfjórðungi 2010. Hrein peningaleg eign ríkissjóðs hefur því versnað um 104 milljarða króna milli 1. ársfjórðungs 2011 og 2012.
Mest lesið Breytingar við Leifsstöð: Renna komumegin líka og gjaldfrjáls hálftími Viðskipti innlent Arion banki hækkar gjöld Neytendur Styrkja fjarskiptakerfið fyrir almyrkvann Neytendur Verði að hætta að benda hver á annan Viðskipti Ríkið ekki lengur ábyrgt fyrir neinum skuldum Landsvirkjunar Viðskipti innlent Ekki syrgja sumarfríið (of snemma!) Atvinnulíf TikTok næst eftir sektir á Google og AliExpress Viðskipti erlent Drægnitölurnar komu út í plús Samstarf Innkalla tengiltvinnbíla vegna eldhættu Neytendur „Nú verða allir að líta í eigin barm“ Viðskipti innlent Fleiri fréttir Breytingar við Leifsstöð: Renna komumegin líka og gjaldfrjáls hálftími Ríkið ekki lengur ábyrgt fyrir neinum skuldum Landsvirkjunar Laun hækka umfram verðbólgu Starbucks kemur í stað Kaffitárs „Nú verða allir að líta í eigin barm“ Verðbólga eykst enn Aðeins 50 hafa nýtt sér meðeignarúrræðið: „Þetta eru fimmtíu sem hafa komist í eigið húsnæði“ Kaupverð undir 80 milljónum í 60 prósent kaupsamninga Selur eftir þrjátíu og fimm ára rekstur Vill tvöfalda umsvif Samkeppniseftirlitsins Atvinnuleysi fimm prósent í júní Sviptingar í stjórn Amaroq Félag Höllu fær fimmtíu milljónir í arð Icelandair tapaði fjórum milljörðum en samt með mettekjur Crowberry fjárfestir í Jónsbók Fengið 375 milljónir endurgreiddar vegna Trump-tolla Áfram lækkar íbúðaverð að raunvirði Fleiri færðu lögheimili í ár Fjögurra milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Fannar stofnar ráðgjafafyrirtæki Greenfish og samtök evrópskra útgerða kortleggja hrossamakríl Áhrifavaldur losar sig við steinefni „Nauðsynlegt að fá varanlega lausn“ Ekki króna í þrotabúi Lucky records „Þessi framlenging var ekki sjálfgefin“ ESB framlengir sérlausn Íslands vegna losunarheimilda Daníel Þór frá Kviku til Reita Húsnæðislán séu síðasta vígið en það muni falla Valgeir Örn af skjánum til Landsnets Þrjú ný í eigendahópinn á BBA//Fjeldco Sjá meira