Hjálpar fyrirtækjum að fá ESB-styrki 23. júní 2012 02:45 María Lóa Friðjónsdóttir
Nýtt ráðgjafarfyrirtæki, NýNA ehf., tók til starfa um síðustu mánaðamót en markmiðið stofnandans er að veita einstaklingum, fyrirtækjum og stofnunum ráðgjöf um hvernig sækja megi um styrki frá Evrópusambandinu (ESB), þar á meðal um hina svokölluðu IPA-styrki sem veittir eru í tengslum við aðildarumsókn Íslands að ESB. „Ég held að þetta sé klárlega vannýtt tækifæri hér á Íslandi. Kannski ekki síst vegna þess að fæstir virðast meðvitaðir um þennan möguleika. Þá er mjög tímafrekt að standa í umsóknum sem þessum og því talsverður kostnaður fólginn í því fyrir fyrirtæki að finna út úr þessu sjálf,“ segir María Lóa Friðjónsdóttir, stofnandi og framkvæmdastjóri NýNa. María segir háar upphæðir í boði á íslenskan mælikvarða sem geti skipt lítil fyrirtæki verulegu máli. „Við beinum sjónum okkar helst að skapandi greinum og ferðaþjónustunni sem eru kannski þær greinar sem eru í örustum vexti á Íslandi. Ég tel mjög trúlegt að hægt sé að aðstoða fyrirtæki í þessum greinum að nálgast styrki innan úr ESB,“ segir María. Fyrirtækið byggir á viðskiptaáætlun sem María vann á svokölluðu Brautargengisnámskeiði hjá Nýsköpunarmiðstöð Íslands. Var áætlun Maríu valin besta viðskiptaáætlunin úr hópi þeirra sem útskrifuðust af námskeiðinu í vor.- mþl
Mest lesið Húsleit hjá Ölgerðinni Viðskipti innlent Adidas í mál vegna fjögurra randa hönnunar Viðskipti erlent Öll tilboð yfir kostnaðaráætlun Viðskipti innlent Skims opnar í Kringlunni Viðskipti innlent Fjárhagsáhyggjur starfsfólks tvöfaldar: Vinnan og heima Atvinnulíf EX60: Sumarást eða samband til frambúðar Samstarf Íslandsbanki varar við svikasímtölum Viðskipti innlent Hafi ekki sérhagsmuni að leiðarljósi um skráningarskyldu fjölmiðla Viðskipti innlent Ráðinn framkvæmdastjóri rekstrar hjá Keahótelum Viðskipti innlent „Listamaðurinn“ leitar að þeim bestu í íslensku atvinnulífi Framúrskarandi fyrirtæki Fleiri fréttir Íslandsbanki varar við svikasímtölum Öll tilboð yfir kostnaðaráætlun Húsleit hjá Ölgerðinni Ráðinn framkvæmdastjóri rekstrar hjá Keahótelum Hafi ekki sérhagsmuni að leiðarljósi um skráningarskyldu fjölmiðla Skims opnar í Kringlunni Aukin skattheimta og aukin samkeppni í boði ríkisins Nýir veitingastaðir opnaðir á Hilton Reykjavík og Hótel Reykjavík Öskju Uggandi yfir afstöðu VR Bein útsending: Rökstyðja stýrivaxtaákvörðun sína Stýrivextir áfram átta prósent Sonur Kristjáns í hans stað á hvalveiðiráðstefnu Vill að þak verði sett á álagningu olíufélaga Eru ríkisskuldabréfasjóðir öruggir? Tæplega þrjátíu sagt upp Ákveða í kvöld hvort kjarasamningum verði sagt upp Ráðinn sviðsstjóri og staðgengill forstjóra Fastus Ganga til sáttaviðræðna við Samkeppniseftirlitið Langþráður draumur að verða að veruleika í Kísildal Breytingar á vetraropnun miðstöðvarinnar í Kerlingarfjöllum kynntar Klíníkin sótti 300 milljónir króna 181 starfsmanni sagt upp í sex hópuppsögnum Enn eitt gjaldþrot Helga: Ekkert í boði í Veislunni Kaupir Malbiksstöðina á fimm milljarða Tuttugu sagt upp í fiskvinnslu í Reykjanesbæ Borga hálfan milljarð í viðbót fyrir indverskt félag „Hlutir sem við vorum ekki sammála um“ Hörður hættir sem forstjóri Landsvirkjunar Bein útsending: Ársfundur Samtaka atvinnulífsins Enn lækkar Ísland í nýsköpunarvísitölunni Sjá meira