Viðskipti innlent

Reykjanesbær búinn að veita samþykki

Árni Sigfússon, bæjarstjóri í Reykjanesbæ.
Árni Sigfússon, bæjarstjóri í Reykjanesbæ.
Bæjarráð Reykjanesbæjar samþykkti fjárhagslega endurskipulagingu Eignarhaldsfélagsins Fasteignar (EFF) á fundi sínum í síðustu viku. Sveitarfélagið verður langstærsti einstaki hluthafi félagsins eftir hana með 56,04 prósenta hlut.

Samkvæmt endurskipulagningunni, sem greint hefur verið frá í Fréttablaðinu, verða eignir seldar út úr EFF, leyst verður úr leigumálum Háskólans í Reykjavík (HR) og málefnum tengdum Álftanesi, nýir skilmálar verða settir inn í lánasamninga, leigusamningar lækkaðir mikið og rekstur lágmarkaður. Þá verður allt hlutafé í félaginu afskrifað og þeir aðilar sem verða leigutakar þess munu hækka það aftur. Það verða sveitarfélög sem settu eignir inn í EFF og Arion banki. Kröfuhafar EFF munu þurfa að afskrifa milljarða króna vegna þessa.

- þsj






Fleiri fréttir

Sjá meira


×