Eignir FSÍ hækkuðu um fimmtán milljarða 26. september 2012 11:00 FramkvæmdastjóriBrynjólfur Bjarnason var ráðinn framkvæmdastjóri FSÍ í mars síðastliðnum. Hann tók þá við starfinu af Finnboga Jónssyni. Brynjólfur var áður forstjóri Símans og síðar Skipta á árunum 2002-2010.
Framtakssjóður Íslands (FSÍ) hagnaðist um 1,5 milljarða króna á fyrstu sex mánuðum ársins 2012. Sjóðurinn metur virði eigna sinna á 47,1 milljarð króna og eigið fé hans í lok júní síðastliðins nam 32,3 milljörðum króna. Virði eigna FSÍ var því metið um 15 milljörðum króna meira en þær eignir voru keyptar á. Allur rekstrarhagnaður FSÍ stafar af hækkun á markaðsvirði 19 prósenta eignarhlutar hans í Icelandair sem hefur hækkað mikið í verði það sem af er ári. Þetta kemur fram í útdrætti úr uppgjöri FSÍ sem Markaðurinn hefur undir höndum. Stærsti einstaki eigandi FSÍ er Landsbankinn með 27,6 prósenta hlut. Aðrir eigendur hans eru 16 lífeyrissjóðir og VÍS. Sjóðurinn hagnaðist um 2,3 milljarða króna á árinu 2011 og var þorri þess hagnaðar vegna sölu á tíu prósenta hlut í Icelandair í nóvember á því ári á 2,7 milljarða króna. Hluturinn hafði þá ávaxtast um 120 prósent frá því hann var keyptur. Hópurinn sem keypti hlutinn var að mestu sömu lífeyrissjóðirnir og eiga í FSÍ. Eftir söluna átti FSÍ áfram 19 prósenta hlut í Icelandair. Brynjólfur Bjarnason, framkvæmdastjóri FSÍ, segir afkomuna aðallega vera vegna hækkandi gengis hlutabréfa í því félagi. Gengi Icelandair var um fimm krónur á hlut um síðustu áramót en 6,61 króna á hlut í lok uppgjörstímabilsins. Gengi bréfanna í dag er um sjö krónur á hlut. Því er ljóst að eignarhlutur FSÍ í flugfélaginu hefur þegar skilað sjóðnum enn meiri virðisaukningu. Eignir FSÍ eru nú metnar á 47 milljarða króna. Brynjólfur segir það 15 milljörðum krónum meira en kaupverð þeirra. Hann hefur einnig mikla trú á öðrum eignum sjóðsins. „Framtakssjóðurinn á nú 45 prósent í N1 og við bindum miklar vonir við að sú fjárfesting reynist hagkvæm fyrir sjóðinn. Unnið er að krafti að skráningu Vodafone á hlutabréfamarkað, en það verður fyrsta skráning félags í eigu sjóðsins í kauphöll."
Mest lesið EX60: Sumarást eða samband til frambúðar Samstarf Skims opnar í Kringlunni Viðskipti innlent „Listamaðurinn“ leitar að þeim bestu í íslensku atvinnulífi Framúrskarandi fyrirtæki Hafi ekki sérhagsmuni að leiðarljósi um skráningarskyldu fjölmiðla Viðskipti innlent Nýir veitingastaðir opnaðir á Hilton Reykjavík og Hótel Reykjavík Öskju Viðskipti innlent Aukin skattheimta og aukin samkeppni í boði ríkisins Viðskipti innlent Tölvuþrjótarnir hafi ekki komist yfir kortanúmer Viðskipti erlent Uggandi yfir afstöðu VR Viðskipti innlent Stýrivextir áfram átta prósent Viðskipti innlent Kröfum Musks gegn OpenAI hafnað Viðskipti erlent Fleiri fréttir Hafi ekki sérhagsmuni að leiðarljósi um skráningarskyldu fjölmiðla Skims opnar í Kringlunni Aukin skattheimta og aukin samkeppni í boði ríkisins Nýir veitingastaðir opnaðir á Hilton Reykjavík og Hótel Reykjavík Öskju Uggandi yfir afstöðu VR Bein útsending: Rökstyðja stýrivaxtaákvörðun sína Stýrivextir áfram átta prósent Sonur Kristjáns í hans stað á hvalveiðiráðstefnu Vill að þak verði sett á álagningu olíufélaga Eru ríkisskuldabréfasjóðir öruggir? Tæplega þrjátíu sagt upp Ákveða í kvöld hvort kjarasamningum verði sagt upp Ráðinn sviðsstjóri og staðgengill forstjóra Fastus Ganga til sáttaviðræðna við Samkeppniseftirlitið Langþráður draumur að verða að veruleika í Kísildal Breytingar á vetraropnun miðstöðvarinnar í Kerlingarfjöllum kynntar Klíníkin sótti 300 milljónir króna 181 starfsmanni sagt upp í sex hópuppsögnum Enn eitt gjaldþrot Helga: Ekkert í boði í Veislunni Kaupir Malbiksstöðina á fimm milljarða Tuttugu sagt upp í fiskvinnslu í Reykjanesbæ Borga hálfan milljarð í viðbót fyrir indverskt félag „Hlutir sem við vorum ekki sammála um“ Hörður hættir sem forstjóri Landsvirkjunar Bein útsending: Ársfundur Samtaka atvinnulífsins Enn lækkar Ísland í nýsköpunarvísitölunni Boðaði til starfsmannafundar og mætti í stjórnarráðið Helgi í Góu greiðir sér 130 milljónir Opna fljótlega fyrir umsóknir vegna ráðstöfunar séreignar Magnús er nýr sviðsstjóri ráðgjafarsviðs KPMG Sjá meira