Fleiri rauðir dagar hér en í nágrannalöndum 12. apríl 2012 08:00 Margir Íslendingar nýta páskafríið til að fara á skíði.
Lögbundnir frídagar hér á landi, utan helga, eru tólf talsins. Það er meira en í nágrannalöndunum. Oft lenda rauðu dagarnir á helgum. Formaður ASÍ segir að ekki hafi skapast samstaða um uppbótarfrídaga í þeim tilfellum. Lögbundnir frídagar, svokallaðir rauðir dagar, eru almennt fleiri hér á landi en í nágrannalöndunum. Að frátöldum þeim dögum sem eru bundnir sunnudögum eru tólf frídagar á ári, að frátöldum aðfangadegi og gamlársdegi, sem eru lögbundnir frídagar til hálfs. Í Svíþjóð eru dagarnir ellefu, tíu í Noregi og Finnlandi og níu í Danmörku. Fimm þessara tólf daga eru hins vegar háðir því á hvaða vikudegi þeir lenda og sum ár slær tveimur dögum saman. Til dæmis bar sumardaginn fyrsta upp á skírdag í fyrra. Síðasta ár var reyndar óvenju óheppilegt frá sjónarmiði almennra launþega þegar aðeins átta af dögunum tólf lentu á virkum dögum. Þar fyrir utan lentu aðfangadagur og gamlársdagur á laugardögum. Þegar litið er til síðustu fimm ára hafa frídagarnir á virkum dögum verið allt frá átta upp í alla tólf, en það var árið 2008. Í ár verða dagarnir tíu þar sem nýársdag og sautjánda júní ber upp á sunnudaga. Næsta ár lítur mjög vel út þar sem allir frídagar verða á virkum dögum. Í þessu sambandi hefur oft verið minnst á fyrirkomulagið í Bretlandi þar sem uppbótarfrídagur kemur í stað lögboðins frídags sem ber upp á helgi. Gylfi Arnbjörnsson, formaður Alþýðusambands Íslands (ASÍ), segir umræðuna um að taka upp svipað fyrirkomulag hér á landi koma reglulega upp í kjaraviðræðum. „Þetta myndi hins vegar kosta peninga og atvinnurekendur hafa ekki viljað ljá máls á þessu.“ Að sögn Gylfa hefur einnig komið til tals að breyta fyrirkomulagi fimmtudagsfrídaga, til dæmis með því að færa þá eða safna frídögunum saman í lengra frí. „Margir þeirra daga eru hins vegar kirkjudagar og koma þannig inn í kjarasamninga. Það yrði því ekki einfalt mál og svo eru líka skólafrí og annað á sama tíma. Það myndi því kalla á mikla og víða samstöðu á vinnumarkaði. Þegar allt kemur til alls eru hins vegar skiptar skoðanir um málið þar sem sumum finnst gott að fá frí á fimmtudögum. Þá taka jafnvel einhverjir út sumarfrísdag á föstudeginum til að fá langa helgi.“ Gylfi segir hins vegar að mikið hafi unnist í að fjölga sumarfrísdögum í kjarasamningum síðustu ára, og auk þess hefur sveigjanleiki launþega varðandi sumarfrí aukist umtalsvert.thorgils@frettabladid.is
Mest lesið Grunur um fjárkúgun í manndrápsmáli Innlent Mega ekki teygja starfsemi tjaldsvæðisins yfir götuna Innlent „Svívirðileg svik“ Erlent Níu manns um borð þegar flugvél hrapaði á umferðargötu Erlent Þekkt fyrirtæki nýtt í skipulagðri glæpastarfsemi Innlent Netárásir á almannavarnarkerfi Úkraínumanna og Rússa Erlent Skattlagning á erlenda tæknirisa enn til skoðunar Innlent Skikkaður í varðhald í tengslum við manndráp í Breiðholti Innlent Hafna nær öllum sem vilja troða upp á Airwaves Innlent Starfsmenn Disney World handteknir í stóru barnaníðsmáli Erlent Fleiri fréttir Aðalmeðferð í máli Írisar Helgu að hefjast Skattlagning á erlenda tæknirisa enn til skoðunar Grunur um fjárkúgun í manndrápsmáli Skikkaður í varðhald í tengslum við manndráp í Breiðholti Mega ekki teygja starfsemi tjaldsvæðisins yfir götuna Leiddur fyrir dómara vegna mannsláts Göngustígar greiða leið um falda perlu við Stykkishólm Hafna nær öllum sem vilja troða upp á Airwaves Þekkt fyrirtæki nýtt í skipulagðri glæpastarfsemi Kryddsíldin fagnar fjörutíu ára afmæli Skoða tengsl milli gerenda og fórnarlambsins í Breiðholti Feðgar verið handteknir í tengslum við rannsókn á manndrápi Nálar í hrekkjavökunammi reyndust vera hrekkur „Það var engu bætt inn í samninginn sem sneri að tölulegum þáttum“ Tveir handteknir með vopn í unglingapartíi Andlát í Breiðholti til rannsóknar Maður látinn eftir líkamsárás í Breiðholti Einar og Sanna mæta á Sprengisand og ræða uppsagnir Spörkuðu, hræktu og létu öllum illum látum Reykur barst um sameign og vatn lak niður í næstu íbúðir Koma langt að til að sjá hvar Agnes var hálshöggvin Hundi bjargað af svölum og einn fluttur á slysadeild Eldur í fjölbýli í Norðlingaholti Nota allar leiðir til þess að smygla fíkniefnum Samþykkja tillögu Ástráðs Ráðherrar einnig látið sig vanta í atkvæðagreiðslur Kvikumagnið undir Svartsengi orðið mun meira en áður Frestur til miðnættis að taka afstöðu til tillögu ríkissáttasemjara Umferðarslys í Bolungarvík Kennarar boðaðir á fund hjá sáttasemjara Sjá meira