Ferðamenn eyða minna en árið 2007 Þórður Snær Júlíusson skrifar 6. júní 2012 09:45 Ferðamönnum sem koma til landsins hefur fjölgað um 6,1 prósent á ári frá aldamótum. Rúmlega 70 prósent þeirra sem heimsóttu landið sumarið 2011 heimsóttu sundstaði eða náttúruböð á borð við Bláa lónið. MYND/GETTY IMAGES
Hver einstakur erlendur ferðamaður eyddi jafn miklu hérlendis í fyrra og hann gerði árið 2009. Eyðsla á hvern ferðamann dróst saman um rúm sex prósent frá árinu 2010 ef miðað er við fast verðlag. Eyðsla ferðamanna hefur minnkað frá árinu 2007 ef tekið er tillit til falls krónunnar gagnvart helstu gjaldmiðlum. Þetta kemur fram í tölum um árlega kortaveltu erlendra ferðamanna sem DataMarket tók saman fyrir Markaðinn. Ferðamönnum sem koma til Íslands hefur fjölgað mjög hratt á undanförnum árum. Í fyrra komu samtals 565.600 slíkir til Íslands samkvæmt tölum frá Ferðamálastofu Íslands. Þar af komu rúmlega 540 þúsund manns um Leifsstöð. Þeim fjölgaði um 15,7 prósent á síðasta ári og hefur fjölgað að meðaltali um 6,1 prósent á ári frá aldamótum, þegar 303 þúsund manns heimsóttu landið. Tæplega 96 prósent þeirra, alls 541 þúsund manns, koma til landsins um Leifsstöð. Restin kemur með Norrænu eða með flugi um Reykjavíkur-, Akureyrar- eða Egilsstaðaflugvöll. Samkvæmt tölum sem DataMarket tók saman, og ná til þeirra sem koma hingað um Leifsstöð, komu flestir erlendir ferðamenn til landsins í ágúst í fyrra. Mesta athygli vekur þó mikil aukning ferðamanna í septembermánuði, en þeim fjölgaði um 20,7 prósent á milli ára. Sú aukning gefur sterklega til kynna að háannatími íslenskrar ferðaþjónustu sé að lengjast. Til viðbótar við ofangreint hefur fjöldi þeirra sem koma við á Íslandi og ferðast með skemmtiferðaskipum aukist mjög hratt. Farþegar þeirra voru um 27 þúsund árið 2000 en mældust 66 þúsund alls í fyrra. Fjöldi ferðamanna sem sækja Ísland heim með þessari leið hefur aukist um 9,3 prósent á ári á tímabilinu. Þrátt fyrir að ferðamönnum hafi fjölgað gríðarlega mikið þá virðist meðaleyðsla þeirra ekki vera að aukast mikið. Á föstu verðlagi eyddi hver ferðamaður rúmlega 120 þúsund krónum hérlendis í fyrra. Inni í þeirri tölu er allur gisti- og ferðakostnaður innanlands. Það er nánast sama upphæð og hver ferðamaður var að eyða að meðaltali árið 2009 og um átta þúsund krónum minna á hvern ferðamann en árið 2010. Þessi þróun hefur átt sér stað þrátt fyrir að Ísland hafi farið úr því að vera mjög dýrt land heim að sækja í það að vera mjög ódýrt vegna falls íslensku krónunnar. Virði hennar féll til dæmis um 43 prósent gagnvart evru frá árslokum 2007 fram til síðustu áramóta. Á sama tíma hefur eyðsla ferðamanna í krónum talið einungis aukist um 39,3 prósent þegar búið er að leiðrétta fyrir verðbólgu.
Mest lesið Húsleit hjá Ölgerðinni Viðskipti innlent Adidas í mál vegna fjögurra randa hönnunar Viðskipti erlent Hlaðvarparar segja fjölmiðlanefnd stunda glassúrgerð Viðskipti innlent Öll tilboð yfir kostnaðaráætlun Viðskipti innlent Skims opnar í Kringlunni Viðskipti innlent Fjárhagsáhyggjur starfsfólks tvöfaldar: Vinnan og heima Atvinnulíf EX60: Sumarást eða samband til frambúðar Samstarf Íslandsbanki varar við svikasímtölum Viðskipti innlent Hafi ekki sérhagsmuni að leiðarljósi um skráningarskyldu fjölmiðla Viðskipti innlent Ráðinn framkvæmdastjóri rekstrar hjá Keahótelum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Hlaðvarparar segja fjölmiðlanefnd stunda glassúrgerð Íslandsbanki varar við svikasímtölum Öll tilboð yfir kostnaðaráætlun Húsleit hjá Ölgerðinni Ráðinn framkvæmdastjóri rekstrar hjá Keahótelum Hafi ekki sérhagsmuni að leiðarljósi um skráningarskyldu fjölmiðla Skims opnar í Kringlunni Aukin skattheimta og aukin samkeppni í boði ríkisins Nýir veitingastaðir opnaðir á Hilton Reykjavík og Hótel Reykjavík Öskju Uggandi yfir afstöðu VR Bein útsending: Rökstyðja stýrivaxtaákvörðun sína Stýrivextir áfram átta prósent Sonur Kristjáns í hans stað á hvalveiðiráðstefnu Vill að þak verði sett á álagningu olíufélaga Eru ríkisskuldabréfasjóðir öruggir? Tæplega þrjátíu sagt upp Ákveða í kvöld hvort kjarasamningum verði sagt upp Ráðinn sviðsstjóri og staðgengill forstjóra Fastus Ganga til sáttaviðræðna við Samkeppniseftirlitið Langþráður draumur að verða að veruleika í Kísildal Breytingar á vetraropnun miðstöðvarinnar í Kerlingarfjöllum kynntar Klíníkin sótti 300 milljónir króna 181 starfsmanni sagt upp í sex hópuppsögnum Enn eitt gjaldþrot Helga: Ekkert í boði í Veislunni Kaupir Malbiksstöðina á fimm milljarða Tuttugu sagt upp í fiskvinnslu í Reykjanesbæ Borga hálfan milljarð í viðbót fyrir indverskt félag „Hlutir sem við vorum ekki sammála um“ Hörður hættir sem forstjóri Landsvirkjunar Bein útsending: Ársfundur Samtaka atvinnulífsins Sjá meira