Viðskipti innlent

Gjaldeyrisforðinn aftur yfir 1.000 milljarða

Erlendar eignir Seðlabanka, það er gjaldeyrisforðinn, námu um 1.063 milljörðum kr. í lok maí samanborið við 942 milljarða kr. í lok apríl. Aukning forðans nemur því rúmlega 120 milljörðum kr.

Þetta kemur fram í hagtölum bankans. Skýringin á þessari aukningu milli mánaða liggur í nýlegu útboði á skuldabréfum ríkissjóðs í dollurum en alls voru seld bréf fyrir einn milljarð dollara.

Erlendar skuldir Seðlabankans námu um rúm 317 milljörðum kr. í lok maí samanborið við tæplega 325 milljarða kr. í lok apríl.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×