Íslandsbanki óttast áhrif veiðigjaldsins 5. apríl 2012 08:00 Íslandsbanki birti kolsvarta skýrslu í gær um álit sitt á áhrifum frumvarpa um stjórn fiskveiða og veiðigjald. fréttablaðið/óskar
Boðaðar breytingar á stjórnkerfi fiskveiða og sérstakt veiðigjald munu hafa veruleg áhrif á íslenskt efnahagslíf, er mat Íslandsbanka. Afkoma fyrirtækja og sjávarútvegs í heild er undir. Eins verða áhrifin á efnahag bankanna neikvæð. Það er mat Íslandsbanka að frumvörp til laga um stjórn fiskveiða og veiðigjald hafi í för með sér veruleg áhrif á rekstrarafkomu sjávarútvegsfyrirtækja og sjávarútveginn í heild. Líklegt telur bankinn að fjárfestingar í greininni dragist verulega saman. Þá er mat bankans einnig að breytingarnar hafi áhrif á íslenskt efnahagslíf í heild sinni og það eigi eftir að skila sér í verri efnahag viðskiptabankanna þriggja. Þetta er meðal þess sem kemur fram í áliti á frumvörpunum tveim sem bankinn sendi frá sér síðdegis í gær. Steingrímur J. Sigfússon, sjávarútvegsráðherra, kynnti frumvörpin 26. mars og sagði að valin hefði verið sú leið að hafa tvískipt veiðigjald; annars vegar grunngjald sem allir greiddu, og hins vegar tekjutengt gjald eða auðlindarentu, sem reiknuð væri eftir vissum forsendum. Í áliti Íslandsbanka segir að forsendurnar fyrir auðlindarentunni, eða sérstaka veiðigjaldinu, standist ekki sökum þess að ekki sé tekið tillit til réttrar skuldsetningar greinarinnar í útreikningi stofnsins. Þessi skekkja veldur því, að mati bankans, að lítill hagnaður verður eftir fyrir fyrirtækin sem jafnvel muni knésetja sum þeirra. Breytingarnar telur bankinn hafa mikil áhrif á sinn rekstur og hinna viðskiptabankanna. Það aftur hafi neikvæð áhrif á fjármögnunarleiðir sjávarútvegsfyrirtækjanna. Því megi búast við því að fjárfestingar dragist saman nái frumvörpin fram að ganga. Birtingarmyndin verður eldri skipafloti og framþróun verður lítil sem engin. Við þetta myndast vítahringur þar sem fyrirtækin hafa síður getu til að standa við núverandi og væntanlegar skuldbindingar gagnvart sínum lánardrottnum. Má geta þess að útlán til sjávarútvegsfyrirtækja vega misþungt í efnahagsreikningi stóru viðskiptabankanna þriggja. Sjávarútvegurinn er um 12% af útlánum Íslandsbanka, 23% hjá Landsbankanum og um 11% hjá Arion banka (bæði til sjávarútvegs og landbúnaðar). Íslandsbanki telur flækjustig laganna vera „ávísun á þjóðhagslega sóun“ og að aukin pólitísk aðkoma að úthlutun aflahlutdeilda skref til fortíðar.svavar@frettabladid.is
Mest lesið Lést í slysi á Hálsasveitarvegi Innlent Trúði ekki að siglt yrði úr höfninni: „Mér leið svo illa, ég fór að hágráta“ Innlent „Þetta er kannski dýrasta tækið sem barnið á“ Innlent Handtökur í vændisrannsókn lögreglu Innlent Áhöfnin hlúði að Hólmsteini á siglingunni til Hvalfjarðar Innlent Hættu skyndilega við viðræðurnar í Sviss Erlent „Virðist vera einhverskonar gamaldags sjómennskuhefndaraðgerð“ Innlent Segir Reykjavík að verða að Mekka vændisiðnaðar Innlent Lögreglustjóri braut meðalhófsreglu Innlent Skora á Bubba að taka sér pásu frá laxveiði og mæta Innlent Fleiri fréttir Skora á Bubba að taka sér pásu frá laxveiði og mæta „Ég hef verið kölluð þingmaður dauðans“ Segir Reykjavík að verða að Mekka vændisiðnaðar Trúði ekki að siglt yrði úr höfninni: „Mér leið svo illa, ég fór að hágráta“ Höfuðvígi vændismansals, mótmælandi sem brotnaði niður og Þingvellir Björgunarsveitir sóttu göngumann við Háafoss Þingið komið í sumarfrí Samþykkja úrræði fyrir fólk sem sæta þarf öryggisráðstöfunum Óljós um tilganginn en þekktu hvert egg Allt eftirlit matvæla undir einni stofnun Boltinn sé hjá fjarskiptafélögunum Fresta opnun Sundhallar Reykjavíkur Áhöfnin hlúði að Hólmsteini á siglingunni til Hvalfjarðar Vetur í íslenskri kvikmyndagerð Handtökur í vændisrannsókn lögreglu Hjartaljósin ekki sloppin „Virðist vera einhverskonar gamaldags sjómennskuhefndaraðgerð“ Stór mál á dagskrá síðasta þingfundar fyrir þingfrestun Lést í slysi á Hálsasveitarvegi Hvalavinurinn í tunnunni og Kaleo undirbýr Þingvallakonsert Inga ræddi við fulltrúa Tiktok um að hækka aldursmörk Halda í opinbera heimsókn til Færeyja Dómur burðardýrs mildaður Starmer ætlar ekki að láta í minni pokann fyrir Burnham strax Einn vildi sýkna þegar dómur fyrir sérlega sársaukafulla nauðgun var staðfestur Ólafur Þ. Harðarson sakaður um fánaslugs „Þetta er kannski dýrasta tækið sem barnið á“ Tveir á slysadeild eftir eld í Jörfabakka Stefna á að ljúka þingi í dag Loka Reykjanesbraut við Kaplakrika í kvöld Sjá meira