Gerði grein fyrir stjórnmálaáhættu 9. maí 2012 11:00 Vilhjálmur Egilsson var stjórnarformaður Gildis fram að síðasta aðalfundi, sem haldinn var í lok apríl. Hann er nú varamaður í stjórn sjóðsins. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
Gildi lífeyrissjóður gerir í fyrsta sinn grein fyrir stjórnmálaáhættu í skýringu með ársskýrslu sinni fyrir árið 2011. Skýrslan var kynnt á ársfundi sjóðsins 25. apríl síðastliðinn. Þar segir: „Íslenskir lífeyrissjóðir búa í dag við nokkra stjórnmálaáhættu og áhættu af breytingum á lögum og regluverki. Undanfarin ár hefur lagaumhverfi lífeyrissjóða verið nokkuð stöðugt, en það hefur breyst á síðustu misserum og í ljósi umfjöllunar um sjóðina á vettvangi stjórnmálanna gætu fleiri breytingar verið í farvatninu. Stjórn sjóðsins telur ástæðu til að vekja athygli á að breytingar á lögum og regluverki í kringum sjóðina geta haft áhrif á afkomu þeirra“. Í ársskýrslunni er einnig minnst á umræður á vettvangi stjórnmála um víðtæka skattlagningu á myndun lífeyrisréttinda, meðal annars um að inngreiðslur í viðbótarlífeyrissparnað yrðu ekki lengur skattfrjálsar. Þá er sýnt fram á dæmi um breytingar þegar „lögum var breytt þegar gjaldeyrishöft voru sett á og ekki eygir í að þeim verði aflétt. Þau lög breyttu verulega möguleikum sjóðanna til fjárfestinga og áhættudreifingar. Þá var með lögum lagður sérstakur skattur á lífeyrissjóði. Til stendur að afnema hann að hluta eða öllu leyti háð því hvernig sjóðir taka þátt í sérstökum útboðum á eignum í íslenskum krónum fyrir erlendan gjaldeyri, en niðurstaða þessa er enn nokkuð óljós“. - þsj
Mest lesið Húsleit hjá Ölgerðinni Viðskipti innlent Adidas í mál vegna fjögurra randa hönnunar Viðskipti erlent Hlaðvarparar segja fjölmiðlanefnd stunda glassúrgerð Viðskipti innlent Öll tilboð yfir kostnaðaráætlun Viðskipti innlent Skims opnar í Kringlunni Viðskipti innlent Fjárhagsáhyggjur starfsfólks tvöfaldar: Vinnan og heima Atvinnulíf EX60: Sumarást eða samband til frambúðar Samstarf Íslandsbanki varar við svikasímtölum Viðskipti innlent Hafi ekki sérhagsmuni að leiðarljósi um skráningarskyldu fjölmiðla Viðskipti innlent Ráðinn framkvæmdastjóri rekstrar hjá Keahótelum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Hlaðvarparar segja fjölmiðlanefnd stunda glassúrgerð Íslandsbanki varar við svikasímtölum Öll tilboð yfir kostnaðaráætlun Húsleit hjá Ölgerðinni Ráðinn framkvæmdastjóri rekstrar hjá Keahótelum Hafi ekki sérhagsmuni að leiðarljósi um skráningarskyldu fjölmiðla Skims opnar í Kringlunni Aukin skattheimta og aukin samkeppni í boði ríkisins Nýir veitingastaðir opnaðir á Hilton Reykjavík og Hótel Reykjavík Öskju Uggandi yfir afstöðu VR Bein útsending: Rökstyðja stýrivaxtaákvörðun sína Stýrivextir áfram átta prósent Sonur Kristjáns í hans stað á hvalveiðiráðstefnu Vill að þak verði sett á álagningu olíufélaga Eru ríkisskuldabréfasjóðir öruggir? Tæplega þrjátíu sagt upp Ákveða í kvöld hvort kjarasamningum verði sagt upp Ráðinn sviðsstjóri og staðgengill forstjóra Fastus Ganga til sáttaviðræðna við Samkeppniseftirlitið Langþráður draumur að verða að veruleika í Kísildal Breytingar á vetraropnun miðstöðvarinnar í Kerlingarfjöllum kynntar Klíníkin sótti 300 milljónir króna 181 starfsmanni sagt upp í sex hópuppsögnum Enn eitt gjaldþrot Helga: Ekkert í boði í Veislunni Kaupir Malbiksstöðina á fimm milljarða Tuttugu sagt upp í fiskvinnslu í Reykjanesbæ Borga hálfan milljarð í viðbót fyrir indverskt félag „Hlutir sem við vorum ekki sammála um“ Hörður hættir sem forstjóri Landsvirkjunar Bein útsending: Ársfundur Samtaka atvinnulífsins Sjá meira