Flokkast ekki sem einkaframkvæmd 21. apríl 2012 08:00 Leiðin um Víkurskarð er fögur og hefur ferðafólk gaman af því að aka hana í góðu veðri, þótt hún geti verið torfær í hálku og vondum veðrum. Fréttablaðið/GVA
Frumvarp um heimild til að fjármagna gerð Vaðlaheiðarganga er á dagskrá Alþingis á þriðjudag. Málið vék fyrir öðrum fyrir helgi. Frumvarpið er umdeilt og vafi á hvort göngin falli í flokk einkaframkvæmda.Hver ber áhættuna vegna gerðar Vaðlaheiðarganga? Að mati Ríkisábyrgðarsjóðs getur gerð Vaðlaheiðarganga eins og hún er fram sett í frumvarpi fjármálaráðherra ekki talist vera einkaframkvæmd. Það verklag er þó forsenda þess að fara í framkvæmdina utan vegáætlunar Vegagerðarinnar og óháð öðrum vegaframkvæmdum. Samkvæmt framsettri dagskrá þingfunda á Alþingi átti að ræða Vaðlaheiðargöng síðasta þriðjudag, en málið komst ekki á dagskrá. Sama gerðist svo á miðvikudag. „Málið fer ekki á dagskrá fyrr en eftir helgi og fyrsti þingdagur eftir helgi er á þriðjudag. Mánudagurinn er þingflokksfundardagur samkvæmt starfsáætlun þingsins,“ segir í svari Ragnheiðar Ríkharðsdóttur, fyrsta varaforseta Alþingis, við fyrirspurn blaðsins. Búast má við fjörugum umræðum um málið á Alþingi enda hefur víða komið fram hörð gagnrýni á þá leið sem til stendur að fara. Hefur því verið haldið fram að þótt framkvæmdin beri yfirbragð einkaframkvæmdar sé í raun um ríkisframkvæmd að ræða, enda beri ríkið í raun alla ábyrgð á verkinu og þurfi líklega að standa undir fjármögnun þess. Þá hafa forsvarsmenn byggðarlaga þar sem beðið er eftir vegbótum í formi jarðganga, líkt og á við um ný Norðfjarðargöng í Fjarðabyggð, talið eðlilegra í ljósi aðstæðna að Vaðlaheiðargöng yrðu tekin inn á vegáætlun og færu þar í biðröð með öðrum framkvæmdum, í stað þess að vera skotið með þessum hætti fram fyrir röðina. Þingmenn skipast fremur í flokka eftir kjördæmum í afstöðu sinni til málsins en eftir flokkslínum. Þannig er ekki einhugur um frumvarpið innan ríkisstjórnarflokkanna. Telja verður líkur á að í umræðum um málið vegi þungt umsögn Ríkisábyrgðarsjóðs sem leggur til annað verklag en lagt er til í frumvarpinu. Sjóðurinn gengur raunar svo langt að segja framkvæmd Vaðlaheiðarganga ekki flokkast sem einkaframkvæmd. „Enda er gert ráð fyrir því að ríkissjóður taki á sig alla áhættu varðandi fjármögnun verkefnisins ásamt því að þurfa að treysta því að fjárfestar endurfjármagni án ríkisábyrgðar verkefnið að framkvæmdum loknum árið 2018.“ Niðurstaða Ríkisábyrgðarsjóðs er að afar ólíklegt sé að unnt verði að endurfjármagna framkvæmdalán ganganna án ríkisábyrgðar og að vaxtastig að framkvæmdatíma loknum sé stórlega vanmetið. Líklegir vextir án ríkisábyrgðar, að viðbættu áhættuálagi, séu 6,8 til 7,3 prósent. Forsendur Vaðlaheiðarganga ehf. hljóða hins vegar upp á 3,7 prósent. Eins kemur fram að fari vextir yfir 5,3 prósent þá séu 100 prósenta líkur á greiðslufalli Vaðlaheiðarganga. „Standi vilji Alþingis til þess að ríkið fjármagni gerð Vaðlaheiðarganga, þá telur Ríkisábyrgðarsjóður raunhæfara að ríkissjóður lágmarki áhættu sína með því að fjármagna langtímalánið á markaði áður en framkvæmdir hefjast,” segir í niðurstöðu umsagnar sjóðsins og bent á að vaxtastig sé nú í sögulegu lágmarki.olikr@frettabladid.is
Mest lesið Maður látinn eftir líkamsárás í Breiðholti Innlent Þekkt fyrirtæki nýtt í skipulagðri glæpastarfsemi Innlent Feðgar verið handteknir í tengslum við rannsókn á manndrápi Innlent Nálar í hrekkjavökunammi reyndust vera hrekkur Innlent Skoða tengsl milli gerenda og fórnarlambsins í Breiðholti Innlent Reykur barst um sameign og vatn lak niður í næstu íbúðir Innlent „Rannsóknarnefndir verða stofnaðar“ Erlent Spörkuðu, hræktu og létu öllum illum látum Innlent Grunaðir um að skipuleggja óeirðir á Tenerife Erlent Leiddur fyrir dómara vegna mannsláts Innlent Fleiri fréttir Leiddur fyrir dómara vegna mannsláts Göngustígar greiða leið um falda perlu við Stykkishólm Hafna nær öllum sem vilja troða upp á Airwaves Þekkt fyrirtæki nýtt í skipulagðri glæpastarfsemi Kryddsíldin fagnar fjörutíu ára afmæli Skoða tengsl milli gerenda og fórnarlambsins í Breiðholti Feðgar verið handteknir í tengslum við rannsókn á manndrápi Nálar í hrekkjavökunammi reyndust vera hrekkur „Það var engu bætt inn í samninginn sem sneri að tölulegum þáttum“ Tveir handteknir með vopn í unglingapartíi Andlát í Breiðholti til rannsóknar Maður látinn eftir líkamsárás í Breiðholti Einar og Sanna mæta á Sprengisand og ræða uppsagnir Spörkuðu, hræktu og létu öllum illum látum Reykur barst um sameign og vatn lak niður í næstu íbúðir Koma langt að til að sjá hvar Agnes var hálshöggvin Hundi bjargað af svölum og einn fluttur á slysadeild Eldur í fjölbýli í Norðlingaholti Nota allar leiðir til þess að smygla fíkniefnum Samþykkja tillögu Ástráðs Ráðherrar einnig látið sig vanta í atkvæðagreiðslur Kvikumagnið undir Svartsengi orðið mun meira en áður Frestur til miðnættis að taka afstöðu til tillögu ríkissáttasemjara Umferðarslys í Bolungarvík Kennarar boðaðir á fund hjá sáttasemjara „Miður að við séum komin á þennan stað“ „Það er bara mjög sorglegt“ Skringileg túlkun á regnbogafánanum og aukið eftirlit í Grindavík Hafi loks slíðrað sverðin Ökumenn beðnir um að aka sérstaklega varlega Sjá meira