Nýtt jarðtæknisvið á Norðurlandi 27. júní 2012 15:00 Friðrika Marteinsdóttir jarðfræðingur.
Verkfræðistofa Norðurlands (VN) var stofnuð árið 1975. Í fyrra sameinaðist hún verkfræðistofunni EFLU í Reykjavík en markmið samrunans var að skapa öflugri stöðu beggja fyrirtækja á landsvísu auk þess að efla þjónustu við viðskiptavini á Norðurlandi. Friðrika Marteinsdóttir jarðfræðingur starfaði hjá EFLU í Reykjavík í þrettán ár en flutti til Akureyrar í kjölfar samrunans. „VN hefur lengi haft sterka þekkingu á ýmsum sviðum, til dæmis loftræsikerfum, veitumálum, sundlauga- og íþróttamannvirkjum, landmælingum, samgöngumálum og smávirkjunum. Nú hefur jarðtækniráðgjöf bæst við þjónustu stofunnar og ýmis tækifæri tengd henni eru fram undan." Starf Friðriku gengur meðal annars út á að byggja upp nýja sviðið fyrir norðan auk þess að vera tenging stofunnar við EFLU í Reykjavík. „Við munum auka enn frekar tengslin milli fyrirtækjanna tveggja á sama tíma og við byggjum upp nýja sviðið hér á Akureyri. Það stefnir í mörg spennandi verkefni á næstunni á Norðurlandi. Jarðfræðin er grunnur að mörgum framkvæmdum og þegar mörg verkefni fara af stað er mikið að gera í jarðfræðirannsóknum." Friðrika segir jarðtækniráðgjöfina bjóða upp á mikla möguleika fyrir VN, meðal annars að því er snertir undirbúning mannvirkja. „Nú hefur stofan yfir að ráða litlum slagbor (cobrabor) og jarðsjá auk þess að eiga búnað til plötuprófana, til að mæla þjöppun fyllinga, en slíkar prófanir hafa lítið verið framkvæmdar á Norðurlandi. Cobrabor er notaður til að bora í laus jarðlög til að kanna dýpi á klöpp eða fastan botn og meta gerð lausu jarðlaganna. Jarðsjáin er ein af fáum sinnar tegundar á landinu. Jarðsjármæling er jarðeðlisfræðileg aðferð til samfelldrar kortlagningar á jarðlögum. Jarðsjáin er dregin á sleða og sendir rafsegulbylgjur ofan í jarðlögin án þess að valda raski á umhverfinu." Friðrika segir það afar hentuga aðferð þar sem ekki má raska yfirborði á til dæmis viðkvæmu landi eða yfir fornleifum. Starfsemi verkfræðistofunnar er mest á Norðausturlandi þótt verkefnum sé sinnt um allt land. Hún segir ýmis yfirstandandi verkefni vera víða um landið og nefnir meðal annars hönnun ljósleiðarakerfis fyrir nokkur sveitarfélög, til dæmis Hvalfjarðarsveit og Grímsnes- og Grafningshrepp. „Þess háttar verkefni hafa aukist með samrunanum við EFLU." Af öðrum stórum yfirstandandi verkefnum sem stofan tekur þátt í má nefna undirbúning og könnun á iðnaðarlóðinni á Bakka við Húsavík. Það verkefni snýr að undirbúningi í tengslum við byggingu kísilmálmverksmiðju. Einnig má nefna hönnun flughlaðs við flugvöllinn á Akureyri, vegtengingar við Vaðlaheiðargöng og endurnýjun og stækkun Rjúkandavirkjunar.
Mest lesið Heiðrún Lind kaupir í Sýn Viðskipti innlent Gervihjónabönd: Að eiga vinnueiginmann eða vinnueiginkonu Atvinnulíf Eldri stjórnendur sætti sig oftar við slæma hegðun og frammistöðu Viðskipti innlent Ráðin forstöðukona markaðsmála hjá Olís Viðskipti innlent „Óhóflegt gjald“ fyrir símanotkun í Bretlandi heyri fljótt sögunni til Viðskipti innlent Elín Tinna nýr framkvæmdastjóri 66°Norður á Íslandi Viðskipti innlent Farþegum til Íslands fjölgaði um 21 prósent Viðskipti innlent Framkvæmdastjóri Olís: „Ekki hleypa henni að græjunum“ Atvinnulíf Fyrsta íslenska grænkera ostagerðin í hættu Viðskipti innlent Hryllingssögur og dæmi: „Slúbbertar halda heilu stofnunum í gíslingu“ Atvinnulíf Fleiri fréttir BMW lækkar verð á nýjustu kynslóð sportjeppans X3 Plug-in Hybrid Gætum orðið fyrsta landið í heiminum til að snúa þróun offitu við Nýr vefur Félags foreldra- og uppeldisfræðinga kominn í loftið „Ekki bara steypa heldur fólk og framtíð“ Framtíð tannlækninga og gervigreindar – kynntu þér Oraxs Sjónvarpsapp Sýnar aðgengilegt í Samsung sjónvörpum „Það er draumur að vera á BMW og keyra fram á nótt” Tannlæknastofa í Reykjavík og Búdapest fær viðurkenningu Sjá meira