Nýjar höfuðstöðvar kostuðu 8,5 milljarða króna 11. október 2012 00:00
Árið 1999 var ákveðið að byggja nýjar höfuðstöðvar OR við Bæjarháls í Reykjavík. Byggingin átti upphaflega að kosta um tvo milljarða króna. Boðað var til sérstaks blaðamannafundar vegna mikillar umræðu um kostnað við byggingu hússins í janúar 2005. Þar upplýstu Guðmundur Þóroddsson og Alfreð Þorsteinsson, forstjóri og stjórnarformaður OR á þeim tíma, að heildarkostnaður hefði verið um 4,2 milljarðar króna. Alfreð sagði á fundinum að kostnaðurinn „væri ekki nema rétt rúmlega það sem gerðist í vandaðri grunnskólabyggingu í Reykjavík". Úttektarnefndin kemst að þeirri niðurstöðu að þessar tölur séu fjarri lagi. Kostnaður við byggingu nýrra höfuðstöðva OR var 8,5 milljarðar króna á verðlagi ársins 2010, 5,2 milljörðum króna umfram söluverð fasteigna sem áður hýstu höfuðstöðvar fyrirrennara hennar. Í skýrslunni segir að „af framangreindum upplýsingum er ljóst að bygging höfuðstöðva Orkuveitu Reykjavíkur fór fram úr þeim áætlunum sem gerðar voru um byggingarkostnað, hvort heldur miðað er við upphaflega áætlun, síðari áætlanir eða þær upplýsingar sem kynntar voru fjölmiðlum í janúar 2005 um endanlegan kostnað byggingarinnar". Auk þess vakti það athygli nefndarinnar að stjórn OR virtist sama sem ekkert hafa fjallað um byggingu höfuðstöðvanna. Í dag nýtir OR ekki nema hluta af höfuðstöðvunum og hefur hug á að selja þær að hluta eða öllu leyti.
Mest lesið Samherji gæti tvöfaldast Viðskipti innlent Hámark tvær vikur í heilsutengd áramótaheit með eiginkonunni Atvinnulíf Gert að afhenda búslóðina eftir að hafa haldið henni í gíslingu Neytendur Eldsneytisverð gæti lækkað um tugi króna á nýju ári Neytendur Komst ekki á toppinn og bótakröfunni hafnað Neytendur Bandaríkjamenn banna innflutning dróna Viðskipti erlent Range Rover Sport er lúxusjeppi sem tekið er eftir Samstarf Fær íshellaferð ekki endurgreidda Neytendur Landsbankinn sýknaður af öllum kröfum í Vaxtamálunum Neytendur Bíóstólarnir í Álfabakka til sölu Viðskipti innlent Fleiri fréttir Samherji gæti tvöfaldast Bíóstólarnir í Álfabakka til sölu Bærinn bótaskyldur og þarf að bjóða líkamsræktarstöð út aftur Flogin frá Icelandair til Nova Virðist ekki vera hægt á Íslandi Minni líkur á vaxtalækkun: „Þeim verður vandi á höndum, seðlabankafólkinu“ Skattleysismörk barna yngri en 16 ára hækka Frosti og Arnþrúður fá styrki Verðbólga eykst verulega Hefja sölu á fyrstu hliðstæðu við Simponi í heiminum Stefán útvarpsstjóri gáttaður á Stefáni útvarpsstjóra Framkvæmdastjóri Lyfjavals hættur Eyða óvissu á lánamarkaði strax á mánudag Ljúka kaupum á Hreinsitækni og HRT þjónustu Gréta María um starfslokin: „Ég geng stolt frá borði“ Síminn fær heimild til að reka áfram 2G og 3G þjónustu Breyta nafni Ölgerðarinnar Jón Ingi nýr forstjóri PwC Tekur við sem hagfræðingur Viðskiptaráðs Gréta María óvænt hætt hjá Prís Ráðinn nýr fjármála- og rekstrarstjóri Lyfja og heilsu Þrír eða færri skoða eign í fyrstu viku á sölu Byrjunarverð hjá NiceAir tæplega sextíu þúsund krónur Leigan rukkuð mánaðarlega en ekki í lokin Frá Logos til Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi Alcoa stefnir Eimskip að nýju í samráðsmáli Aron Kristinn stofnar goðsagnakennt fyrirtæki Vill verða stjórnarformaður Íslandsbanka: „Hvaða sirkus er þetta?“ Geta þurft að greiða hátt verð fyrir póstsendar gjafir Segja ráðherra fórna íslenskum hagsmunum í makrílsamningi Sjá meira