Hæsta sekt sinnar tegundar 4. apríl 2012 06:00 Sævar Freyr Þráinsson, forstjóri Símans, vitnaði í fréttum Stöðvar 2 í álit ráðgjafarfyrirtækisins Copenhagen Economics, sem hafði ekki gert athugasemdir við fyrirkomulagið. Fréttablaðið/arnþór
Samkeppniseftirlitið hefur ákveðið að leggja 440 milljóna króna sekt á Símann fyrir brot á samkeppnislögum. 390 milljónir eru vegna misnotkunar á markaðsráðandi stöðu og brot gegn ákvæðum EES-samningsins og fimmtíu milljónir vegna rangrar og misvísandi upplýsingagjafar til yfirvalda við meðferð málsins. Sektin er sú hæsta sem lögð hefur verið á fyrirtæki á Íslandi vegna misnotkunar á markaðsráðandi stöðu. Málið hófst með kæru frá símafyrirtækinu Nova en vatt upp á sig og við rannsókn málsins kom í ljós að Síminn hafði brotið lögin frá árinu 2001 allt til ársins 2007. Niðurstaðan er sú að Síminn beitti keppinauta sína verðþrýstingi til að gera þeim erfiðara fyrir að ná fótfestu á farsímamarkaði. Í þessu tilfelli er Síminn talinn hafa tekið óeðlilega hátt gjald fyrir að hleypa öðrum símfyrirtækjum inn á kerfi sitt, og mun hærra en gjaldið á símtöl innan kerfis Símans. Þetta leiddi til þess að til að vera samkeppnishæft þurfti Nova að bjóða viðskiptavinum sínum ókeypis símtöl innan eigin kerfis, sem leiddi til þess að félagið var rekið með miklu tapi fyrstu árin, að því er segir í niðurstöðu Samkeppniseftirlitsins. Ljóst sé að á brotatímabilinu hafi fyrirtæki hætt við að hefja hér starfsemi vegna þessa og önnur hrökklast af markaði. Síminn lýsti því yfir í gær að fyrirtækið hygðist áfrýja niðurstöðunni. Hún kæmi á óvart og að Samkeppniseftirlitið væri með henni að fordæma eðlilega háttsemi en ekki vernda samkeppni.- sh
Mest lesið Tekur U-beygju og kallar stuðningsmenn sína aumingja Erlent Ásthildur bendir strandveiðimönnum á minnihlutann Innlent Átta börn fædd úr erfðaefni þriggja einstaklinga til að fyrirbyggja sjúkdóma Erlent Dregið úr virkni en virðist enn gjósa í um tíu gígum Innlent Met í verðtryggðum lánveitingum lífeyrissjóðanna Innlent Aðalsvið Tomorrowland brann til kaldra kola Erlent Blámóða vofir yfir Vestfjörðum og Skagafirði Innlent „Af hverju þetta brestur strax, það skiljum við ekki alveg“ Innlent Vill fyrst og fremst fá að njóta ævikvöldsins í friði Innlent Tugir látnir eftir eldsvoða í verslunarmiðstöð Erlent Fleiri fréttir Landlæknir hlynnt því að banna ljósabekki Loftgæði mælast óholl á Akureyri Dregið úr virkni en virðist enn gjósa í um tíu gígum Met í verðtryggðum lánveitingum lífeyrissjóðanna Ásthildur bendir strandveiðimönnum á minnihlutann Opnaði listasýningu aldargamall og segir verkin verða eins og börnin sín Blámóða vofir yfir Vestfjörðum og Skagafirði Dettifossi kippt í lag og seinkar um sólarhring Grindvíkingum hleypt inn, varnargarðar hækkaðir og Bláa lónið opnar Vill fyrst og fremst fá að njóta ævikvöldsins í friði „Af hverju þetta brestur strax, það skiljum við ekki alveg“ Kort: Sprungan lengist til norðurs Strandveiðar bannaðar á morgun Gos í beinni, ósáttir Grindvíkingar og íbúum drekkt í steypu Alvarleg árás með hamri í Reykjavík Sýknaður af ákæru um að nauðga konu í afmælisveislu hennar Varað við fölsuðum töflum sem innihalda hættulega efnablöndu Gengu að gosinu og óku til Grindavíkur án þess að vera stöðvaðar Fundu tennur í aftursætinu á bílaþvottastöð Landa í Grindavíkurhöfn og botna ekkert í lokunum Mikið eldingaveður á Vestfjörðum Eldgosið í heimsmiðlunum: „Ísland: Rýmt“ Enn eitt gosið hafið og íbúar tala um Groundhog Day Kæmi mér ekki á óvart að þetta væri síðasta Sundhnúkagosið Fyrst vöruskemman, nú göngustígar: „Mórallinn er bara ömurlegur“ Skoða hvort gosið breyti heimsókn von der Leyen Dómstóll ESB staðfestir niðurstöðu varðandi vörumerkið Iceland Fallegt og ekkert smágos Önnur sprunga opnast Samhjálp „hálfnuð í mark“ og endurskipuleggur Kaffistofuna Sjá meira