Batamerki berast nú frá byggingarfulltrúa 16. apríl 2012 06:00 Byggt á ný Skyndilegur endir var bundinn á fyrirhugað íbúðahverfi í Úlfarsárdal þegar efnahagskreppan skall á árið 2008. Hjólin eru farin að snúast þar að nýju.Fréttablaðið/Pjetur
Byggingariðnaðurinn á höfuðborgarsvæðinu virðist vera byrjaður að rétta úr kútnum ef marka má ársskýrslu byggingarfulltrúans í Reykjavík sem sýnir þrefalda aukningu á samþykktu byggingarmagni í borginni í fyrra miðað við árið 2010. Í ársskýrslu byggingarfulltrúans fyrir árið 2011 kemur fram að í fyrra voru samþykkt byggingaráform fyrir samtals 194 þúsund rúmmetra af nýju húsnæði samanborið við um 68 þúsund rúmmetra árið 2010. „Um þrefalda aukningu var því að ræða á samþykktu byggingarmagni á milli ára. Samþykkt byggingarmagn árið 2011 var hins vegar um tíu prósent af því sem samþykkt var árið 2007 fyrir allar tegundir af húsnæði, þ.e. íbúðir, stofnanir, verslunar- og skrifstofuhús, iðnaðarhús, vörugeymslur og fleira,“ segir í fylgiskjali með ársskýrslunni. Mesta aukningin í nýbyggingum í fyrra var í íbúðarhúsnæði. Þá var hafist handa við 113 nýjar íbúðir samanborið við aðeins 14 íbúðir árið 2010. Þrátt fyrir þessa þróun er enn mjög langt í land að því að bygging nýrra íbúða nái meðaltali áranna 1972-2011, sem er 608 íbúðir á ári. Þá er þess að geta að lokið var við 95 íbúðir á árinu 2011 sem er 214 íbúðum færri en á árinu 2010. Um síðustu áramót voru 736 íbúðir í smíðum í borginni. Þar af voru 423 íbúðir fokheldar eða meira. gar@frettabladid.is
Mest lesið Öll hin látnu um og undir tvítugu Innlent Myndasyrpa: Síðasti kvöldfréttatími Sýnar Innlent „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Innlent Ungum Pólverja best treyst til forystu í Langanesbyggð Innlent Segir af sér eftir árekstra við Hegseth Erlent Enn óljóst hvað verður um umsóknina Innlent Þurfi að hækka laun og fjölga frídögum Innlent Þrjú ungmenni létust í bílslysinu á Krýsuvíkurvegi Innlent „Við segjum ekki bless, við segjum takk“ Innlent Evrópusambandið þurfi að vera meira aðlaðandi Erlent Fleiri fréttir Sinntu hávaðatilkynningum í heimahúsum Myndasyrpa: Síðasti kvöldfréttatími Sýnar „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Enn óljóst hvað verður um umsóknina Ungum Pólverja best treyst til forystu í Langanesbyggð Þurfi að hækka laun og fjölga frídögum Öll hin látnu um og undir tvítugu „Við segjum ekki bless, við segjum takk“ Síðasti kvöldfréttatími Sýnar „Ríkið á stóra sök á þessu“ Líka slæmar fréttir fyrir Rúv Á morgun mega hommar gefa blóð Tekjuáætlun verulega undir áætlun „Þetta mun auka enn á vald Ríkisútvarpsins“ Metfjöldi kvartana Ekkert ákveðið á fundinum: „Það væru fráleit viðbrögð við þessari niðurstöðu“ Þrjú ungmenni létust í bílslysinu á Krýsuvíkurvegi Skora á stjórnvöld að tryggja fasta viðveru þyrlu á Akureyri Reiðarslag fyrir fréttaflutning á Íslandi Gjaldtaka um nýjan Hornafjarðarveg hefst á morgun Dapurlegt að sjá á eftir kvöldfréttum Sýnar Fundur utanríkismálanefndar og ráðherra ræðir stöðu fjölmiðla Niðurskurður hjá Rúv upp á 10 til 15 stöðugildi Trausti nýr starfsmaður þingflokks Miðflokksins Alvarlegt slys á Krýsuvíkurvegi Ekki sé lýðræðislegt að halda formanni Eflingar í myrkrinu Bandaríkin virði fullvalda ákvörðun þjóðarinnar Kveiktu bál á bílastæði Sýna þjóðinni þá lágmarksvirðingu að hætta að snúa út úr Skoraði á Sigmund Davíð að flytja bókun 35 Sjá meira