Segir mikilvægt að sveitarfélögin taki þátt 5. apríl 2012 08:30 Mercedes Brasso, forseti Svæðanefndar ESB, segir mikilvægt fyrir íslensk sveitarfélög að taka þátt í aðildarviðræðunum. Fréttablaðið/Stefán „
Það er afar mikilvægt fyrir Ísland að sveitarstjórnir og svæðisbundin yfirvöld taki virkan þátt í aðildarviðræðum Íslands og ESB.“ Þetta segir Mercedes Bresso, forseti Svæðanefndar Evrópusambandsins (ESB), í samtali við Fréttablaðið. Bresso var stödd hér á landi þar sem hún fundaði með sameiginlegri þingmannanefnd Íslands og ESB og fulltrúum íslenskra sveitarfélaga um aðildarviðræðurnar. Bresso sagði að á Íslandi eins og öðrum löndum sé afar mikilvægt að vinna gegn fólksflótta af dreifbýlli svæðum til stórborga. „Þar skiptir byggðastefna miklu máli og getur aðstoðað við að koma á laggir verkefnum sem geta eflt atvinnulíf á dreifbýlli svæðum.“ Hún sagði ESB leggja mikla áherslu á þau mál, sem og að efla tækifæri almennings í aðildarlöndunum til að móta stefnu sambandsins. Svæðanefnd ESB samanstendur af 344 fulltrúum frá sveitarstjórnum í öllum löndum sambandsins. Markmið nefndarinnar er að virkja fulltrúa minni stjórnsýslueininga til að móta löggjöf ESB, enda kemur drjúgur hluti hennar til framkvæmda á því stigi. Aðspurð hvort rödd Íslands yrði ekki hjáróma í þessum fjölmenna hópi, kæmi til aðildar, sagði Bresso að svo þyrfti ekki að vera. „Kæmi til aðildar Íslands fenguð þið um sex fulltrúa í Svæðanefndinni en Þýskaland er með 24 fulltrúa þannig að fámennu löndin hafa töluvert vægi og geta nýtt sér það vel.“- þj
Mest lesið Neitar að hafa mætt með fóstur í krukku Innlent Grunur um fjárkúgun í manndrápsmáli Innlent Feðgarnir handteknir í heimahúsi með alvarlega áverka Innlent Gekk á milli bíla og braut rúður Innlent Aðalmeðferð í máli Írisar Helgu að hefjast Innlent Tjónið á Seltjarnarnesi hlaupi líklega á milljónum Innlent „Það er svolítið seint í rassinn gripið“ Innlent Fjölmenni í héraðsdómi Innlent Mega ekki teygja starfsemi tjaldsvæðisins yfir götuna Innlent „Svívirðileg svik“ Erlent Fleiri fréttir „Það er svolítið seint í rassinn gripið“ Vilja leyfa eldri borgurum að ráða sér au pair Tjónið á Seltjarnarnesi hlaupi líklega á milljónum Flestir neita sök og umfangsmikil réttarhöld í vændum Feðgarnir handteknir í heimahúsi með alvarlega áverka Manndrápsmál, eltihrellir og söguleg kaup Neitar að hafa mætt með fóstur í krukku Gekk á milli bíla og braut rúður Fjölmenni í héraðsdómi Þriðjungur til Þórs og KA en rúmt prósent í menninguna Hreyfingar mælast og aukin vöktun Aðalmeðferð í máli Írisar Helgu að hefjast Skattlagning á erlenda tæknirisa enn til skoðunar Grunur um fjárkúgun í manndrápsmáli Skikkaður í varðhald í tengslum við manndráp í Breiðholti Mega ekki teygja starfsemi tjaldsvæðisins yfir götuna Leiddur fyrir dómara vegna mannsláts Göngustígar greiða leið um falda perlu við Stykkishólm Hafna nær öllum sem vilja troða upp á Airwaves Þekkt fyrirtæki nýtt í skipulagðri glæpastarfsemi Kryddsíldin fagnar fjörutíu ára afmæli Skoða tengsl milli gerenda og fórnarlambsins í Breiðholti Feðgar verið handteknir í tengslum við rannsókn á manndrápi Nálar í hrekkjavökunammi reyndust vera hrekkur „Það var engu bætt inn í samninginn sem sneri að tölulegum þáttum“ Tveir handteknir með vopn í unglingapartíi Andlát í Breiðholti til rannsóknar Maður látinn eftir líkamsárás í Breiðholti Einar og Sanna mæta á Sprengisand og ræða uppsagnir Spörkuðu, hræktu og létu öllum illum látum Sjá meira