Öflugasta tölva Íslands vígð 17. apríl 2012 07:30 Fjórar rannsóknastofnanir standa að ofurtölvu sem staðsett er í Thor Data Center í Hafnarfirði. Samstarf sem þetta þykir marka nokkur tímamót og gefur góð fyrirheit um framtíð upplýsingatæknigeirans hér á landi. Fréttablaðið/Stefán
Ofurtölva sem er samstarfsverkefni fjögurra norrænna rannsóknastofnana var vígð í gagnaveri Advania í gær. Gæti eflt upplýsingatæknigeirann hér á landi og verið fyrsta skrefið í átt að frekara samstarfi. Öflugasta tölva landsins, ofurtölva sem þjónar rannsóknaverkefnum á Íslandi og öðrum Norðurlöndum, var formlega tekin í notkun í gagnaveri Thor Data Center í gær. Um er að ræða samvinnuverkefni rannsóknastofnana frá Íslandi, Danmörku, Noregi og Svíþjóð. Verkefnið, sem ber nafnið NHPC, er nýstárlegt að mörgu leyti, en það sem einna helst ber til tíðinda er staðsetning tölvunnar hér á landi og sameiginlegt, fjölþjóðlegt eignarhald, en hún er notuð til að vinna að fjölda rannsóknarverkefna í löndunum fjórum. Um er að ræða hluta af tilraunaverkefni en tilgangur þess er meðal annars að meta kosti þess að staðsetja tölvur sem þessar nær orkulindum, sem og að meta hina fjölmörgu þætti, meðal annars skipulagslega og tæknilega, sem upp geta komið þegar um sameiginlegt eignarhald, umsjón og rekstur er að ræða. Reynist þetta verkefni vel, er mögulegt að fleiri samvinnuverkefni muni líta dagsins ljós á komandi árum. Ebba Þóra Hvannberg, verkefnisstjóri NHPC, segir í samtali við Fréttablaðið að ástæða þess að verkefnið hafi verið sett upp hér á landi sé margþætt. Ísland og Thor Data Center, sem er í eigu Advania, hafi boðið ódýrasta kostinn auk þess sem gagnaverið gengur fyrir endurnýjanlegum orkugjöfum sem þyki eftirsóknarvert. „Þá þótti einnig nýstárlegt að bjóða upp á hýsingu í gagnaveri en ekki í tölvusal háskóla,“ bætti Ebba við. „Það gefur okkur mikið svigrúm til að stækka við okkur í framtíðinni.“ Ebba segir að þótt tölvan hafi verið vígð formlega í gær hafi hún verið í gangi, til reynslu, frá áramótum og reynst afar vel sem og fjarlægðin milli tölvunnar og rannsakenda í öðrum löndum. „Fjarlægðin er engin fyrirstaða. Það kom meðal annars fram í máli danska kerfisstjórans, en hann sagði að töfin sem verður vegna fjarlægðarinnar sé einungis 35 millisekúndur.“ Ebba segir NHPC-verkefnið geta haft mikla þýðingu fyrir upplýsingatæknigeirann hér á landi. „Við erum að vona að þetta sýni möguleikana sem eru í boði hér á landi og erum einmitt að auglýsa verkefnið í Evrópu og Bandaríkjunum. Þetta mun því vonandi hjálpa gagnaversiðnaðinum hér á landi.“ thorgils@frettabladid.is
Mest lesið Maður látinn eftir líkamsárás í Breiðholti Innlent Þekkt fyrirtæki nýtt í skipulagðri glæpastarfsemi Innlent Feðgar verið handteknir í tengslum við rannsókn á manndrápi Innlent Nálar í hrekkjavökunammi reyndust vera hrekkur Innlent Skoða tengsl milli gerenda og fórnarlambsins í Breiðholti Innlent Leiddur fyrir dómara vegna mannsláts Innlent Reykur barst um sameign og vatn lak niður í næstu íbúðir Innlent „Rannsóknarnefndir verða stofnaðar“ Erlent Spörkuðu, hræktu og létu öllum illum látum Innlent Grunaðir um að skipuleggja óeirðir á Tenerife Erlent Fleiri fréttir Mega ekki teygja starfsemi tjaldsvæðisins yfir götuna Leiddur fyrir dómara vegna mannsláts Göngustígar greiða leið um falda perlu við Stykkishólm Hafna nær öllum sem vilja troða upp á Airwaves Þekkt fyrirtæki nýtt í skipulagðri glæpastarfsemi Kryddsíldin fagnar fjörutíu ára afmæli Skoða tengsl milli gerenda og fórnarlambsins í Breiðholti Feðgar verið handteknir í tengslum við rannsókn á manndrápi Nálar í hrekkjavökunammi reyndust vera hrekkur „Það var engu bætt inn í samninginn sem sneri að tölulegum þáttum“ Tveir handteknir með vopn í unglingapartíi Andlát í Breiðholti til rannsóknar Maður látinn eftir líkamsárás í Breiðholti Einar og Sanna mæta á Sprengisand og ræða uppsagnir Spörkuðu, hræktu og létu öllum illum látum Reykur barst um sameign og vatn lak niður í næstu íbúðir Koma langt að til að sjá hvar Agnes var hálshöggvin Hundi bjargað af svölum og einn fluttur á slysadeild Eldur í fjölbýli í Norðlingaholti Nota allar leiðir til þess að smygla fíkniefnum Samþykkja tillögu Ástráðs Ráðherrar einnig látið sig vanta í atkvæðagreiðslur Kvikumagnið undir Svartsengi orðið mun meira en áður Frestur til miðnættis að taka afstöðu til tillögu ríkissáttasemjara Umferðarslys í Bolungarvík Kennarar boðaðir á fund hjá sáttasemjara „Miður að við séum komin á þennan stað“ „Það er bara mjög sorglegt“ Skringileg túlkun á regnbogafánanum og aukið eftirlit í Grindavík Hafi loks slíðrað sverðin Sjá meira