Eimskip er metið á allt að 45 milljarða 17. október 2012 06:00 Heildareignir Eimskips voru um 48 milljarðar króna um mitt ár 2012 og eiginfjárhlutfall félagsins 61,6 prósent. Eimskip átti tæpa 4,4 milljarða króna í handbæru fé í lok júní síðastliðins. fréttablaðið/pjetur
Hlutabréf í Eimskip verða tekin til viðskipta í byrjun næsta mánaðar. Skráningarlýsing liggur fyrir á næstu dögum. Verðbil í útboði verður 205 til 225 krónur. Tuttugu prósent verða seld til fagfjárfesta og þrjú til fimm prósent til almennings. Hlutabréf í Eimskip verða tekin til viðskipta í Kauphöllinni fyrri hluta nóvembermánaðar, samkvæmt heimildum Fréttablaðsins. Fyrst verður 20 prósenta hlutur seldur til fagfjárfesta í lokuðu útboði þar sem verðbilið verður 205 til 225 krónur á hlut. Lokagengið mun síðan ráðast af þeim tilboðum sem berast í hlutinn. Í kjölfarið á að selja þriggja til fimm prósenta hlut í almennu útboði. Skráningarlýsing verður birt á allra næstu dögum. Miðað við verðbilið er heildarvirði útgefins hlutafjár í Eimskip 41 til 45 milljarðar króna. Þrotabú Landsbanka Íslands mun selja 20 prósenta hlut en aðrir hluthafar, meðal annars Straumur fjárfestingabanki, munu selja það sem upp á vantar. Heimildir Fréttablaðsins herma að bandaríski fjárfestingasjóðurinn Yucaipa ætli sér ekki að selja stóran hlut að þessu sinni. Eimskip gekk í gegnum fjárhagslega endurskipulagningu eftir bankahrunið. Í kjölfar hennar urðu helstu eigendur félagsins þrotabú Landsbankans og bandaríski fjárfestingasjóðurinn Yucaipa. Stjórn Eimskips ákvað í desember síðastliðnum að hafinn skyldi undirbúningur að skráningu félagsins á hlutabréfamarkað. Hún átti að eiga sér stað á seinni hluta þessa árs. Í maí var Íslandsbanka og Straumi fjárfestingabanka falið að undirbúa skráninguna. Hlutafé var síðan aukið í júlí og er nú 200 milljónir króna að nafnvirði. Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins er skráningarlýsing nánast tilbúin og verður birt á allra næstu dögum. Stefnt er að því að lokað hlutafjárútboð fyrir fagfjárfesta verði haldið skömmu síðar og útboð fyrir almenning í kjölfarið. Fréttastofa Stöðvar 2 greindi frá því í sumar að lykilstjórnendur Eimskipafélagsins myndu fá að eignast hlut í félaginu á mun lægra gengi en áætlað væri að skrá félagið á. Gert er ráð fyrir að þeir fái að eignast 700 þúsund hluti í Eimskip. Eimskip hagnaðist um átta milljónir evra, tæplega 1,3 milljarða króna á gengi dagsins í dag, á fyrstu sex mánuðum ársins 2012. Heildarvelta félagsins á tímabilinu var 198 milljónir evra, um 32 milljarðar króna. Hún jókst um tíu prósent á milli ára þegar búið var að taka tillit til einskiptisliðar upp á 6,4 milljónir evra, rúman milljarð króna. thordur@frettabladid.is
Mest lesið Boða lækkanir í Bónus og Hagkaupum með nýju samstarfi Neytendur Stefna Rannís vegna neitunar um endurgreiðslu Viðskipti innlent Simmi Vill festir kaup á Mosfellingi Viðskipti innlent Eftirlitið útiloki samruna Kviku og stærri banka Viðskipti innlent Kvika lækkar hressilega í fyrstu viðskiptum Viðskipti innlent Stundum þarf einfaldlega að segja: „Afsakaðu þetta“ Atvinnulíf Þrír bætast í eigendahópinn hjá LEX Viðskipti innlent Spá aukinni verðbólgu í apríl Viðskipti innlent Innkalla Smash Style hamborgara vegna salmonellu Viðskipti innlent Ársfundur Orkuveitunnar í beinni á Vísi Viðskipti innlent Fleiri fréttir Stefna Rannís vegna neitunar um endurgreiðslu Ársfundur Orkuveitunnar í beinni á Vísi Simmi Vill festir kaup á Mosfellingi Innkalla Smash Style hamborgara vegna salmonellu Eftirlitið útiloki samruna Kviku og stærri banka Bein útsending: Staða orkumála vegna stríðsátaka í Mið-Austurlöndum Þrír bætast í eigendahópinn hjá LEX Spá aukinni verðbólgu í apríl Kvika lækkar hressilega í fyrstu viðskiptum Arion banki og Kvika blása af samrunann Bein útsending: Ísland 2036: Fjártæknieyjan og framtíðin Markaðsstjóri Domino's á Íslandi hættur Jóhann Ingi til Securitas Umsóknum synjað og kurr í greininni Gagnastuldur af Booking sé fullkomið hráefni í markviss netsvik Heimilar ráðherra að ákvarða hámarksverð eldsneytis Vilja að skattahvatar fyrir tækni- og hugverkaiðnað verði festir í sessi Ríflega 7.500 sóttu um 200 sumarstörf Ráðinn framkvæmdastjóri Betri samgangna Eimskip ákært vegna sölu tveggja skipa Yngri en 30 ára neikvæðust í garð annarra samgöngumáta en einkabíls Máttu fella úr gildi skráningu Stripadvisor Spá enn vaxtahækkun í maí Valdís tekur við sem formaður KÍÓ Lækka vask á eldsneyti og sjá til þess að verðlækkanir skili sér strax Nýr forstjóri Deloitte fundinn Fyrirkomulagið beinlínis til að komast fram hjá lögum Kynna aðgerðir gegn verðbólgu á morgun Origo kaupir Maven Áfrýja og segja dóminn ekki skýra viðvarandi óvissu Sjá meira