Vilja að neytendur fái auglýstan nethraða 10. apríl 2012 13:00 Neytendur upplifa oft hægari nethraða en þeir bjuggust við þegar þeir keyptu netþjónustu. Ekki er alltaf við fjarskiptafyrirtækin að sakast, en til stendur að skilgreina betur hvað felst í góðri netþjónustu.Fréttablaðið/Stefán
Nýjar reglur Evrópusambandsins (ESB) um gæði internetþjónustu, sem til stendur að setja í haust, munu koma í veg fyrir að íslensk fjarskiptafyrirtæki geti auglýst að neytendur fái tengihraða allt að ákveðnu hámarki nema fyrirtækin uppfylli ströng skilyrði um að þjónustan standist þau loforð. Fjarskiptafyrirtækin auglýsa í dag mismunandi netáskriftir sem flestar eiga það sameiginlegt að hraðinn er sagður ná „allt að“ einhverju ákveðnu hámarki. Það er hins vegar engin trygging fyrir því að hámarkið náist. Samkvæmt núverandi regluverki er löglegt að auglýsa þjónustuna með þessum hætti, segir Hrafnkell V. Gíslason, forstjóri Póst- og fjarskiptastofnunar (PFS). Hann segir það líklega breytast með nýjum reglum ESB, sem verði sjálfkrafa teknar upp hér á landi. „Í lok þessa árs eða byrjun þess næsta verða settar nýjar reglur sem skýra í hverju gæði internetþjónustu felast, þar með talið varðandi hraðann. Víða í Evrópu er fyrirtækjunum ekki heimilt að auglýsa „allt að“ nema þau geti uppfyllt strangar kröfur,“ segir Hrafnkell. Hrafnkell segir að til standi að auka heimildir eftirlitsstofnana á borð við Póst- og fjarskiptastofnun til að skýra hvernig gæði fjarskiptaþjónustu eigi að vera. Stofnunin sé að auka eftirlit sitt, en eftir sé að skilgreina nákvæmlega gæði þjónustunnar. „Að mæla hraða á internetinu er flóknara en að mæla hraða bíls á leið frá A til B,“ segir Hrafnkell. Hægt sé að tryggja að tengingin frá heimili að fjarskiptafyrirtæki nái ákveðnum hraða, en um leið og notandinn vafri á netinu sé hraðinn í mörgum tilvikum úr höndum þess fjarskiptafyrirtækis. „Það er hægt að tryggja að tengingin frá heimili í næsta tengipunkt uppfylli ákveðin gæði. En það segir bara takmarkað mikið um þá þjónustu sem neytendur upplifa heima hjá sér,“ segir Hrafnkell. „Við höfum eftirlit með villandi auglýsingum. Við erum hlynntari því að ekki sé verið að auglýsa hraða allt að ákveðnu hámarki. Auglýsingar eiga að vera nákvæmar, bæði hvað varðar verð og hraða,“ segir Þórunn Anna Árnadóttir, sviðsstjóri á neytendaréttasviði Neytendastofu.- bj
Mest lesið Myndasyrpa: Síðasti kvöldfréttatími Sýnar Innlent „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Innlent Öll hin látnu um og undir tvítugu Innlent Ungum Pólverja best treyst til forystu í Langanesbyggð Innlent Segir af sér eftir árekstra við Hegseth Erlent Þurfi að hækka laun og fjölga frídögum Innlent „Ef ég hefði ekki farið upp á heilsugæslu þá hefði ég ekki fengið heilablóðfall“ Innlent Glæpaforingi dæmdur fyrir morðið á Tupac Erlent Enn óljóst hvað verður um umsóknina Innlent Sakborningur í Kársnesmáli sóttur til Spánar Innlent Fleiri fréttir „Ef ég hefði ekki farið upp á heilsugæslu þá hefði ég ekki fengið heilablóðfall“ Sakborningur í Kársnesmáli sóttur til Spánar Sinntu hávaðatilkynningum í heimahúsum Myndasyrpa: Síðasti kvöldfréttatími Sýnar „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Enn óljóst hvað verður um umsóknina Ungum Pólverja best treyst til forystu í Langanesbyggð Þurfi að hækka laun og fjölga frídögum Öll hin látnu um og undir tvítugu „Við segjum ekki bless, við segjum takk“ Síðasti kvöldfréttatími Sýnar „Ríkið á stóra sök á þessu“ Líka slæmar fréttir fyrir Rúv Á morgun mega hommar gefa blóð Tekjuáætlun verulega undir áætlun „Þetta mun auka enn á vald Ríkisútvarpsins“ Metfjöldi kvartana Ekkert ákveðið á fundinum: „Það væru fráleit viðbrögð við þessari niðurstöðu“ Þrjú ungmenni létust í bílslysinu á Krýsuvíkurvegi Skora á stjórnvöld að tryggja fasta viðveru þyrlu á Akureyri Reiðarslag fyrir fréttaflutning á Íslandi Gjaldtaka um nýjan Hornafjarðarveg hefst á morgun Dapurlegt að sjá á eftir kvöldfréttum Sýnar Fundur utanríkismálanefndar og ráðherra ræðir stöðu fjölmiðla Niðurskurður hjá Rúv upp á 10 til 15 stöðugildi Trausti nýr starfsmaður þingflokks Miðflokksins Alvarlegt slys á Krýsuvíkurvegi Ekki sé lýðræðislegt að halda formanni Eflingar í myrkrinu Bandaríkin virði fullvalda ákvörðun þjóðarinnar Kveiktu bál á bílastæði Sjá meira