Mótmælti breytingum á starfslokasamningi 8. september 2012 06:30 Ekki hafa fengist skýringar á því hvers vegna bréf Gests Jónssonar, lögmanns Guðrúnar, var dregið til baka.
Leiðtogar meirihlutans í bæjarstjórn Kópavogs funduðu nýverið með Guðrúnu Pálsdóttur, fyrrverandi bæjarstjóra, í því skyni að fá hana til að gera breytingar á starfslokasamningi hennar frá því í febrúar síðastliðnum. Ármann Kr. Ólafsson og Rannveig Ásgeirsdóttur vildu lækka orlofsgreiðslur Guðrúnar, skylda hana til að greiða vangoldna vexti af umdeildu skuldabréfi vegna gatnagerðargjalda sem fannst í læstum skáp á bæjarskrifstofunum og breyta samkomulagi um að hún tæki aftur við sviðsstjórastöðu hjá bænum 1. september þar sem vinna við að breyta skipuriti bæjarins stæði enn yfir. Þetta er fullyrt í bréfi sem lögmaður Guðrúnar, Gestur Jónsson, sendi Ármanni Kr. Ólafssyni bæjarstjóra 21. ágúst síðastliðinn og Fréttablaðið hefur undir höndum. Í bréfinu er umleitunum Ármanns og Rannveigar mótmælt harðlega. Bréfið var hins vegar dregið til baka nokkrum dögum síðar. Málið kom til umræðu á bæjarráðsfundi á fimmtudaginn var. Þar lagði Guðríður Arnardóttir, fulltrúi Samfylkingarinnar, fram bókun þar sem hún segir það vekja furðu að bæjarráði hafi ekki verið sagt frá bréfi Gests á sínum tíma. „Það kemur verulega á óvart að nú einungis sex mánuðum eftir að núverandi meirihluti gerði fordæmalausan starfslokasamning við fyrrverandi bæjarstjóra, skuli þau núna ætla að draga í land með svo sérkennilegum hætti. Varla þarf að minna á þær athugasemdir sem fulltrúar Samfylkingarinnar gerðu við þann samning,“ segir í bókun Guðríðar. „Nú er útlit fyrir að fulltrúar meirihlutans hyggist ekki efna það samkomulag og jafnvel ekki bjóða fyrrverandi bæjarstjóra sviðsstjórastöðu eins og lofað var í febrúar síðastliðnum og viðbúið að slíkt feli í sér enn meiri kostnað bæjarsjóðs. Vinnubrögð af þessu tagi eru með miklum ólíkindum.“ Í gagnbókun frá meirihlutanum segir að túlkun Guðríðar á efni fundarins sé alröng. Ekki náðist í Ármann Kr. Ólafsson bæjarstjóra í gær en Rannveig Ásgeirsdóttir, formaður bæjarráðs, segir að fundurinn með Guðrúnu hafi verið mjög eðlilegur í ljósi þess að hún hafi átt að koma aftur til starfa 1. september. „Það er enn verið að vinna eftir starfslokasamningnum frá því í febrúar,“ segir Rannveig, spurð hvort enn standi til að Guðrún taki við sviðsstjórastöðu hjá bænum. Spurð hvenær það verður segir Rannveig að það sé eitthvað sem verði að ræða við Guðrúnu. Hún viti ekki hvers vegna bréfið var dregið til baka. Ómar Stefánsson, varaformaður bæjarráðs, baðst undan því að ræða málið við blaðið. „Ég hef helst ekki viljað tjá mig neitt um þetta mál,“ segir hann. Ekki náðist í Guðrúnu Pálsdóttur og Gestur Jónsson vildi ekki tjá sig að öðru leyti en staðfesta að hann hefði sent bréfið. stigur@frettabladid.is
Mest lesið Tækifæri í vátryggingakerfi til að draga úr verðbólgu Viðskipti innlent Alltaf jafn hressandi að fara út og tala aðeins við hundinn Atvinnulíf Moldrík með ADHD: Hafa getuna til að horfa út fyrir boxið Atvinnulíf „Vefveiðar eru ekki tæknivandamál, þær eru mannlegt vandamál“ Viðskipti innlent Leggur hundrað prósenta toll á einkaleyfisvarin lyf Viðskipti erlent Kallar eftir breytingum á lífeyriskerfinu til að lækka íbúðalánavexti Viðskipti innlent Þórarinn dæmdur fyrir markaðsmisnotkun Viðskipti innlent Samkaup eykur hlut sinn í Kjötkompaní Viðskipti innlent Ríteil Kids hættir rekstri Viðskipti innlent Tímamótadómur: Fyrirtækin sjálf ábyrg en ekki notendur Viðskipti erlent Fleiri fréttir Tækifæri í vátryggingakerfi til að draga úr verðbólgu „Vefveiðar eru ekki tæknivandamál, þær eru mannlegt vandamál“ Markaðurinn tók tíðindunum vel Töldu nauðsynlegt að taka stærra skref en lutu í lægra haldi Kallar eftir breytingum á lífeyriskerfinu til að lækka íbúðalánavexti Engar fækkanir fyrirhugaðar fari kaupin í gegn Gengið í Icelandair rýkur upp í kjölfar fregna af tilboði í Fly Play Europe Icelandair ræðir um kaup á dreggjum Play Samkaup eykur hlut sinn í Kjötkompaní Ólafur Björn til liðs við Jónsbók Fyrirhugað flugfélag vekur athygli en engar leyfisumsóknir liggja fyrir Árni nýr stjórnarformaður Íslandsstofu Brimgarðar kaupa tíu milljónir hluta í Reitum SKE gert afturreka með ógnarlanga stefnu og kærir til Landsréttar „Eins rangt og það getur orðið“ að bankarnir hafi stungið lækkun í vasann Gagnaver gæti hitað upp hús Bolvíkinga Ríteil Kids hættir rekstri Bankaskatturinn á að skila sex milljörðum í ríkissjóð „Við erum ekkert æst í að fá nýjan skatt“ Loka bráðum á 3G-kerfið Sigurjón fékk heiðursverðlaun SVEF Bein útsending: Ársfundur SFS - Tækifæri á flekaskilum Kemi og Fálkinn Ísmar sameinast Breytingar á stjórn Sýnar Vill fresta atkvæðagreiðslunni til að greiða fyrir vaxtalækkun Þrotabú Wow air verður af hundruðum milljóna króna Ingunn nýr innri endurskoðandi borgarinnar Jóhann Már verður framkvæmdastjóri Wolt á Íslandi Innleiða verði „einhvers konar verðþak á olíu“ Vaxtahækkun í maí blasi við Sjá meira