Viðskipti innlent

Ráðist í miklar hagræðingaraðgerðir

Birtíngur Félög í eigu Hreins Loftssonar eiga meirihlutann í Birtíngi. 365 miðlar eiga 16,5 prósenta beinan hlut í félaginu.
Birtíngur Félög í eigu Hreins Loftssonar eiga meirihlutann í Birtíngi. 365 miðlar eiga 16,5 prósenta beinan hlut í félaginu.
Útgáfufélagið Birtíngur tapaði 20,9 milljónum króna í fyrra. Það tap bætist við 55,9 milljóna króna tap þess árið áður. Eigið fé Birtíngs var neikvætt um 83,2 milljónir króna um síðustu áramót. Þetta kemur fram í nýbirtum ársreikningi félagsins. Birtíngur gefur meðal annars út Mannlíf, Vikuna, Hús og híbýli og Séð og heyrt. Félagið er að mestu í eigu félaga Hreins Loftssonar en auk þess eiga 365 miðlar 16,9 prósenta beinan hlut í því.

Rekstrartekjur Birtíngs drógust saman um tólf milljónir króna á síðasta ári og voru 614 milljónir króna. Félagið skuldaði samtals 342,3 milljónir króna en eignir þess voru metnar á 259,1 milljón króna. Í skýringu í ársreikningi Birtíngs þar sem fjallað er um óvisst rekstrarhæfi félagsins segir að „þrátt fyrir að tap hafi verið af rekstri félagsins og að eigið fé sé neikvætt í árslok eru vísbendingar um að viðsnúningur hafi orðið á rekstrinum eftir umtalsverðar skipulagsbreytingar og hagræðingaraðgerðir ásamt með sölu á tapseiningum. […] Samt sem áður telur stjórn félagsins brýnt að vinna áfram að fjárhagslegri endurskipulagningu félagsins í því skyni að tryggja rekstrarhæfi þess. Frá áramótum 2012 hafa verið gerðir nýir samningar við helstu lánardrottna og áfram hefur verið unnið að hagræðingu í rekstri."



Uppfært: Skipting hlutafjár í Birtingi

Í frétt í Markaðnum um útgáfufélagið Birting er ekki farið að öllu leyti rétt með skiptingu hlutafjár í félaginu.

Hreinn Loftsson, aðaleigandi Birtings, segir að breytingar hafi orðið á skiptingu hlutafjár innan félagsins í mars og maí á þessu ári. Í kjölfarið er Hjálmur ehf. eigandi að 56,19 prósent hlut í Birtingi. Eigendur Hjálms eru félag í eigu Hreins Loftssonar sem á 52,71 prósent og 365 miðlar sem á 47,3 prósent. Ef hlutafé Hjálms í Birtingi yrði skipt niður á eigendur Hjálms myndi eignarhlutur 365 miðla í Birtingi vera 26,57 prósent.

Aðrir eigendur Birtings eru félag í eigu Hreins með 35,73 prósent  auk þess sem Birtingur á 8,07 prósent í sjálfu sér eftir breytingarnar.

- þsj






Fleiri fréttir

Sjá meira


×