Viðskipti innlent

Vaxtarsprotar visna í höftunum

Óli Kristján Ármannsson skrifar
Hvorki ríkisstjórn né Seðlabanki hafa að mati Vilmundar Jósepssonar, formanns Samtaka atvinnulífsins (SA), úrræði eða djörfung til að afnema gjaldeyrishöft á næsta ári.

Í ræðu á aðalfundi SA í gær sagði Vilmundur samtökin ekki hafa vitað um þær stórkostlegu hættur sem síðar hafi komið í ljós þegar hér var tekin upp flotgengisstefna.

„Peningastefnan sem Ísland tók upp 2001 endaði með hörmungum eins og kunnugt er og er meginástæða þess að tekin hafa verið upp að nýju gjaldeyrishöft.“

Vilmundar segir lykilforsendu fyrir trúverðugri áætlun um afnám hafta að fylgja stífri, tímasettri áætlun þar sem tekin væri áhætta á gengislækkun. Samtökin leggja til leiðir til að verja skuldug heimili fyrir áhrifum af gengisfalli og vilja lög um afnám hafta sem koma til framkvæmda í byrjun næsta árs.

Samkvæmt gildandi áætlunum telur Vilmundur engar líkur á öðru en að gjaldeyrishöft verði ítrekað framlengd.

„Á hverjum tíma sjá menn skýrt fyrir sér sársaukafullar afleiðingar afnáms haftanna til skamms tíma. Tjón til lengri tíma er hulið enda felst það í því sem ekki gerist, glötuðum tækifærum til hagvaxtar, minni verðmætasköpun en ella, erlendum fjárfestingum sem ekki verður af, innlendum vaxtarsprotum sem visna og töpuðum störfum.“

Höftin segir Vilmundur halda gengi krónunnar samfellt lágu og innilokuðum krónum útlendinga fjölgi stöðugt með verðbótum, vöxtum og vaxtavöxtum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×