Reynsluboltar miðla af reynslu sinni 12. september 2012 15:00 Katrín Oddsdóttir
Íslandsbanki hóf fyrr í ár að bjóða starfsfólki sínu upp á að vinna með lærimeistara, eða mentor, til að stuðla að starfsþróun innan bankans. Konum hefur hingað til boðist þátttaka en í haust mun körlum einnig bjóðast tækifæri. Guðný Helga Herbertsdóttir, upplýsingafulltrúi Íslandsbanka, segir að þetta verkefni sé liður í því að efla starfsþróun starfsmanna bankans. „Þetta er góð leið fyrir þá reynsluminni til að sækja í brunn þeirra sem eru reynslumeiri og fyrir fólk til að þróa sig áfram í starfi, þróa eigin getu og færni. Markmiðið var fyrst og fremst að stuðla að starfsþróun innan bankans og það hefur gengið mjög vel." Áhugasamir hafa komist í samband við lærimeistara í gegnum mannauðsstjórn bankans og er þá miðað við óskir og starfssvið viðkomandi. Verkefnið einskorðast ekki við fólk innan bankans en Katrín Oddsdóttir, forstöðumaður Einkabankaþjónustu VÍB, fær til dæmis að leita í reynslubanka Hrundar Rúdólfsdóttur, framkvæmdastjóra starfsþróunar hjá Marel. Katrín segir ýmislegt hafa vakið áhuga hennar á að taka þátt í þessu verkefni. „Ég hef unnið í bankanum síðan ég útskrifaðist úr háskóla, þannig að mig langaði til þess að kíkja út fyrir bankageirann til að fá speglun á tilveruna annars staðar. Fjármálageirinn, þar sem ég starfa, er frekar karllægt umhverfi og ég vildi fá sjónarhorn úr öðrum karlaheimi, og svo er Hrund með mikla reynslu af stjórnun sem hún getur miðlað til mín. Þá er ég líka tveggja barna móðir sem er að reyna að samþætta vinnu og heimilislíf, þannig að ég hugsaði mér að ég gæti lært mikið og bætt mig, bæði faglega og á persónulega sviðinu." Katrín segist afar ánægð með reynsluna hingað til og vonast til þess að framhald verði á. - þj
Mest lesið Aðeins 50 hafa nýtt sér meðeignarúrræðið: „Þetta eru fimmtíu sem hafa komist í eigið húsnæði“ Viðskipti innlent Verðbólga eykst enn Viðskipti innlent „Nú verða allir að líta í eigin barm“ Viðskipti innlent Endanlega ljóst að forsenduákvæðið haldi ekki Neytendur Áhrifavaldur losar sig við steinefni Viðskipti innlent Starbucks kemur í stað Kaffitárs Viðskipti innlent Drægnitölurnar komu út í plús Samstarf Selur eftir þrjátíu og fimm ára rekstur Viðskipti innlent Innkalla tengiltvinnbíla vegna eldhættu Neytendur Ekki króna í þrotabúi Lucky records Viðskipti innlent Fleiri fréttir Laun hækka umfram verðbólgu Starbucks kemur í stað Kaffitárs „Nú verða allir að líta í eigin barm“ Verðbólga eykst enn Aðeins 50 hafa nýtt sér meðeignarúrræðið: „Þetta eru fimmtíu sem hafa komist í eigið húsnæði“ Kaupverð undir 80 milljónum í 60 prósent kaupsamninga Selur eftir þrjátíu og fimm ára rekstur Vill tvöfalda umsvif Samkeppniseftirlitsins Atvinnuleysi fimm prósent í júní Sviptingar í stjórn Amaroq Félag Höllu fær fimmtíu milljónir í arð Icelandair tapaði fjórum milljörðum en samt með mettekjur Crowberry fjárfestir í Jónsbók Fengið 375 milljónir endurgreiddar vegna Trump-tolla Áfram lækkar íbúðaverð að raunvirði Fleiri færðu lögheimili í ár Fjögurra milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Fannar stofnar ráðgjafafyrirtæki Greenfish og samtök evrópskra útgerða kortleggja hrossamakríl Áhrifavaldur losar sig við steinefni „Nauðsynlegt að fá varanlega lausn“ Ekki króna í þrotabúi Lucky records „Þessi framlenging var ekki sjálfgefin“ ESB framlengir sérlausn Íslands vegna losunarheimilda Daníel Þór frá Kviku til Reita Húsnæðislán séu síðasta vígið en það muni falla Valgeir Örn af skjánum til Landsnets Þrjú ný í eigendahópinn á BBA//Fjeldco Ætla að opna verslunarkjarna á Korputúni Eru greiðsludreifingar virkilega jafn hentugar og allir segja? Sjá meira
Aðeins 50 hafa nýtt sér meðeignarúrræðið: „Þetta eru fimmtíu sem hafa komist í eigið húsnæði“ Viðskipti innlent
Aðeins 50 hafa nýtt sér meðeignarúrræðið: „Þetta eru fimmtíu sem hafa komist í eigið húsnæði“ Viðskipti innlent