Viðskipti innlent

Allir vildu hækka vexti

Samhljómur var í peningastefnunefnd Seðlabankans um að myndarleg hækkun vaxta væri nauðsynleg við síðustu vaxtaákvörðun nefndarinnar þann 16. maí. Einn nefndarmaður vildi hækka vexti um 0,75 prósentur en fjórir um 0,5 prósentur.

Þetta kemur fram í fundargerð nefndarinnar vegna vaxtaákvörðunarinnar. Í fundargerðinni kemur einnig fram að versnandi verðbólguhorfur voru meginrökin fyrir hækkun vaxta. Hækkun myndi styðja við gengi krónunnar og stemma stigu við verðbólguþrýstingi frá vinnumarkaði.- mþl






Fleiri fréttir

Sjá meira


×