Ríkisábyrgð tímabundin og rennur út 2014 14. september 2012 08:45 Ríkisstjórn Geirs H. Haarde gaf út pólitíska yfirlýsingu um allsherjarábyrgð á innlendum innstæðum sama dag og neyðarlögin voru sett. fréttablaðið/anton
Á næstu misserum verður hugað að því hvenær og með hvaða hætti yfirlýsing um ótakmarkaða ríkisábyrgð á öllum innlendum innstæðum verður dregin til baka. Þetta kemur fram í svari fjármálaráðuneytisins við fyrirspurn Fréttablaðsins um málið. Ríkisstjórn Íslands gaf út yfirlýsingu þann 6. október 2008, sama dag og neyðarlögin voru sett á Íslandi, sem áréttaði að „innstæður í innlendum viðskiptabönkum og útibúum þeirra hér á landi verða tryggðar að fullu". Yfirlýsingin var endurtekin 3. febrúar 2009 og ítrekuð í desember sama ár. Þá var sagt: „yfirlýsingin verður ekki afnumin fyrr en hið nýja íslenska fjármálakerfi, með breyttri umgjörð, hefur sannað sig og þá verður gefinn aðlögunartími". Reynt hefur á ábyrgð ríkisins á innstæðum. Innstæður fallinna fjármálafyrirtækja hafa verið færðar til annarrar innlánsstofnunar ásamt eignum sem áttu að mæta þeim. Þar sem eignirnar hafa ekki dugað fyrir innstæðum, líkt og þegar innstæður Sparisjóðs Keflavíkur voru færðar til Landsbankans, hefur ríkið greitt það sem upp á hefur vantað. Í tilfelli Sparisjóðs Keflavíkur mun meðgjöfin kosta skattgreiðendur um 26 milljarða króna með vöxtum. Í ákvörðun Eftirlitsstofnunar EFTA (ESA) um að ríkisaðstoð við nýju bankana þrjá væri leyfileg, sem birt var í heild í síðustu viku, kemur fram að samþykki stofnunarinnar á ótakmarkaðri ríkisábyrgð á innstæðum sé „tímabundin og rennur út í árslok 2014". Í svari fjármálaráðuneytisins við fyrirspurn Fréttablaðsins um hvort til standi að fella ábyrgðina úr gildi kemur fram að „það, hvort stjórnvöld dragi til baka yfirlýsingar um ábyrgð á öllum innstæðum er í raun óháð framgangi frumvarps um innstæðutryggingar. Hafin er sjóðssöfnun í nýju innstæðutryggingakerfi. Því er tímabært – burtséð frá væntanlegu frumvarpi – að huga að því á næstu misserum hvenær og með hvaða hætti yfirlýsingin verði dregin til baka, enda ætlunin frá upphafi að hún gilti tímabundið.[…]Við undirbúning síðasta heildstæða frumvarps um innstæðutryggingar var sérstaklega tekið fram í minnisblaði til efnahags- og viðskiptanefndar að nauðsynlegt væri að taka yfirlýsinguna frá október 2008 til endurskoðunar ef frumvarpið stefndi í að verða að lögum." thordur@frettabladid.is
Mest lesið Aðeins 50 hafa nýtt sér meðeignarúrræðið: „Þetta eru fimmtíu sem hafa komist í eigið húsnæði“ Viðskipti innlent Verðbólga eykst enn Viðskipti innlent „Nú verða allir að líta í eigin barm“ Viðskipti innlent Áhrifavaldur losar sig við steinefni Viðskipti innlent Selur eftir þrjátíu og fimm ára rekstur Viðskipti innlent Drægnitölurnar komu út í plús Samstarf Ekki króna í þrotabúi Lucky records Viðskipti innlent Innkalla tengiltvinnbíla vegna eldhættu Neytendur Ímyndaðu þér ef yfirmaðurinn væri eins og Trump Atvinnulíf „Þessi framlenging var ekki sjálfgefin“ Viðskipti innlent Fleiri fréttir Starbucks kemur í stað Kaffitárs „Nú verða allir að líta í eigin barm“ Verðbólga eykst enn Aðeins 50 hafa nýtt sér meðeignarúrræðið: „Þetta eru fimmtíu sem hafa komist í eigið húsnæði“ Kaupverð undir 80 milljónum í 60 prósent kaupsamninga Selur eftir þrjátíu og fimm ára rekstur Vill tvöfalda umsvif Samkeppniseftirlitsins Atvinnuleysi fimm prósent í júní Sviptingar í stjórn Amaroq Félag Höllu fær fimmtíu milljónir í arð Icelandair tapaði fjórum milljörðum en samt með mettekjur Crowberry fjárfestir í Jónsbók Fengið 375 milljónir endurgreiddar vegna Trump-tolla Áfram lækkar íbúðaverð að raunvirði Fleiri færðu lögheimili í ár Fjögurra milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Fannar stofnar ráðgjafafyrirtæki Greenfish og samtök evrópskra útgerða kortleggja hrossamakríl Áhrifavaldur losar sig við steinefni „Nauðsynlegt að fá varanlega lausn“ Ekki króna í þrotabúi Lucky records „Þessi framlenging var ekki sjálfgefin“ ESB framlengir sérlausn Íslands vegna losunarheimilda Daníel Þór frá Kviku til Reita Húsnæðislán séu síðasta vígið en það muni falla Valgeir Örn af skjánum til Landsnets Þrjú ný í eigendahópinn á BBA//Fjeldco Ætla að opna verslunarkjarna á Korputúni Eru greiðsludreifingar virkilega jafn hentugar og allir segja? Höfðar til ábyrgðar olíufélaga og segir verðið nú þegar óeðlilegt Sjá meira
Aðeins 50 hafa nýtt sér meðeignarúrræðið: „Þetta eru fimmtíu sem hafa komist í eigið húsnæði“ Viðskipti innlent
Aðeins 50 hafa nýtt sér meðeignarúrræðið: „Þetta eru fimmtíu sem hafa komist í eigið húsnæði“ Viðskipti innlent