Hafa þegar hjálpað nær 40.000 börnum 15. apríl 2012 06:00 Goni er 18 mánaða. Hann var aðframkominn þegar hann kom inn á eina af næringarmiðstöðvum UNICEF í Tsjad fyrir páska. Hann varð fyrst um sinn að nærast í gegnum slöngu, en hann hefur náð sér undravel og þyngdist meðal annars um tæpt kíló á fyrstu dögunum. Mynd/Unicef
Hjálparstarf UNICEF á Sahel-svæðinu í Afríku er komið í fullan gang. Tugir þúsunda barna hafa fengið meðferð vegna vannæringar. Söfnun UNICEF hefur gengið vel á Íslandi og um fjórtán milljónir króna hafa þegar safnast. Hátt í 40.000 börn á Sahel-svæðinu í Afríku sunnan við Saharaeyðimörkina hafa nú þegar hafið meðferð hjá UNICEF, Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna, vegna alvarlegrar bráðavannæringar. Neyðarástand vofir yfir á svæðinu eftir uppskerubrest í kjölfar þurrka. Talið er að um ein milljón barna séu í hættu á að verða vannæringu að bráð nema eitthvað verði að gert. Hjálp er þó tekin að berast og hefur UNICEF þegar komið til skila um 6,5 milljónum skammta af vítamínbættu hnetumauki auk ýmissa annarra hjálpargagna sem sjá má á meðfylgjandi mynd. Hnetumaukið hefur reynst afar vel í baráttunni við vannæringu barna á hrjáðum svæðum, en það hjálpar börnum að ná heilsu fyrir utan hvað það geymist vel og er auðvelt í notkun. Starf UNICEF nær til átta landa á Sahel-svæðinu og tíminn skiptir lykilmáli við að koma hjálpargögnum til þeirra sem á þurfa að halda. Sameinuðu þjóðirnar tilkynntu í vetur að um 724 milljónir Bandaríkjadala þyrfti til að fjármagna aðgerðir í Sahel. Margaret Chen, framkvæmdastjóri Alþjóðaheilbrigðisstofnunarinnar, sagði fyrir skemmstu að alþjóðsamfélagið þurfi að bregðast skjótt við. „Annars munu mörg börn láta lífið og mikil fjöldi manna muni líða skort.“ Sigríður Víðis Jónsdóttir, upplýsingafulltrúi UNICEF á Íslandi, segir í samtali við Fréttablaðið að hjálparstarfið reiddi sig á framlag almennings. Söfnun standi yfir hér á landi og gangi afar vel og þau hafi fundið fyrir mikill velvild. „Söfnunin er komin yfir 14 milljónir. Það er margfalt meira en við gerðum okkur von um að geta safnað og við erum afar þakklát fyrir stuðninginn. Fólk virðist gera sér grein fyrir alvöru málsins og að hvert framlag skiptir máli.“ Sigríður bætir því við að þar liggi að baki þúsundir Íslendinga á öllum aldri. „Börn hafa til dæmis haft samband við okkur og viljað aðstoða vannærða jafnaldra sína á Sahel-svæðinu. Svo höfum við fengið símtöl úr bönkum þar sem börn eru stödd með sparibaukana sína og vilja gefa og fólk á níræðisaldri hefur sem dæmi hringt og spurt hvernig það geti aðstoðað.“ Þeim sem vilja leggja sitt af mörkum er bent á að upplýsingar má finna á vefnum á unicef.is. thorgils@frettabladid.is
Mest lesið Myndasyrpa: Síðasti kvöldfréttatími Sýnar Innlent Öll hin látnu um og undir tvítugu Innlent „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Innlent Ungum Pólverja best treyst til forystu í Langanesbyggð Innlent Segir af sér eftir árekstra við Hegseth Erlent Þurfi að hækka laun og fjölga frídögum Innlent Enn óljóst hvað verður um umsóknina Innlent Þrjú ungmenni létust í bílslysinu á Krýsuvíkurvegi Innlent Glæpaforingi dæmdur fyrir morðið á Tupac Erlent „Við segjum ekki bless, við segjum takk“ Innlent Fleiri fréttir Sakborningur í Kársnesmáli sóttur til Spánar Sinntu hávaðatilkynningum í heimahúsum Myndasyrpa: Síðasti kvöldfréttatími Sýnar „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Enn óljóst hvað verður um umsóknina Ungum Pólverja best treyst til forystu í Langanesbyggð Þurfi að hækka laun og fjölga frídögum Öll hin látnu um og undir tvítugu „Við segjum ekki bless, við segjum takk“ Síðasti kvöldfréttatími Sýnar „Ríkið á stóra sök á þessu“ Líka slæmar fréttir fyrir Rúv Á morgun mega hommar gefa blóð Tekjuáætlun verulega undir áætlun „Þetta mun auka enn á vald Ríkisútvarpsins“ Metfjöldi kvartana Ekkert ákveðið á fundinum: „Það væru fráleit viðbrögð við þessari niðurstöðu“ Þrjú ungmenni létust í bílslysinu á Krýsuvíkurvegi Skora á stjórnvöld að tryggja fasta viðveru þyrlu á Akureyri Reiðarslag fyrir fréttaflutning á Íslandi Gjaldtaka um nýjan Hornafjarðarveg hefst á morgun Dapurlegt að sjá á eftir kvöldfréttum Sýnar Fundur utanríkismálanefndar og ráðherra ræðir stöðu fjölmiðla Niðurskurður hjá Rúv upp á 10 til 15 stöðugildi Trausti nýr starfsmaður þingflokks Miðflokksins Alvarlegt slys á Krýsuvíkurvegi Ekki sé lýðræðislegt að halda formanni Eflingar í myrkrinu Bandaríkin virði fullvalda ákvörðun þjóðarinnar Kveiktu bál á bílastæði Sýna þjóðinni þá lágmarksvirðingu að hætta að snúa út úr Sjá meira