Skoða afnám ríkisábyrgðar 14. september 2012 11:00
Stjórnvöld eru farin að huga að því að afnema allsherjarábyrgð á bankainnstæðum. Hún hefur verið í gildi í fjögur ár. Ábyrgðin kostaði ríkissjóð 26 milljarða króna þegar innstæður Sparisjóðs Keflavíkur voru fluttar. Stjórnvöld eru farin að huga að því að draga til baka yfirlýsingu sína um ótakmarkaða ríkisábyrgð á innstæðum í innlendum viðskiptabönkum og sparisjóðum. Þetta kemur fram í svari fjármálaráðuneytisins við fyrirspurn Fréttablaðsins um málið. Yfirlýsingin hefur verið í gildi í tæp fjögur ár. Yfirlýsing um ótakmarkaða ábyrgð á innlendum innstæðum var gefin út 6. október 2008, sama dag og neyðarlög voru sett í landinu. Þau lög gerðu innstæður að forgangskröfum og tryggðu því að eignir föllnu bankanna fóru fyrst í að mæta innstæðum áður en aðrir kröfuhafar fengu nokkuð fyrir sinn snúð. Yfirlýsingin er ekki hefðbundin ríkisábyrgð heldur pólitísk yfirlýsing sem hefur fyrst og fremst þann tilgang að eyða ótta innstæðueigenda um að þeir fái ekki innstæður sínar greiddar ef banki lendir í greiðsluvanda. Ríkissjóður hefur þó þegar lagt út háar fjárhæðir á grundvelli hinnar pólitísku yfirlýsingar. Þegar innstæður Sparisjóðs Keflavíkur voru færðar til Landsbankans, og eignir hans dugðu ekki til að mæta þeim, þurftu skattgreiðendur að greiða 26 milljarða króna að vöxtum meðtöldum til Landsbankans. Í nýlegri ákvörðun Eftirlitsstofnunar EFTA (ESA) kemur fram að samþykki stofnunarinnar á ótakmarkaðri ríkisábyrgð á innstæðum á Íslandi sé „tímabundið og rennur út í árslok 2014". Fréttablaðið óskaði eftir því við fjármálaráðuneytið að fá að vita hvort til stæði að afnema ábyrgðina. Í svari þess kemur fram að „tímabært [sé] – burtséð frá væntanlegu frumvarpi – að huga að því á næstu misserum hvenær og með hvaða hætti yfirlýsingin verði dregin til baka, enda ætlunin frá upphafi að hún gilti tímabundið".-þsj /sjá síðu 8
Mest lesið Aðeins 50 hafa nýtt sér meðeignarúrræðið: „Þetta eru fimmtíu sem hafa komist í eigið húsnæði“ Viðskipti innlent Verðbólga eykst enn Viðskipti innlent Áhrifavaldur losar sig við steinefni Viðskipti innlent Selur eftir þrjátíu og fimm ára rekstur Viðskipti innlent Drægnitölurnar komu út í plús Samstarf Ekki króna í þrotabúi Lucky records Viðskipti innlent Innkalla tengiltvinnbíla vegna eldhættu Neytendur Ímyndaðu þér ef yfirmaðurinn væri eins og Trump Atvinnulíf „Þessi framlenging var ekki sjálfgefin“ Viðskipti innlent ESB framlengir sérlausn Íslands vegna losunarheimilda Viðskipti innlent Fleiri fréttir Verðbólga eykst enn Aðeins 50 hafa nýtt sér meðeignarúrræðið: „Þetta eru fimmtíu sem hafa komist í eigið húsnæði“ Kaupverð undir 80 milljónum í 60 prósent kaupsamninga Selur eftir þrjátíu og fimm ára rekstur Vill tvöfalda umsvif Samkeppniseftirlitsins Atvinnuleysi fimm prósent í júní Sviptingar í stjórn Amaroq Félag Höllu fær fimmtíu milljónir í arð Icelandair tapaði fjórum milljörðum en samt með mettekjur Crowberry fjárfestir í Jónsbók Fengið 375 milljónir endurgreiddar vegna Trump-tolla Áfram lækkar íbúðaverð að raunvirði Fleiri færðu lögheimili í ár Fjögurra milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Fannar stofnar ráðgjafafyrirtæki Greenfish og samtök evrópskra útgerða kortleggja hrossamakríl Áhrifavaldur losar sig við steinefni „Nauðsynlegt að fá varanlega lausn“ Ekki króna í þrotabúi Lucky records „Þessi framlenging var ekki sjálfgefin“ ESB framlengir sérlausn Íslands vegna losunarheimilda Daníel Þór frá Kviku til Reita Húsnæðislán séu síðasta vígið en það muni falla Valgeir Örn af skjánum til Landsnets Þrjú ný í eigendahópinn á BBA//Fjeldco Ætla að opna verslunarkjarna á Korputúni Eru greiðsludreifingar virkilega jafn hentugar og allir segja? Höfðar til ábyrgðar olíufélaga og segir verðið nú þegar óeðlilegt Atvinnulausum verkamönnum fjölgar um fjörutíu prósent Tækifæri fylgi flugi frá Kína en einnig hættur Sjá meira
Aðeins 50 hafa nýtt sér meðeignarúrræðið: „Þetta eru fimmtíu sem hafa komist í eigið húsnæði“ Viðskipti innlent
Aðeins 50 hafa nýtt sér meðeignarúrræðið: „Þetta eru fimmtíu sem hafa komist í eigið húsnæði“ Viðskipti innlent