Nota gervitunglamyndir við að greina útbreiðslu lúpínu 20. apríl 2012 09:30 Skiptar skoðanir eru um ágæti lúpínunnar og rannsóknir á vistfræði hennar því mjög mikilvægar.fréttablaðið/gva
Notkun gervitunglamynda við að meta útbreiðslu lúpínu á Íslandi lofar góðu. Nú hefur verið þróuð aðferðafræði við greiningu myndanna og niðurstöður liggja fyrir úr fyrsta hluta samstarfsverkefnis stofnana og háskóla. Frekari rannsóknir eru fyrirhugaðar í sumar. Þetta er meðal þess sem kom fram á málþingi um alaskalúpínu sem haldið var í höfuðstöðvum Landgræðslunnar í Gunnarsholti á þriðjudag. Arna Björk Þorsteinsdóttir, landfræðingur hjá Landgræðslunni, kynnti þar niðurstöður sínar, en vettvangsmælingar voru notaðar til að kortleggja útbreiðslu lúpínu á gervitunglamynd innan 45 ferkílómetra rannsóknarsvæðis í nágrenni Reykjavíkur. Kom í ljós að greiningarnákvæmni gervitunglamyndanna var 94 prósent og því ljóst að hér er fundin greiningartækni sem er mjög árangursrík við að fá alltæmandi upplýsingar um útbreiðslu lúpínunnar hér á landi. Arna Björk segir að í sumar verði fjögur svæði til viðbótar kortlögð með sama hætti og í rannsókn hennar; þar á meðal svæði á sunnanverðum Vestfjörðum, á Hólasandi og í nágrenni Gunnarsholts. Hugmyndir eru jafnframt um að skoða svæði ofan 400 metra hæðarlínu, en ofan hennar má ekki nota lúpínu samkvæmt gildandi lögum. Þessar rannsóknir munu síðan nýtast við að fullgera aðferðir til að móta heildarmynd af útbreiðslu lúpínunnar hér á landi. Arna Björk segir möguleikana sem opnast með fjarkönnun margvíslega: „Myndagrunnur af SPOT 5 gervitunglamyndum fyrir allt landið er til staðar, og elstu myndirnar eru frá 2002. Myndirnar eru því ekki aðeins mikilvægar til að meta stöðuna í dag, heldur ekki síður til að sjá hvernig lúpínan hefur breiðst út á vissu árabili. Þess vegna er aðferðafræði rannsóknanna miðuð við að auðvelt sé að endurtaka þær til að greina þróunina á milli ára og lengri tímabila.“ Fjarkönnun hefur áður verð nýtt við veðurrannsóknir, hafísmælingar, einnig til að kortleggja gróðurlendi Íslands. Eins hefur hún verið nýtt til jarðfræðirannsókna, til dæmis við að kortleggja umfang hrauna og afleiðingar jökulhlaupa. Á Skeiðarársandi var gerð greining, sem var áþekk lúpínurannsókninni, en þá voru fleiri tegundir gróðurs til skoðunar. svavar@frettabladid.is
Mest lesið Öll hin látnu um og undir tvítugu Innlent Myndasyrpa: Síðasti kvöldfréttatími Sýnar Innlent „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Innlent Ungum Pólverja best treyst til forystu í Langanesbyggð Innlent Enn óljóst hvað verður um umsóknina Innlent Segir af sér eftir árekstra við Hegseth Erlent Þurfi að hækka laun og fjölga frídögum Innlent Þrjú ungmenni létust í bílslysinu á Krýsuvíkurvegi Innlent „Við segjum ekki bless, við segjum takk“ Innlent Evrópusambandið þurfi að vera meira aðlaðandi Erlent Fleiri fréttir Myndasyrpa: Síðasti kvöldfréttatími Sýnar „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Enn óljóst hvað verður um umsóknina Ungum Pólverja best treyst til forystu í Langanesbyggð Þurfi að hækka laun og fjölga frídögum Öll hin látnu um og undir tvítugu „Við segjum ekki bless, við segjum takk“ Síðasti kvöldfréttatími Sýnar „Ríkið á stóra sök á þessu“ Líka slæmar fréttir fyrir Rúv Á morgun mega hommar gefa blóð Tekjuáætlun verulega undir áætlun „Þetta mun auka enn á vald Ríkisútvarpsins“ Metfjöldi kvartana Ekkert ákveðið á fundinum: „Það væru fráleit viðbrögð við þessari niðurstöðu“ Þrjú ungmenni létust í bílslysinu á Krýsuvíkurvegi Skora á stjórnvöld að tryggja fasta viðveru þyrlu á Akureyri Reiðarslag fyrir fréttaflutning á Íslandi Gjaldtaka um nýjan Hornafjarðarveg hefst á morgun Dapurlegt að sjá á eftir kvöldfréttum Sýnar Fundur utanríkismálanefndar og ráðherra ræðir stöðu fjölmiðla Niðurskurður hjá Rúv upp á 10 til 15 stöðugildi Trausti nýr starfsmaður þingflokks Miðflokksins Alvarlegt slys á Krýsuvíkurvegi Ekki sé lýðræðislegt að halda formanni Eflingar í myrkrinu Bandaríkin virði fullvalda ákvörðun þjóðarinnar Kveiktu bál á bílastæði Sýna þjóðinni þá lágmarksvirðingu að hætta að snúa út úr Skoraði á Sigmund Davíð að flytja bókun 35 Grindavík Ultra strandaði við varnargarðana Sjá meira