Viðskipti innlent

Stjóri Boreas ákærður fyrir 12 milljóna svik

Sérstakur saksóknari hefur gefið út ákæru á hendur Ragnari Þórissyni, sjóðsstjóra og stofnanda vogunarsjóðsins Boreas Capital, fyrir skattsvik.

Í ákærunni er Ragnari gefið að sök að hafa ekki talið fram 120 milljóna króna fjármagnstekjur árið 2007, sem hafi verið til komnar vegna uppgjörs tveggja framvirkra skiptasamninga við MP banka. Þannig hafi hann komist undan tólf milljóna króna skattgreiðslu. Ákæran verður þingfest á fimmtudag.

Boreas Capital var með útibú víða um Evrópu og var nátengdur fjárfestingabankanum Straumi, sem var stórum hluta í eigu Björgólfs Thors Björgólfssonar. - sh






Fleiri fréttir

Sjá meira


×