Hagnaður 365 var 250 milljónir 4. júlí 2012 04:30 365 miðla ehf. skilaði hagnaði sem nemur 250 milljónum króna árið 2011. fréttablaðið/valli
Rekstur 365 miðla ehf. skilaði hagnaði fyrir árið 2011 sem nemur 250 milljónum króna, eftir afskriftir, fjármagnsliði og skatta. Ari Edwald, forstjóri 365 miðla, segir rekstur ársins ásættanlegan í ljósi efnahagsumhverfis. 365 miðlar gefa út Fréttablaðið ásamt því að starfrækja Stöð 2, Vísi.is, Bylgjuna og fleiri fjölmiðla. Heildarvelta fyrirtækisins árið 2011 nam 9.048 milljónum króna og hagnaður þess fyrir afskriftir, fjármagnsliði og skatta (EBITDA) 803 milljónum króna. Afskriftir og fjármagnsliðir námu 639 milljónum króna árið 2011. Árið 2010 nam hagnaður ársins 360 milljónum króna og hagnaður fyrir afskriftir, fjármagnsliði og skatta 1.004 milljónum króna. Lán fyrirtækisins eru í niðurgreiðsluferli og munu skuldir lækka hratt á næstu árum, segir í fréttatilkynningu. Lausafjárstaða félagsins er traust sem og eiginfjárstaða þess. „Ráðstafanir hafa verið gerðar til að bæta afkomu félagsins," segir Ari. „Þar má nefna endursamninga um sjónvarpsefni, einföldun á rekstri og sameiningu reksturs félagsins á einn stað. Í tengslum við flutninga allrar starfsemi í Skaftahlíð 24 hefur félagið varið vel á annað hundrað milljónum króna til fjárfestinga í nýrri sjónvarpsútsendingu og háskerpuvæðingu útsendingar. Þá er lögð áhersla á að efla enn frekar innlenda dagskrárgerð." Ari segir að árið 2012 sé gert ráð fyrir verulegum bata í rekstri félagsins frá 2011. Rekstur félagsins fyrri hluta ársins í ár sé í samræmi við þær áætlanir. „Mikil óvissa er þó áfram um efnahagsþróun og rekstrarumhverfi fyrirtækja," segir Ari Edwald. - bþh
Mest lesið Setja gjald á hraðtískuvörur Viðskipti erlent Ekkert blabla: „Veikindi eru ekki alltaf orsök veikindaleyfa“ Atvinnulíf Daði nýr framkvæmdastjóri hjá Coripharma Viðskipti innlent Gunnur Helgadóttir ráðin forstjóri Hrafnistu Viðskipti innlent Bensínlítrinn hefur hækkað á ný Neytendur Ráðinn framkvæmdastjóri BHM Viðskipti innlent Kerfisbilun skömmu fyrir hækkun en enginn ofgreiddi Neytendur Vilja skapa hvata til að beina sparnaði Evrópubúa í fjárfestingar Viðskipti erlent Apple fær nýjan forstjóra Viðskipti erlent Tinna leiðir stefnumótun og viðskiptaþróun hjá Sjóvá Viðskipti innlent Fleiri fréttir Tinna leiðir stefnumótun og viðskiptaþróun hjá Sjóvá Daði nýr framkvæmdastjóri hjá Coripharma Ráðinn framkvæmdastjóri BHM Gunnur Helgadóttir ráðin forstjóri Hrafnistu Eykur hlut sinn í Rafnari fyrir hálfan milljarð Arion hækkar vexti á ný Bensínverð hækkar aftur á morgun Gosdrykkjaframleiðsla Gosfélagsins hafin í Hafnarfirði Hagkerfið kólnar en er ekki í kreppu Ekki eftir neinu að slægjast í þrotabúi Slægingar Sjávarútvegurinn lækkar í kjölfar nei-sins Sýn leggur niður sjónvarpsfréttir Stefnir í fjöldagjaldþrot: Bílaleigur fengu hundruð milljóna rukkun frá Skattinum Íslandsbanki hækkar vexti Segir styttast í niðurstöður samráðs vegna kjarasamninga Elín Hirst stofnar fyrirtæki Hefur daglegt flug milli Keflavíkur og Fíladelfíu næsta sumar Hafnar því að hafa snuprað tækni- og hugverkaiðnaðinn „Hafa pakkað niður sleggjunni og eru tilbúnir að senda hana til Brussel“ Gagnrýna Viðskiptaráð fyrir að sleppa fjórðu útflutningsstoðinni Verðbólga eykst: Forsendur kjarasamninga brostnar Brynjar Már fer yfir til Corus frá Isavia Auknar tekjur og minni kostnaður Guðmundur Fertram verður sérlegur erindreki Atvinnuleysi jókst í júlí Hreiðar vill hægja á og selja Stracta-hótel Nýr og umdeildur Gotti tekinn úr loftinu Eggert skipaður forstjóri Hafrannsóknastofnunar Hótelin fá ný nöfn Hættir sem forstjóri Elkem og hefur störf hjá Travel Connect Sjá meira