Sumarkomu fagnað 19. apríl 2012 10:00 Dagskrá verður í Frostaskjóli og á fjölda annarra staða í dag. fréttablaðið/daníel
Venju samkvæmt verður blásið til hátíðarhalda í dag í tilefni sumardagsins fyrsta. Í hverfum höfuðborgarsvæðisins verður skemmtidagskrá með hefðbundnu sniði en auk þess er fjöldi annarra viðburða boðaður á víð og dreif um borgina. Skemmtidagskrá verður með hefðbundnu sniði í hverfum höfuðborgarsvæðisins í dag á sumardaginn fyrsta. Víðast hvar verða skrúðgöngur farnar í tilefni dagsins og boðið upp á veitingar. Þá verða leiktæki og skemmtiatriði fyrir börnin. Á korti sem fylgir hér að ofan má sjá hvar hátíðarhöldin á höfuðborgarsvæðinu verða í dag. Nánari upplýsingar um tímasetningar, skemmtidagskrár og fyrirhugaðar skrúðgöngur má nálgast hjá sveitarfélögum og þjónustumiðstöðvum í hverfum Reykjavíkur. Dagskráin í dag er fjölbreyttari en oft áður þar sem Barnamenningarhátíð í Reykjavík er haldin í annað skipti þessa dagana en henni fylgja viðburðir um alla borg. Dagskrá hátíðarinnar er að finna á vefsíðu hennar en nokkrir helstu viðburðir dagsins verða taldir upp hér að neðan. Í Þjóðminjasafninu verður dagskrá helguð börnum fram eftir degi þar sem víkingafélagið Rimmugýgur mun meðal annars bregða á leik auk þess sem Brúðuleikhúsið mætir á svæðið. Í Listasafni Íslands munu nemendur við listkennsludeild Listaháskólans bjóða upp á fjölbreyttar listasmiðjur fyrir fjölskyldur frá kl. 11 til 17. Þá verður fjölbreytt dagskrá í Iðnó fram eftir degi þar sem áhugasömum verður meðal annars kennt að gera töfrabrögð og origami pappírsbrot. Í Tjarnarbíói mun Kammersveit Reykjavíkur leika tvö ný tónverk fyrir forvitna grunnskólakrakka og þá mun Möguleikhúsið frumsýna Ástarsögu úr fjöllunum en sýningin hefst kl. 16.30. Í Þjóðleikhúsinu verður einnig sett upp leiksýning, fjölskyldusýningin Skýjaborg sem hefst kl. 15.30. Loks mun Hestamannafélagið Fákur bjóða til opins dags á félagssvæði sínu þar sem borgarbúum er boðið að kynna sér starfsemi félagsins. Þar munu Reiðskóli Reykjavíkur og Faxaból auk þess bjóða börnum á hestbak þar sem teymt verður undir þeim. Meðal annarra staða þar sem staðið verður fyrir skipulagðri dagskrá í dag eru Fjölskyldu- og húsdýragarðurinn, Árbæjarsafn, Háskóli Íslands, Klambratún, Ráðhús Reykjavíkur og Nýlistasafnið. Upptalningin hér er ekki tæmandi listi yfir viðburði í höfuðborginni í dag þar sem fjöldi annarra stofnana og félaga mun standa fyrir viðburðum. magnusl@frettabladid.is
Mest lesið Maður látinn eftir líkamsárás í Breiðholti Innlent Þekkt fyrirtæki nýtt í skipulagðri glæpastarfsemi Innlent Feðgar verið handteknir í tengslum við rannsókn á manndrápi Innlent Nálar í hrekkjavökunammi reyndust vera hrekkur Innlent Skoða tengsl milli gerenda og fórnarlambsins í Breiðholti Innlent Reykur barst um sameign og vatn lak niður í næstu íbúðir Innlent Leiddur fyrir dómara vegna mannsláts Innlent „Rannsóknarnefndir verða stofnaðar“ Erlent Spörkuðu, hræktu og létu öllum illum látum Innlent Grunaðir um að skipuleggja óeirðir á Tenerife Erlent Fleiri fréttir Leiddur fyrir dómara vegna mannsláts Göngustígar greiða leið um falda perlu við Stykkishólm Hafna nær öllum sem vilja troða upp á Airwaves Þekkt fyrirtæki nýtt í skipulagðri glæpastarfsemi Kryddsíldin fagnar fjörutíu ára afmæli Skoða tengsl milli gerenda og fórnarlambsins í Breiðholti Feðgar verið handteknir í tengslum við rannsókn á manndrápi Nálar í hrekkjavökunammi reyndust vera hrekkur „Það var engu bætt inn í samninginn sem sneri að tölulegum þáttum“ Tveir handteknir með vopn í unglingapartíi Andlát í Breiðholti til rannsóknar Maður látinn eftir líkamsárás í Breiðholti Einar og Sanna mæta á Sprengisand og ræða uppsagnir Spörkuðu, hræktu og létu öllum illum látum Reykur barst um sameign og vatn lak niður í næstu íbúðir Koma langt að til að sjá hvar Agnes var hálshöggvin Hundi bjargað af svölum og einn fluttur á slysadeild Eldur í fjölbýli í Norðlingaholti Nota allar leiðir til þess að smygla fíkniefnum Samþykkja tillögu Ástráðs Ráðherrar einnig látið sig vanta í atkvæðagreiðslur Kvikumagnið undir Svartsengi orðið mun meira en áður Frestur til miðnættis að taka afstöðu til tillögu ríkissáttasemjara Umferðarslys í Bolungarvík Kennarar boðaðir á fund hjá sáttasemjara „Miður að við séum komin á þennan stað“ „Það er bara mjög sorglegt“ Skringileg túlkun á regnbogafánanum og aukið eftirlit í Grindavík Hafi loks slíðrað sverðin Ökumenn beðnir um að aka sérstaklega varlega Sjá meira