Þörf fyrir tvö stór hótel á ári 26. júní 2012 07:00
Verði árleg fjölgun ferðamanna á bilinu fimm til sjö prósent á næstu árum mun gistirýmum í Reykjavík þurfa að fjölga um 180 til 380 á hverju ári. Alls gæti því þurft 3.600 til 7.500 ný herbergi á gististöðum fram til ársins 2030. Þetta kemur fram í drögum að greinargerð fyrir þörf á gistirými í Reykjavík á árunum 2012 til 2030 sem VSÓ Ráðgjöf hefur unnið fyrir skipulags- og byggingarsvið borgarinnar. Er þá miðað við að ársnýting gistirýma sé á bilinu 44 til 45 prósent. Greinargerðin verður lögð fram í borgarráði á fimmtudag. Gangi þessi spá eftir þarf að byggja eitt til tvö hótel á stærð við Hótel Sögu, sem hefur 203 herbergi, á ári fram til 2030 til að anna eftirspurn. Fjöldi ferðamanna sem heimsækja Ísland hefur fjórfaldast á tveimur áratugum. Í fyrra fjölgaði þeim um 15,6 prósent frá árinu 2010. Þorri ferðamanna sem hingað til lands kemur dvelur að minnsta kosti hluta ferðar sinnar í Reykjavík. Því ákvað borgin á láta greina þörfina á auknu gistirými næstu tæpu tvo áratugina. Við vinnslu greinargerðarinnar kortlagði VSÓ Ráðgjöf alla gististaði í virkum rekstri á öllu höfuðborgarsvæðinu ásamt upplýsingum um fjölda rúma, herbergja, upplýsingum um rekstrarleyfi, stjörnugjöf og stærð húsnæðis eftir föngum. Út frá þessum þáttum var lagt mat á stöðu mála í dag og sett fram greining á þörf á gistirými fram til ársins 2030 miðað við einfaldar framreikningsaðferðir. Helstu niðurstöður eru þær að á höfuðborgarsvæðinu eru alls 182 gististaðir í rekstri. Þar af eru 167 í Reykjavík og 114 þeirra eru í miðborg hennar. Af gististöðum sem eru í rekstri eru 145 gistiheimili eða íbúðahótel en 37 eru hótel eða hostel. Þorri rúma er hins vegar á hótelum borgarinnar, eða 63 prósent þeirra. Síðustu tvo áratugi hefur ferðamönnum sem koma til Íslands fjölgað um 6,3 prósent að meðaltali á ári. Í greiningu VSÓ segir að ef árleg fjölgun ferðamanna verði á bilinu fimm til sjö prósent fram til ársins 2030 muni þurfa 180 til 380 ný hótelherbergi á ári til að anna þeirri eftirspurn. - þsj / sjá bls. 6
Mest lesið Húsleit hjá Ölgerðinni Viðskipti innlent Adidas í mál vegna fjögurra randa hönnunar Viðskipti erlent Öll tilboð yfir kostnaðaráætlun Viðskipti innlent Skims opnar í Kringlunni Viðskipti innlent Fjárhagsáhyggjur starfsfólks tvöfaldar: Vinnan og heima Atvinnulíf EX60: Sumarást eða samband til frambúðar Samstarf Íslandsbanki varar við svikasímtölum Viðskipti innlent Hafi ekki sérhagsmuni að leiðarljósi um skráningarskyldu fjölmiðla Viðskipti innlent Ráðinn framkvæmdastjóri rekstrar hjá Keahótelum Viðskipti innlent „Listamaðurinn“ leitar að þeim bestu í íslensku atvinnulífi Framúrskarandi fyrirtæki Fleiri fréttir Íslandsbanki varar við svikasímtölum Öll tilboð yfir kostnaðaráætlun Húsleit hjá Ölgerðinni Ráðinn framkvæmdastjóri rekstrar hjá Keahótelum Hafi ekki sérhagsmuni að leiðarljósi um skráningarskyldu fjölmiðla Skims opnar í Kringlunni Aukin skattheimta og aukin samkeppni í boði ríkisins Nýir veitingastaðir opnaðir á Hilton Reykjavík og Hótel Reykjavík Öskju Uggandi yfir afstöðu VR Bein útsending: Rökstyðja stýrivaxtaákvörðun sína Stýrivextir áfram átta prósent Sonur Kristjáns í hans stað á hvalveiðiráðstefnu Vill að þak verði sett á álagningu olíufélaga Eru ríkisskuldabréfasjóðir öruggir? Tæplega þrjátíu sagt upp Ákveða í kvöld hvort kjarasamningum verði sagt upp Ráðinn sviðsstjóri og staðgengill forstjóra Fastus Ganga til sáttaviðræðna við Samkeppniseftirlitið Langþráður draumur að verða að veruleika í Kísildal Breytingar á vetraropnun miðstöðvarinnar í Kerlingarfjöllum kynntar Klíníkin sótti 300 milljónir króna 181 starfsmanni sagt upp í sex hópuppsögnum Enn eitt gjaldþrot Helga: Ekkert í boði í Veislunni Kaupir Malbiksstöðina á fimm milljarða Tuttugu sagt upp í fiskvinnslu í Reykjanesbæ Borga hálfan milljarð í viðbót fyrir indverskt félag „Hlutir sem við vorum ekki sammála um“ Hörður hættir sem forstjóri Landsvirkjunar Bein útsending: Ársfundur Samtaka atvinnulífsins Enn lækkar Ísland í nýsköpunarvísitölunni Sjá meira