Fréttaskýring: Hver er staðan á endurútreikningi gengistryggðra lána? 25. júlí 2012 09:00 Meðal álitaefna sem dómstólar munu þurfa að skera úr um má nefna hvort gengislánadómur Hæstaréttar frá 15. febrúar nær til fyrirtækja. Fréttablaðið/GVA
Vinnu samráðshóps lánastofnana og fulltrúa lántakenda um viðbrögð við gengislánadómi Hæstaréttar frá 15. febrúar er lokið. Dæma þarf í ellefu prófmálum, sem fá flýtimeðferð fyrir dómstólum, áður en endurútreikningar lána geta hafist. Vonast er til þess að dómstólar skeri í haust úr um fordæmisgildi dóms Hæstaréttar frá 15. febrúar um gengistryggð lán. Lánastofnanir telja sig ekki geta lagst í endurútreikninga á slíkum lánum fyrr en skorið hefur verið úr um nokkur veigamikil álitamál. Þangað til verða óbreyttir greiðsluseðlar sendir út til skuldara en endurútreikningum vegna annarra gengislánadóma er lokið. Þann 15. febrúar síðastliðinn komst Hæstiréttur að þeirri niðurstöðu að Frjálsa fjárfestingarbankanum hefði í ákveðnu máli verið óheimilt að krefjast hærri vaxtagreiðslna en sem nam samningsvöxtum af gengislánum aftur í tímann þar sem fullnaðarkvittun vegna afborgana lá fyrir. Dómur Hæstaréttar féll í máli einstaklinga gegn fjármálastofnun og við nokkuð sértæka málavexti. Þá fólst í honum undantekning frá þeirri meginreglu kröfuréttar að kröfuhafi, sem fengið hefur minna greitt en hann átti rétt til, eigi kröfur á hendur skuldara um það sem er vangreitt. Síðan dómurinn féll hefur því verið nokkur óvissa um fordæmisgildi hans. Í kjölfar dómsins var skipaður samráðshópur lánveitenda og fulltrúa lántakenda. Hlutverk hópsins var að hraða úrvinnslu skuldamála vegna gengislána. Í maí kynnti hópurinn samantekt á niðurstöðum vinnu sinnar. Þar kom fram að leysa þyrfti úr 22 álitaefnum áður en hægt væri að hefja endurútreikning. Þar af voru fjögur talin vega þyngst: hvenær lántaki væri í skilum með lán, hvort dómurinn frá 15. febrúar tæki til lögaðila, hvenær bæri að reikna Seðlabankavexti og hvaða reikningsaðferð skyldi nota. Í lok síðasta mánaðar kynnti samráðshópurinn svo þá niðurstöðu að ellefu prófmál yrðu höfðuð fyrir dómstólum til að fá niðurstöðu um téð álitaefni. Af þessum málum tengjast sex lánum einstaklinga og fimm lánum lögaðila. Tvö málanna hafa þegar verið þingfest í héraðsdómi en hin málin níu verða þingfest eftir að réttarhléi dómstóla lýkur 31. ágúst. Samið hefur verið við héraðsdómstóla um að prófmálin fái flýtimeðferð og er vonast til þess að dómur verði fallinn í þeim öllum fyrir jól. Þar að auki hefur verið rætt um að málin fái sams konar flýtimeðferð fyrir Hæstarétti. Gangi það eftir gæti endanleg niðurstaða verið komin í öll álitamálin næsta sumar. magnusl@frettabladid.is
Mest lesið Ekkert blabla: „Veikindi eru ekki alltaf orsök veikindaleyfa“ Atvinnulíf Setja gjald á hraðtískuvörur Viðskipti erlent Daði nýr framkvæmdastjóri hjá Coripharma Viðskipti innlent Gunnur Helgadóttir ráðin forstjóri Hrafnistu Viðskipti innlent Bensínlítrinn hefur hækkað á ný Neytendur Ráðinn framkvæmdastjóri BHM Viðskipti innlent Kerfisbilun skömmu fyrir hækkun en enginn ofgreiddi Neytendur Vilja skapa hvata til að beina sparnaði Evrópubúa í fjárfestingar Viðskipti erlent Apple fær nýjan forstjóra Viðskipti erlent Tinna leiðir stefnumótun og viðskiptaþróun hjá Sjóvá Viðskipti innlent Fleiri fréttir Tinna leiðir stefnumótun og viðskiptaþróun hjá Sjóvá Daði nýr framkvæmdastjóri hjá Coripharma Ráðinn framkvæmdastjóri BHM Gunnur Helgadóttir ráðin forstjóri Hrafnistu Eykur hlut sinn í Rafnari fyrir hálfan milljarð Arion hækkar vexti á ný Bensínverð hækkar aftur á morgun Gosdrykkjaframleiðsla Gosfélagsins hafin í Hafnarfirði Hagkerfið kólnar en er ekki í kreppu Ekki eftir neinu að slægjast í þrotabúi Slægingar Sjávarútvegurinn lækkar í kjölfar nei-sins Sýn leggur niður sjónvarpsfréttir Stefnir í fjöldagjaldþrot: Bílaleigur fengu hundruð milljóna rukkun frá Skattinum Íslandsbanki hækkar vexti Segir styttast í niðurstöður samráðs vegna kjarasamninga Elín Hirst stofnar fyrirtæki Hefur daglegt flug milli Keflavíkur og Fíladelfíu næsta sumar Hafnar því að hafa snuprað tækni- og hugverkaiðnaðinn „Hafa pakkað niður sleggjunni og eru tilbúnir að senda hana til Brussel“ Gagnrýna Viðskiptaráð fyrir að sleppa fjórðu útflutningsstoðinni Verðbólga eykst: Forsendur kjarasamninga brostnar Brynjar Már fer yfir til Corus frá Isavia Auknar tekjur og minni kostnaður Guðmundur Fertram verður sérlegur erindreki Atvinnuleysi jókst í júlí Hreiðar vill hægja á og selja Stracta-hótel Nýr og umdeildur Gotti tekinn úr loftinu Eggert skipaður forstjóri Hafrannsóknastofnunar Hótelin fá ný nöfn Hættir sem forstjóri Elkem og hefur störf hjá Travel Connect Sjá meira