Hlutafé Olís lækkað og hækkað aftur 18. apríl 2012 07:00 Samþykki Samkeppniseftirlitið aðkomu Samherja og Kaupfélags Skagfirðinga að Olís er stefnt að því að fleiri aðilum verði boðið að koma inn í hluthafahópinn. Niðurstaða eftirlitsins á að liggja fyrir um miðjan júní. fréttablaðið/vilhelm
Samherji og félag Kaupfélags Skagfirðinga hafa lagt fé inn í viðskiptabanka Olís sem verður breytt í nýtt hlutafé samþykki Samkeppniseftirlitið aðkomu þeirra að Olís. Búið er að skrifa niður hlutafé núverandi eigenda um 75%. Hlutafé í Olís var lækkað um 75% í febrúar síðastliðnum og hækkað samstundis aftur um sama magn. Á meðal þeirra sem leggja til nýtt hlutafé eru Samherji og FISK-Seafood, félag í eigu Kaupfélags Skagfirðinga. Einar Benediktsson, forstjóri Olís, segir hið nýja hlutafé þó ekki verða greitt inn fyrr en Samkeppniseftirlitið hefur lagt blessun sína yfir aðkomu hinna nýju hluthafa. Búist er við því að sú ákvörðun muni liggja fyrir um miðjan júní næstkomandi. Þann 2. febrúar síðastliðinn var hlutafé Olís lækkað um 502,5 milljónir króna. Samkvæmt tilkynningu til fyrirtækjaskráar vegna þessa kom fram að hlutafjárlækkunin hefði verið framkvæmd „til jöfnunar taps“. Eftir hana var hlutafé Olís 167,5 milljónir króna að nafnvirði. Á sama fundi var samþykkt að hækka hlutafé félagsins aftur um sömu upphæð og það hafði verið lækkað um, 502,5 milljónir króna, með útgáfu nýs hlutafjár. Í tilkynningunni segir að þegar hafi „áskrift vegna hækkunarinnar fengist og greiðsla verið innt af hendi til félagsins. Skal tekið fram að hækkun er að fullu greidd með peningum“. Undir tilkynninguna skrifar Gísli Baldur Garðarsson, stjórnarformaður og einn stærsti eigandi Olís. Fyrir breytingarnar átti FAD 1830, eignarhaldsfélag Gísla Baldurs og Einars, allt hlutafé í félaginu. Eftir hana á FAD 1830 167,5 milljónir hluta, eða 25% af hlutafé Olís. Breytingar á hlutafénu eru afrakstur af fjárhagslegri endurskipulagningu Olís sem staðið hefur yfir um margra mánaða skeið, en félagið skuldaði 15,1 milljarð króna í árslok 2010 samkvæmt síðasta birta ársreikningi. Þorri skuldanna er við Landsbankann sem hefur haft umsjón með endurskipulagningunni. Í ársreikningnum bentu endurskoðendur félagsins á að vafi kynni „að leika á rekstarhæfi félagsins“. Helstu ástæður þess vafa voru tveggja milljarða króna lán Olís sem féll á gjalddaga í maí 2011 og krafa sem Olís átti á eiganda sinn, FAD 1830, upp á 1,4 milljarða króna. Sú krafa var jafnhá eiginfé félagsins í lok árs 2010. Í lok síðasta árs ákváðu Samherji og Fisk-Seafood, dótturfélag Kaupfélags Skagfirðinga, að leggja Olís til nýtt hlutafé svo að fjárhagsleg endurskipulagning félagsins gæti gengið upp. Aðkoma þeirra er þó bundin samþykkt Samkeppniseftirlitsins. Einar segir þessi tvö félög hafa hjálpað til við að fjármagna hlutafjáraukninguna í febrúar. „Þessir aðilar lögðu fé á sínu nafni inn í bankann. Því verður síðan breytt í hlutafé ef Samkeppniseftirlitið samþykkir. Þetta getur ekki orðið skráð hlutafé fyrr en eftir það. Þá verður líka ákveðið hverjir fleiri koma inn í myndina.“thordur@frettabladid.is
Mest lesið Öll hin látnu um og undir tvítugu Innlent Myndasyrpa: Síðasti kvöldfréttatími Sýnar Innlent „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Innlent Ungum Pólverja best treyst til forystu í Langanesbyggð Innlent Segir af sér eftir árekstra við Hegseth Erlent Enn óljóst hvað verður um umsóknina Innlent Þurfi að hækka laun og fjölga frídögum Innlent Þrjú ungmenni létust í bílslysinu á Krýsuvíkurvegi Innlent „Við segjum ekki bless, við segjum takk“ Innlent Evrópusambandið þurfi að vera meira aðlaðandi Erlent Fleiri fréttir Myndasyrpa: Síðasti kvöldfréttatími Sýnar „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Enn óljóst hvað verður um umsóknina Ungum Pólverja best treyst til forystu í Langanesbyggð Þurfi að hækka laun og fjölga frídögum Öll hin látnu um og undir tvítugu „Við segjum ekki bless, við segjum takk“ Síðasti kvöldfréttatími Sýnar „Ríkið á stóra sök á þessu“ Líka slæmar fréttir fyrir Rúv Á morgun mega hommar gefa blóð Tekjuáætlun verulega undir áætlun „Þetta mun auka enn á vald Ríkisútvarpsins“ Metfjöldi kvartana Ekkert ákveðið á fundinum: „Það væru fráleit viðbrögð við þessari niðurstöðu“ Þrjú ungmenni létust í bílslysinu á Krýsuvíkurvegi Skora á stjórnvöld að tryggja fasta viðveru þyrlu á Akureyri Reiðarslag fyrir fréttaflutning á Íslandi Gjaldtaka um nýjan Hornafjarðarveg hefst á morgun Dapurlegt að sjá á eftir kvöldfréttum Sýnar Fundur utanríkismálanefndar og ráðherra ræðir stöðu fjölmiðla Niðurskurður hjá Rúv upp á 10 til 15 stöðugildi Trausti nýr starfsmaður þingflokks Miðflokksins Alvarlegt slys á Krýsuvíkurvegi Ekki sé lýðræðislegt að halda formanni Eflingar í myrkrinu Bandaríkin virði fullvalda ákvörðun þjóðarinnar Kveiktu bál á bílastæði Sýna þjóðinni þá lágmarksvirðingu að hætta að snúa út úr Skoraði á Sigmund Davíð að flytja bókun 35 Grindavík Ultra strandaði við varnargarðana Sjá meira