Óskýr skilaboð frá stjórn Íbúðalánasjóðs MÞL skrifar 30. nóvember 2012 08:00 Jóhann Ársælsson
Engin ákvörðun hefur verið tekin hjá Íbúðalánasjóði um að hætta útgáfu skuldabréfa í núverandi flokkum húsnæðisbréfa (HHF). Þetta kemur fram í tilkynningu frá stjórn sjóðsins. Bar stjórnin þannig til baka þá fullyrðingu Jóhanns Ársælssonar stjórnarformanns í viðtali við vefsíðu Morgunblaðsins á miðvikudagskvöld að stjórn Íbúðalánasjóðs hefði ákveðið að útgáfu óuppgreiðanlegra húsnæðisbréfa væri lokið. Ræddi vefsíðan við Jóhann í kjölfar stjórnarfundar fyrr um daginn. Viðtalið við Jóhann birtist á vefsíðunni rétt eftir klukkan 20 en þegar klukkan var 44 mínútur gengin í þrjú nóttina eftir barst fyrrnefnd tilkynning frá stjórninni. Þar segir að engin ákvörðun hafi verið tekin um að nýta núverandi skuldabréfaflokka ekki áfram. Þá er ástæða þess að Íbúðalánasjóður hefur ekki gefið út ný skuldabréf frá því í janúar sögð vera sterk lausafjárstaða sjóðsins. Nokkuð hefur verið fjallað um erfiða fjárhagsstöðu Íbúðalánasjóðs að undanförnu en ríkisstjórnin samþykkti á þriðjudag að leggja sjóðnum til 13 milljarða til að treysta eiginfjárstöðu hans. Ein helsta orsök vandræða sjóðsins er sú að lántakendur hjá sjóðnum hafa síðustu misseri greitt upp fjölda lána en sjóðurinn getur ekki á móti greitt upp skuldabréf sín. Þannig bera eignir hans, lánin, ekki nægilega vexti til að standa undir skuldum hans.
Mest lesið Skims opnar í Kringlunni Viðskipti innlent „Listamaðurinn“ leitar að þeim bestu í íslensku atvinnulífi Framúrskarandi fyrirtæki EX60: Sumarást eða samband til frambúðar Samstarf Hafi ekki sérhagsmuni að leiðarljósi um skráningarskyldu fjölmiðla Viðskipti innlent Nýir veitingastaðir opnaðir á Hilton Reykjavík og Hótel Reykjavík Öskju Viðskipti innlent Uggandi yfir afstöðu VR Viðskipti innlent Aukin skattheimta og aukin samkeppni í boði ríkisins Viðskipti innlent Bein útsending: Rökstyðja stýrivaxtaákvörðun sína Viðskipti innlent Tölvuþrjótarnir hafi ekki komist yfir kortanúmer Viðskipti erlent Stýrivextir áfram átta prósent Viðskipti innlent Fleiri fréttir Hafi ekki sérhagsmuni að leiðarljósi um skráningarskyldu fjölmiðla Skims opnar í Kringlunni Aukin skattheimta og aukin samkeppni í boði ríkisins Nýir veitingastaðir opnaðir á Hilton Reykjavík og Hótel Reykjavík Öskju Uggandi yfir afstöðu VR Bein útsending: Rökstyðja stýrivaxtaákvörðun sína Stýrivextir áfram átta prósent Sonur Kristjáns í hans stað á hvalveiðiráðstefnu Vill að þak verði sett á álagningu olíufélaga Eru ríkisskuldabréfasjóðir öruggir? Tæplega þrjátíu sagt upp Ákveða í kvöld hvort kjarasamningum verði sagt upp Ráðinn sviðsstjóri og staðgengill forstjóra Fastus Ganga til sáttaviðræðna við Samkeppniseftirlitið Langþráður draumur að verða að veruleika í Kísildal Breytingar á vetraropnun miðstöðvarinnar í Kerlingarfjöllum kynntar Klíníkin sótti 300 milljónir króna 181 starfsmanni sagt upp í sex hópuppsögnum Enn eitt gjaldþrot Helga: Ekkert í boði í Veislunni Kaupir Malbiksstöðina á fimm milljarða Tuttugu sagt upp í fiskvinnslu í Reykjanesbæ Borga hálfan milljarð í viðbót fyrir indverskt félag „Hlutir sem við vorum ekki sammála um“ Hörður hættir sem forstjóri Landsvirkjunar Bein útsending: Ársfundur Samtaka atvinnulífsins Enn lækkar Ísland í nýsköpunarvísitölunni Boðaði til starfsmannafundar og mætti í stjórnarráðið Helgi í Góu greiðir sér 130 milljónir Opna fljótlega fyrir umsóknir vegna ráðstöfunar séreignar Magnús er nýr sviðsstjóri ráðgjafarsviðs KPMG Sjá meira