Eigið fé Hörpu dugar fyrir rekstri fram á mitt ár 2013 14. ágúst 2012 07:00 Harpa
Um mitt næsta ár þrýtur eigið fé Portusar verði ekki breytingar á rekstrarforsendum Hörpu. Eigendur gætu þurft að hækka framlög. Borgin fær hærri tekjur af húsinu en áætlanir gerðu ráð fyrir og borgin samþykkti. Eigið fé Portusar, eignarhaldsfélags Hörpu, dugar fyrir óbreyttum rekstri fram á mitt næsta ár. Þetta segir Pétur J. Eiríksson, stjórnarformaður Portusar. Pétur segir stærstan hluta taprekstursins mega skýra með hærri fasteignagjöldum en gert hafi verið ráð fyrir. Áætlanir, sem fulltrúar borgarinnar samþykktu, gerðu ráð fyrir 180 milljónum, en raunin er sú að árleg fasteignagjöld eru um 380 milljónir króna sem greiðast til annars eigandans, Reykjavíkurborgar. Pétur segir að áætlanir hefðu staðist að mestu ef fasteignagjöldin hefðu orðið lægri. Hann segir að gert hafi verið ráð fyrir tapi á rekstrinum í fyrstu, á milli 100 og 200 milljónum fyrsta árið og síðan lækkandi næstu þrjú ár. „Við erum búin að borga þessi fasteignagjöld í heilt ár og höfum ekki leitað til eigenda og þurfum ekki að gera það í ár með fjárframlög eða neitt. Ef þetta heldur áfram svona getum við fjármagnað okkur fram yfir mitt næsta ár, en ekki mikið lengur en það.“ Ríkið og Reykjavíkurborg lánuðu Austurhöfn-TR 730 milljónir króna í nóvember í fyrra, sem átti að greiða upp á tólf mánuðum. Skuldabréfaútboð skilaði fyrirtækinu 19,3 milljörðum króna fyrr á þessu ári. Aukin fjárþörf hefur legið fyrir að minnsta kosti síðan í apríl 2010. Í svörum Portusar og Austurhafnar við fyrirspurn borgarráðsfulltrúa Samfylkingarinnar er lagt til að hlutafé verði aukið um 580 milljónir króna. Hluti þess kæmi frá Austurhöfn í formi tækjabúnaðar. Framlag eigenda yrði 505 milljónir króna. - kóp / sjá síðu 8
Mest lesið Aðilar vinnumarkaðarins verði að hætta að benda hver á annan Viðskipti Áhrifavaldur losar sig við steinefni Viðskipti innlent Ekki króna í þrotabúi Lucky records Viðskipti innlent Ímyndaðu þér ef yfirmaðurinn væri eins og Trump Atvinnulíf „Þessi framlenging var ekki sjálfgefin“ Viðskipti innlent ESB framlengir sérlausn Íslands vegna losunarheimilda Viðskipti innlent Innkalla tengiltvinnbíla vegna eldhættu Neytendur Greiðsluáskorun Samstarf Allt að 35% ódýrari leigubílaferðir með Hopp Samstarf Úrvalsdekk hönnuð fyrir Tesla og hátækni rafbíla nú fáanleg á Íslandi Samstarf Fleiri fréttir Laun hækka umfram verðbólgu Starbucks kemur í stað Kaffitárs „Nú verða allir að líta í eigin barm“ Verðbólga eykst enn Aðeins 50 hafa nýtt sér meðeignarúrræðið: „Þetta eru fimmtíu sem hafa komist í eigið húsnæði“ Kaupverð undir 80 milljónum í 60 prósent kaupsamninga Selur eftir þrjátíu og fimm ára rekstur Vill tvöfalda umsvif Samkeppniseftirlitsins Atvinnuleysi fimm prósent í júní Sviptingar í stjórn Amaroq Félag Höllu fær fimmtíu milljónir í arð Icelandair tapaði fjórum milljörðum en samt með mettekjur Crowberry fjárfestir í Jónsbók Fengið 375 milljónir endurgreiddar vegna Trump-tolla Áfram lækkar íbúðaverð að raunvirði Fleiri færðu lögheimili í ár Fjögurra milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Fannar stofnar ráðgjafafyrirtæki Greenfish og samtök evrópskra útgerða kortleggja hrossamakríl Áhrifavaldur losar sig við steinefni „Nauðsynlegt að fá varanlega lausn“ Ekki króna í þrotabúi Lucky records „Þessi framlenging var ekki sjálfgefin“ ESB framlengir sérlausn Íslands vegna losunarheimilda Daníel Þór frá Kviku til Reita Húsnæðislán séu síðasta vígið en það muni falla Valgeir Örn af skjánum til Landsnets Þrjú ný í eigendahópinn á BBA//Fjeldco Ætla að opna verslunarkjarna á Korputúni Eru greiðsludreifingar virkilega jafn hentugar og allir segja? Sjá meira