Ætlar að fjárfesta í frumkvöðlastarfsemi Þórður Snær Júlíusson skrifar 11. apríl 2012 16:00 Bankarnir hafa meðal annars boðið frumkvöðlum upp á aðstöðu til að vinna að hugmyndum sínum. Með Startup Reykjavík mun Arion fyrstur íslensku bankanna bjóða upp á vettvang þar sem bankinn leggur fram fjármagn gegn hlutdeild í frumkvöðlafyrirtækjum. Fréttablaðið/Valli
Arion banki mun kynna Startup Reykjavík, nýtt frumkvöðlasetur sitt, á Sprotaþingi Íslands næstkomandi föstudag. Setrið, sem er hluti af Global Acceleration Network, er sett á fót í samvinnu við Innovit og Klak. Fyrirmynd þess er erlend og samkvæmt upplýsingum frá bankanum hefur svona lagað ekki verið gert á Íslandi áður. Startup Reykjavík á að standa yfir í þrjá mánuði yfir sumartímann (frá byrjun júní og út ágústmánuð). Umsóknarfrestur til að taka þátt er til 7. maí næstkomandi. Úr hópi umsækjenda verða valin tíu viðskiptateymi sem munu fá tvær milljónir króna í hlutafé frá Arion banka gegn allt að 6% hlutdeild í fyrirtækinu. Yfir 20 leiðbeinendur úr ólíkum áttum úr íslensku viðskipta- og athafnalífi munu veita þjálfun á meðan Startup Reykjavík stendur yfir. Arion banki mun auk þess sjá þeim sem munu taka þátt í verkefninu fyrir húsnæði á meðan það stendur yfir. Á lokadegi þess munu teymin síðan fá tækifæri til að kynna sig fyrir fjárfestum. Arion hefur skuldbundið sig til að bjóða upp á verkefnið oftar en einu sinni. Einar Gunnar Guðmundsson, sérfræðingur frumkvöðla- og nýsköpunarmála hjá Arion banka og umsjónarmaður verkefnisins, segir hugmyndina vera þá að tengja betur einkafjármagn við frumkvöðla. „Þetta eykur stuðnings einkafjármagns við frumkvöðlaumhverfið og þar með verður vistkerfi frumkvöðla mun sterkara fyrir vikið. Verkefnið er framlag okkar til að gera hluti sem raunverulega skipta máli." Spurður um hvaða hag Arion banki hafi af verkefninu nefnir Einar Gunnar þrenns konar ávinning. „Í fyrsta lagi samræmist þetta stefnu bankans um að vera fyrsti valkostur hjá bæði frumkvöðlum og fjárfestum. Í öðru lagi ætlar Arion sér að vera virkt tannhjól í því að auka verðmætasköpun á Íslandi. Í þriðja lagi vonumst við síðar til að þetta skili okkur, til lengri tíma, fleiri og betri viðskiptavinum. Þetta er langhlaup, ekki spretthlaup." Global Accelerator Network er net rekið af Techstars í Bandaríkjunum sem nær víða um heim. Einar Gunnar segir aðgengi íslenskra frumkvöðla að netinu opna ýmsa möguleika fyrir íslenska frumkvöðla. „Það opnar möguleikann á því að vera annars vegar að hitta sambærileg fyrirtæki sem eru að vinna að svipuðum hlutum og frumkvöðlarnir sjálfir, meðal annars með samstarf í huga, og hins vegar upp á að hitta og kynna sig fyrir erlendum fjárfestum." Landsbankinn ætlar að vera leiðandiLandsbankinn hefur það yfirlýsta markmið að vera leiðandi aðili í að blása nýju lífi í íslenskt atvinnulíf og hefur meðal annars lagt áherslu á nýsköpun í þeim efnum. Um mitt ár 2011 setti bankinn á fót Nýsköpunarþjónustu. Samkvæmt heimasíðu hennar er boðið upp á ráðgjöf sem tengist starfsumhverfi fyrirtækjanna, leitast er við að leiða saman aðila sem gagnast hver öðrum, efla tengsl bankans við markaðinn og þróa þjónustu hans með þarfir frumkvöðla í huga. Áður hafði bankinn efnt til opinna funda á níu stöðum um land allt til að leita að tækifærum til að fjármagna hugmyndir, með höfuðáherslu á nýsköpun. Bankinn gerist þó hvorki áhættufjárfestir né otar lánum að ungum fyrirtækjum. Í svari Landsbankans við fyrirspurn Markaðarins kemur fram að sú afstaða byggi á þeirri sýn hans að lánsfé sé ekki það þolinmóða fjármagn sem fyrirtæki á fyrstu stigum þarfnast. „Þó býður Landsbankinn viðskiptavinum, sem eru með góða viðskiptahugmynd og vilja vinna að nýsköpun, upp á nýsköpunarlán, sem er skammtímafjármögnun, allt að 750 þúsund krónur, og er á hagstæðari vaxtakjörum en hefðbundin yfirdráttarlán." Umrædd lán eru meðal annars ætluð til kaupa á tækjum og hugbúnaði, þátttöku á námskeiðum, kaupum á sérfræðiþjónustu og þátttöku á vörusýningum. Landsbankinn hefur þegar lánað út rúmlega sex milljónir króna undir þessum hatti síðan nýsköpunarlánin voru fyrst auglýst og tæplega 60 aðilar hafa nýtt sér ráðgjafaviðtöl hjá nýsköpunarsérfræðingi bankans eða fyrirtækjasérfræðingum hans. Landsbankinn er einnig meginbakhjarl og samstarfsaðili Atvinnu- og nýsköpunarhelga Innovit. Alls hafa fjórar slíkar verið haldnar það sem af er vetri, yfir 200 þátttakendur hafa tekið þátt í þeim og sem stendur er unnið að framgangi meira en 50 viðskiptahugmynda. Næsta nýsköpunarhelgi verður haldin á Akranesi 27. apríl næstkomandi. Bankinn er líka styrktaraðili Gulleggsins, frumkvöðlakeppni Innovits. Þá rekur bankinn Samfélagssjóð sem veitir nýsköpunarstyrki upp á samtals 15 milljónir króna til að gefa frumkvöðlum tækifæri til að þróa nýja viðskiptahugmynd, eldri viðskiptahugmynd á nýju markaðssvæði eða nýja vöru og þjónustu. Hann hefur einnig skrifað undir samstarfssamning við Svanna – lánatryggingasjóð kvenna, sem er í eigu tveggja ráðuneyta og Reykjavíkurborgar, um að veita konum í atvinnurekstri lán sem sjóðurinn og bankinn ábyrgjast sameiginlega til helminga. Landsbankinn stofnaði einnig Þróunarsjóð ásamt iðnaðarráðuneytinu til að lengja ferðamannatímabilið á Íslandi. Sjóðurinn, sem styrkir þróun verkefna sem hægt er að sinna utan háannatíma í ferðaþjónustu, á um 70 milljónir króna sem úthlutað verður í tveimur úthlutunum. Leggur áherslu á orku og sjávarútvegSamkvæmt upplýsingum frá Íslandsbanka hefur hann lagt áherslu á að styrkja frumkvöðlaverkefni sem leggja áherslu á endurnýjanlega orku og sjálfbæran sjávarútveg, enda hefur bankinn byggt upp sérþekkingu á sviði jarðvarma og sjávarútvegs. Markmið styrkjanna er að hvetja til nýsköpunar og þróunar á þessum tveimur sviðum. Á þessum grunni veitti Íslandsbanki sprotafyrirtækinu GÍRÓ þriggja milljóna króna styrk til að þróa aðferð og smíða mælitæki sem getur allt í senn mælt hita, þrýsting, stefnu og halla borhola við allt að 400°C. Slíkt tæki er ekki til á markaðnum sem stendur. Þá styrki bankinn menntastofnanir innan íslenska sjávarklasans um fimm milljónir króna. Í svari bankans við fyrirspurn Markaðarins segir að styrkurinn hafi verið ætlaður til „að efla samstarf um námsframboð og marka stefnu og framkvæmdaáætlun um hvernig laða megi ungt fólk að menntun á þessu sviði“. Íslandsbanki opnaði einnig viðskiptasetrið Kvosina í samstarfi við Nýsköpunarmiðstöð Íslands í húsnæði bankans við Lækjargötu árið 2009. Þar fá einstaklingar og hópar aðstöðu til að vinna að viðskiptahugmyndum og stofna fyrirtæki undir faglegri umsjón sérfræðinga Impru á Nýsköpunarmiðstöð. Alls hafa um 80 fyrirtæki nýtt sér þessa aðstöðu frá stofnun Kvosarinnar. Þá hafa Íslandsbanki, Félag kvenna í atvinnurekstri og Opni háskólinn við Háskólann í Reykjavík staðið fyrir námskeiði fyrir frumkvöðla og frumkvöðlasamkeppni fyrir konur. Bankinn greiddi þar helming námskeiðsgjaldsins. Á námskeiðinu fengu þátttakendur m.a. kennslu í stofnun fyrirtækja, stefnumótun, markaðsgreiningu, fjármálum og samningatækni. Þetta skilaði 30 viðskiptaáætlunum og tóku þær fimm sem metnar voru bestar þátt í keppni um bestu áætlunina. Höfundur bestu áætlunarinnar, Volki, hlaut svo tveggja milljóna króna styrk frá Íslandsbanka.
Mest lesið Gátu ekki fært sönnur á fullyrðingar um virkni sveppadropa og dufts Neytendur Segja lækkun á olíu ekki hafa skilað sér til íslenskra neytenda Viðskipti innlent Einföldun að segja að íslensk ferðaþjónusta sé láglaunagrein Viðskipti innlent Falið að leiða þjónustu og upplifun hjá Mílu Viðskipti innlent Bankastjóri Íslandsbanka: „Ég samdi við Brynju strax á fyrsta alvöru stefnumótinu...“ Atvinnulíf 134 sagt upp í þremur hópuppsögnum Viðskipti innlent Olíuefni í Bugles sem eiga ekki að vera í snakkinu Neytendur Kvartanir borist vegna aflýstra flugferða Neytendur „Þetta er ekki mjög töff en ég get ekki að þessu gert“ Atvinnulíf Húsið selt á 78 milljónir og Jakub þarf að reiða fram milljón Viðskipti innlent Fleiri fréttir Falið að leiða þjónustu og upplifun hjá Mílu Segja lækkun á olíu ekki hafa skilað sér til íslenskra neytenda Einföldun að segja að íslensk ferðaþjónusta sé láglaunagrein „Þetta eru mjög mikil vonbrigði fyrir okkur“ Tekjur Haga jukust á fyrsta ársfjórðungi Bjarni Ingimar ráðinn rekstrarstjóri Avia Húsið selt á 78 milljónir og Jakub þarf að reiða fram milljón Gjaldþrotin námu 1,2 milljörðum króna Stýrivextir líklegast ekki lækkaðir aftur á þessu ári Verðbólgan úr 3,8 prósentum í 4,2 prósent Alltof margir sem sitja eftir með sárt ennið Baldvin tekinn við sem forstjóri Samherja Lánardrottnar slá af milljarð af vöxtum á ári Birta stendur frammi fyrir 1,5 milljarða tapi á Play Ósátt með samráðsleysi stjórnvalda Atvinnuleysi minnkar lítillega Samkaup segja upp tuttugu og tveimur Vonast til að hefja slátrun árið 2028 Öryggismyndavélar á grenndarstöðvum eigi að sporna við sóðaskap Vilja lækka fasteignaskatta um tvo milljarða: „Við eigum fyrir þessu“ Á von á fleiri fyrirtækjum í hópmálssókn gegn Booking.com Þrjú verkefni fengu styrk úr sjóði FrumkvöðlaAuðar Endurskoða áform um 1,5 milljarða skattahækkun Tekjur meiri af erlendum ferðamönnum og færri starfandi í ferðaþjónustu Flokka úrgang í fyrsta sinn á Norðurálsmótinu Hefur sjálfur séð eyðileggingu af völdum botnvörpuveiða Bjarg íbúðafélag reisir þrjátíu íbúðir í Reykjanesbæ Allir héldu stjörnunni og Óx fékk eina græna til Raquelita Rós ráðin tæknistjóri Um helmingur sérbýla kostar meira en 150 milljónir Sjá meira
Bankastjóri Íslandsbanka: „Ég samdi við Brynju strax á fyrsta alvöru stefnumótinu...“ Atvinnulíf
Bankastjóri Íslandsbanka: „Ég samdi við Brynju strax á fyrsta alvöru stefnumótinu...“ Atvinnulíf