Mælir gegn kaupum í útboði Vodafone MÞL skrifar 30. nóvember 2012 08:00 Hlutafjárútboð Vodafone fer fram 3. desember.Fréttablaðið/Stefán
IFS greining telur að fjárfestar sem hugsa til lengri tíma eigi að halda að sér höndum í útboði á hlutabréfum í Vodafone sem fram fer þann 3. desember næstkomandi. IFS metur hluti í félaginu á 25,1 krónu og spáir því að eftir níu til tólf mánuði verði gengið 28,1 króna á hlut. Útboðsgengið verður aftur á móti á bilinu 28,8 til 33,3 krónur. Í verðmati IFS segir að verðlagningin í útboðinu bendi til þess að rekstur Vodafone hafi talsverð vaxtartækifæri á næstunni. IFS telur það hins vegar ekki réttlætanlegar forsendur og bendir meðal annars á að fyrirtækið sé lítið og í atvinnugrein sem breytist hratt og ófyrirsjáanlega. Á móti bendir IFS þó meðal annars á að fáir fjárfestingarkostir séu innan gjaldeyrishaftanna auk þess sem félagið sé hið fyrsta í sínum geira sem hægt er að fjárfesta í. Bendir IFS á að tekjur félagsins hafi verið nokkurn veginn flatar síðustu fjögur ár og ekki haldið í við verðbólgu. Þá hafi ekki verið mörkuð arðgreiðslustefna fyrir félagið en benda má á að til stendur að láta nýja eigendur félagsins, að loknu útboði, móta framtíðarstefnu þess. Miðað við virðismat IFS er hlutafjárvirði Vodafone 8,5 milljarðar króna en til samanburðar gerir útboðsgengið ráð fyrir hlutafjárvirði upp á 9,8 til 11,3 milljarða. Telur IFS að niðurstöður sínar séu sambærilegar við það sem gerist hjá samanburðarhæfum, alþjóðlegum fjarskiptafyrirtækjum.
Mest lesið „Maður er reiður og sár“ Viðskipti innlent Langflestir gera þessi mistök áður en þeir byrja að mála Samstarf Bera sig eftir viðskiptasamböndum Bakkusar Viðskipti innlent Gert að afhenda kúnnanum nýjan eyrnahreinsi með myndavél Neytendur Verðhækkanirnar vonbrigði Viðskipti innlent Ingólfur kaupir Ísbúð Vesturbæjar Viðskipti innlent Þórunn og Svali til Íslandsbanka Viðskipti innlent Uppsagnir fram undan og óttinn vex Atvinnulíf „Ég fæ oft kaffibolla í rúmið og svoleiðis stund er heilög!” Atvinnulíf Guðrún Gígja nýr yfirlögfræðingur hjá Fossum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Bera sig eftir viðskiptasamböndum Bakkusar „Maður er reiður og sár“ Verðhækkanirnar vonbrigði Guðrún Gígja nýr yfirlögfræðingur hjá Fossum Þórunn og Svali til Íslandsbanka Verðbólga eykst lítillega Ingólfur kaupir Ísbúð Vesturbæjar Vara við aðskotaefni í tei Bryndís frá Danmörku til Ölgerðarinnar Innkalla Land Rover-bíla vegna brunahættu „Þessu verður ekki breytt af Seðlabankanum einum“ Vélfagsmenn fóru bónleiðir til búðar frá Hæstarétti Setja 630 milljónir í að markaðssetja Ísland sem áfangastað Atvinnuleysi 5,6 prósent í maí Hagnaður Samherja nam um 8,5 milljörðum Stefna að uppbyggingu baðlóns og hótels í Grundarfirði Hafa samið um aukin raforkukaup á Blönduósi Ráðnir forstöðumenn hjá OK Sameining tveggja lífeyrissjóða samþykkt Gissur ráðinn framkvæmdastjóri OBHM Brynja til Fastus frá Samkaupum Efla ráðgjöf við nemendur HR um kjaramál „Hvað haldið þið að þetta kosti? Milljarða, milljarða, milljarða“ Klára kaupin á Ofar og leita að nýjum framkvæmdastjóra Laufey nýr sérfræðingur hjá Landsbankanum Eykur strandveiðikvóta og gerir vertíðina þá „stærstu frá upphafi“ Tæplega 4,6 milljarða tap á rekstri borgarinnar Lægsta matvöruverðið enn oftast að finna í Prís Rakel nýr framkvæmdastjóri hjá Íslandsbanka Segir ríkar ástæður fyrir því að flugmenn eigi að vera vel launaðir Sjá meira